Fréttatíminn - 23.12.2011, Page 26
Það er mjög
sterk og
afgerandi
tíska á götum
Reykjavíkur
og við tökum
mið af henni.
Við höfum
auðvitað
hannað og
saumað okkar
eigin föt í
meira en 20
ár og þar eru
mikil sóknar-
færi.
S
vava Johansen er fyrir
löngu orðin landsþekkt
sem Svava í 17, enda verið
fyrirferðarmikil í íslensku
viðskiptalífi um árabil.
Talan sautján hefur nú
tvöfalda merkingu, því ekki aðeins er
það nafnið á þekktustu verslun Svövu,
heldur eru verslanir hennar núna sautj-
án talsins. Hún er nú með 160 starfs-
menn og yfir hátíðarnar þegar mest er
að gera eru þeir allt að 200, enda rekur
NTC, fyrirtæki Svövu, ekki bara versl-
anir, heldur saumastofu og heildsölu
að auki. Þessi kjarnakona, sem hefur
rekið fataverslanir sínar af ástríðu í
meira en tvo áratugi, fann stund milli
stríða í öllu atinu nú skömmu fyrir
jól til að setjast niður og spjalla. Það
gekk þó ekki alveg átakalaust fyrir sig,
enda þyrfti hún helst að fjölfalda sig í
jólamánuðinum til að anna öllu því sem
til fellur.
„Gott að þér seinkaði líka,“ segir
Svava um leið og hún biður afgreiðslu-
dömuna um espresso með örlitlu af
flóaðri mjólk. Á kantinum er ristað
brauð að hætti hússins með smjöri, osti
og sultu. „Ég reyni nú að borða sem
minnst af brauði og sykri og hef alltaf
borðað mjög hollt. En af tvennu illu
er það betra en að hníga niður hérna
fyrir framan þig úr blóðsykursfalli,“
segir Svava og hlær innilega um leið og
kaffið kemur.
„Kaffi er eitt af því sem hefur frábær
áhrif á skapið. Sérstaklega ef maður
gerir góðan kaffibolla að félagslegri at-
höfn á kaffihúsi. Oftar en ekki kemur
maður út með sólskinsbros,“ segir
Svava, sem leggur sig fram um að
finna sér tíma fyrir það sem ýtir undir
gleðina alltaf þegar því verður við
komið. Við hefjum samtal okkar á að
rifja upp tíðarandann í Reykjavík fyrir
þremur áratugum, þegar Svava var að
byrja í bransanum.
Þetta er ástríða
„Ég byrjaði í bransanum af fullum
krafti 1981, ung og óreynd, en fann
strax að þarna lá áhugi minn. Föt
og tíska hafa alltaf verið ástríða hjá
mér og eitt stærsta áhugamál mitt.
Annars hefði ég ekki enst svona lengi
í þessu. Það er ávísun á árangur að fá
að starfa við eitthvað sem maður hefur
brennandi áhuga á og þannig hefur
það alltaf verið hjá mér. Ég minnst
þessara gömlu góðu tíma með mikilli
gleði, þegar við þurftum að hleypa
inn í hollum í verslunina á Laugavegi.
Sautján var leiðandi í tískunni og það
var regla frekar en undantekning
þegar við sýndum nýju línurnar okkar
að færri komust að en vildu. Það þurfti
að tæma peningakassann oft á dag,“
segir Svava og hlær og bætir við að sér
hafi ekki leiðst það. Enn þann dag í dag
hafa fyrirtæki Svövu mikil áhrif á þá
tískustrauma sem ríkja hverju sinni á
Íslandi, en hún vill þó meina að núorðið
gangi þetta í báðar áttir. Oft verði
tískan til á götum höfuðborgarinnar og
verslanirnar elti.
„Það er mjög sterk og afgerandi
tíska á götum Reykjavíkur og við
tökum mið af henni. Við höfum auð-
vitað hannað og saumað okkar eigin
föt í meira en 20 ár og þar eru mikil
sóknarfæri. Margar íslenskar línur eru
að hasla sér völl erlendis og við eigum
frábæra unga hönnuði.“
Ekki er hægt að hitta Svövu Johan-
sen í desember öðruvísi en talið beinist
að hátíðunum og önnunum sem þeim
fylgja fyrir verslunarfólk.
Þyrfti að fjölfalda sig í desember
Svava Johansen hefur rekið fataverslanir af ástríðu í meira en tvo áratugi. Í viðtali við Sölva Tryggvason segir hún
að það sé gaman að vera verslunarkona í desember og að hún hafi oft sofnað yfir jólamatnum. Ljósmyndir/Hari
Hefur oft sofnað yfir jólamatnum
„Blessaður vertu, ég hef oft sofnað
yfir jólamatnum. Þegar maður er
búinn að vinna kannski 16 til 18 tíma
á dag svo vikum skiptir verður algjört
spennufall þegar aðfangadagur gengur
loksins í garð. Hérna áður fyrr var það
bara vinna myrkranna á milli í orðsins
fyllstu merkingu. Ég vann dag og nótt
í desember ár eftir ár. Ég var með
puttana í öllu, þegar verslanirnar voru
færri. Það hljómar kannski undarlega,
en álagið var eiginlega mest þegar það
var bara ein verslun, því þá sá maður
um allt. En það er ekkert skrýtið að
verslunarfólk vinni mikið í desember,
því mánuðurinn er kannski 30 prósent
af allri veltu ársins. Maður vill ekki
þræla allt árið og klúðra svo þegar
mest liggur við. En ég hef smátt og
smátt lært að sleppa tökunum, þó að
auðvitað togi það alltaf að hafa skoð-
anir á öllu þegar maður hefur byggt
fyrirtæki algjörlega upp frá grunni,“
segir Svava, sem segist í seinni tíð hafa
lært að njóta þess betur að slaka á í
kringum jólin.
„Ég breyttist mikið þegar ég eignað-
ist son minn fyrir 15 árum, þá lærði ég
að forgangsraða betur og fann að ég
yrði að hafa tíma fyrir hann og mína
nánustu í kringum hátíðarnar. Nú eru
jólin orðin mjög huggulegur tími hjá
mér. Það hjálpar mér líka mikið hvað
Bjössi maðurinn minn er góður í að
ná mér niður á kvöldin og fá mig til
Sölvi
Tryggvason
ritstjorn@frettatiminn.is
Framhald á næstu opnu
26 viðtal Helgin 23.-25. desember 2011