Fréttatíminn


Fréttatíminn - 23.12.2011, Page 28

Fréttatíminn - 23.12.2011, Page 28
að slappa af og gera eitthvað kósí. Við verðum bara á loðbomsunum í kósífíl- ing þegar jólin ganga í garð,“ segir Svava og brosir og það leynir sér ekki að hún hlakkar til að njóta verðskuld- aðs frítíma. „Jólin eru yndislegur tími og undan- farið hefur manni hlýnað að sjá jóla- ljósin tifa á greinum þöktum snjó í still- unni. Sérstaklega finnst mér gaman að sjá hversu miðbærinn er fallegur og dafnar vel núna. Það hefur mikil vinna verið lögð í að hafa jóla- og glugga- skreytingar sérlega fallegar fyrir jólin og mér leiðist ekki að segja frá því að EVA, ein af verslununum okkar, fékk verðlaun fyrir það frá Jóni Gnarr borgarstjóra.“ Skilnaður, yfirtaka og hrun Björn Sveinbjörnsson og Svava Joh- ansen eru par sem vekur athygli hvar sem þau koma, enda glæsilegt fólk í alla staði. Svava segist mjög sátt við sitt líf í dag og hefur náð góðu jafnvægi eftir tímabil sem tók sinn toll. Fyrst skyldi hún við Bolla Kristinsson, sem hún hafði verið í sambúð með í meira en tuttugu ár, því næst keypti hún hans hlut í verslunarkeðjunum, sem gengu afar vel næstu þrjú árin – en svo kom kreppan. „Það er auðvitað alltaf erfitt að skilja þegar börn eru í spilinu. Við höfðum verið saman síðan ég var nánast bara krakki og viðbrigðin voru þess vegna mikil. Það sem flækti þetta var svo reksturinn á verslununum og það var stórt skref fyrir mig að ákveða að kaupa Bolla út og taka þetta allt yfir sjálf. Það var engan veginn sjálfgefið. Síðan var rétt komið gott jafnvægi á þetta allt saman þegar hrunið kom. Það var ekkert grín fyrir mig, vitandi að ég bæri ábyrgð á lifibrauði 160 starfsmanna minna. Það var rosaleg óvissa í loftinu strax eftir hrun og fólk var hrætt um grundvallaratriði eins og að eiga þak yfir höfuðið. Ég hugsa stundum núna að maður hefði átt að halda dagbók um líðan sína og fólksins sem maður umgekkst vikurnar eftir hrun. Það var algjör störukeppni í gangi í viðskiptalífinu og enginn þorði neinu. En sem betur fer voru birgjarn- ir okkar mjög skilningsríkir og okkur tókst að fá lán fyrir vörum úti og þar fram eftir götum. Með gífurlegri baráttu tókst okkur að fara í gegnum þetta án mikilla áfalla og það er þeim mun sætara að standa uppréttur á eftir. Ég er baráttujaxl í eðli mínu og nýt mín vel þegar ég þarf að hafa fyrir hlutunum. Við vorum flest orðin dálítið værukær á árunum fyrir hrun þegar lífið var orðið svo þægilegt og allir áttu allt til alls. Ég hefði ekki viljað missa af þessum erfiða tíma, sem ég lít nú á sem besta skólann í lífi mínu.“ Eitt af því sem einkennir Svövu, og allir finna fljótt sem kynnast henni, er hversu stutt er í hláturinn og gleðina. Í huga Svövu skiptir hugarfarið öllu í því hvort fólk ílengist í lægðum erfiðra tíma. Lætur ekki neikvæðni ná tökum á sér „Það er svo ofboðslega mikilvægt að losa sig við það sem hefur neikvæð áhrif á mann og hika ekki við það. Bara til að taka örlítið dæmi ákvað ég fyrir ekki svo löngu að horfa bara á bíómyndir sem láta mér líða vel. Ég var einhvern tíma svefnvana eftir að hafa horft á hryllingsmynd þegar ég spurði mig hvers vegna í ósköpunum ég stæði í slíkri sjálfspíningu og síðan þá hef ég ekki horft á eina hryllingsmynd. Að sama skapi á maður að umvefja sig fólki sem hefur jákvæð áhrif á mann og hver og einn verður að finna sér ástundun eða áhugamál sem skilja eftir sig vellíðan. Hvort sem það eru göngutúrar, golf, líkamsrækt eða hvað sem er. Maður verður að temja sér að taka strax í taumana þegar niðurrifs- púkinn lætur á sér kræla.“ Á erfiðum tímum í lífi Svövu hefur hún líka komist að raun um að góður vinur er gulli betri. Fastagestir í Laug- um sjá Svövu oft að æfa sig með Lóló (Matthildi Guðmundsdóttur) einka- þjálfara, sem jafnframt því að þjálfa Svövu er hennar besti vinur. Lóló „lifesaver“ „Ég veit ekki hvar ég væri ef ég hefði ekki hana Lóló mína. Ég hika ekki við að kalla hana minn „lifesaver“ eftir allan stuðninginn sem hún hefur veitt á erfiðum tímum í mínu lífi. Það er ekki síður andleg heilsurækt fyrir mig að fara til hennar. Auðvitað erum við bestu vinkonur og gerum eitt og annað hér og þar saman, en það er frábært að hafa þessa föstu punkta í vikunni, þar sem ég fer í ræktina og hitti hana um leið. Stundirnar okkar saman jarð- tengja mig alltaf og koma mér yfirleitt í sólskinsskap.“ Svava hittir í starfi sínu alls konar Svava í 17 „Hérna áður fyrr var það bara vinna myrkr- anna á milli í orðsins fyllstu merkingu. Ég vann dag og nótt í desember ár eftir ár.“ fólk alla daga og ég spyr hana um hvernig hún skynji andrúmsloftið á Ís- landi þegar árið 2011 er að renna sitt skeið. „Mér finnst ég finna það að þjóð- félagið sé dálítið að breytast þegar kemur að peningum. Það er ákveð- inn hópur, kannski um 10 prósent af þjóðinni sem á mjög mikinn pening, en hin stóra millistétt hefur töluvert minna á milli handanna núna en fyrir hrun. Fólkið sem er með afborganir af öllum lánum í botni hefur þurft að berjast mjög harkalega síðustu ár og neyslugetan er mun minni en áður. Hvað fötin varðar finnst mér kannski að pabbinn hafi orðið svolítið út undan. Börn og unglingar þurfa alltaf föt og konurnar hætta flestu öðru áður en þær hætta að kaupa föt og skó. En pabbinn í fjölskyldunni hefur ekki endurnýjað fataskápinn mikið síðustu ár. En þetta finnst mér smátt og smátt vera að breytast aftur.“ Það kemur kannski ekki á óvart að Svava vill horfa fram á veginn og segir það ekki skila fólki neinu að festast í reiði. „Reiði skilar engu“ „Ég lærði það fyrir löngu að það þýðir ekki að horfa í baksýnisspegil- inn. Auðvitað verður að gera upp það sem aflaga fór, en sökudólgavæðing lætur engum líða betur og reiði kemur manni ekki upp úr vanda. Það kraumar einhver ótti undir niðri hjá mörgum, en það er rosalegur baráttuandi í Ís- lendingum og þeir sem ná að komast óskaddaðir út úr þessu hruni verða fyrir vikið mjög ánægðir með sjálfa sig og finnst þeir færir í flestan sjó á eftir. Það er hægt að snúa mestu ósigrum upp í mikla sigra,“ segir Svava, sem hefur líka ákveðnar skoðanir á því hvernig kynin geti lært af hvort öðru eftir hrunið. „Ég vil ekki alhæfa, en karlmenn eru almennt dálítið glannalegri í við- skiptum en konur og kannski eilítið ónákvæmari. Konur eru varkárari og stundum meira hikandi. Að mínu mati eru bestu stjórnir fyrirtækja skip- aðar körlum og konum, þar sem kynin laða það besta fram í hvoru öðru. Mér finnst yngri konur vera að læra að vera óhræddari við að stíga á bensíngjöfina, en karlarnir að sama skapi að róast dálítið. Allt þarf þetta að ná jafnvægi,“ segir Svava. Það er auð­ vitað alltaf erfitt að skilja þegar börn eru í spilinu. Við höfðum verið saman síðan ég var nánast bara krakki og við­ brigðin voru þess vegna mikil. Börn og unglingar þurfa alltaf föt og konurnar hætta flestu öðru áður en þær hætta að kaupa föt og skó. En pabbinn í fjölskyldunni hefur ekki endurnýjað fataskápinn mikið síðustu ár. 28 viðtal Helgin 23.-25. desember 2011

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.