Fréttatíminn - 23.12.2011, Blaðsíða 62
áramótaskaupið Þroskahamlaðir bregða á leik
Ein stelpa og 23 strákar.
Þetta er niðurstaðan
þegar sjónvarpsútsend-
ingar spurningakeppni
framhaldsskólanna
Gettu betur í fyrra eru
skoðaðar. Þrátt fyrir
það telja sum nemenda-
félög í framhaldskólum
að ekki þurfi að hafa
áhyggjur af rýrum hlut
kvenna í keppninni,
bendir Anna Pála
Sverrisdóttir, fyrrum
keppandi í Gettu betur
og lögfræðingur, á. Hún
vill sjá hraustlegt átak
þar sem jafnréttismál
verði sett í forgrunn
keppninnar af hálfu
nemendafélaga og RÚV.
„Ekki í því augnamiði
að beita neinn misrétti,
heldur til að leiðrétta þá
samfélagslegu skekkju
sem gerir að verkum að
karlmenn fá jafn ríflegt
pláss í keppninni og
raun ber vitni.“ Anna
rýndi í kjöl keppninnar í
kúrsi í jafnréttisfræðum
við Háskóla Íslands og
birti grein um hana í
Þjóðarspeglinum 2011.
„Jú, ég hef lesið
greinina,“ segir Örn
Úlfar Sævarsson,
sem verður núna annar
tveggja dómara Gettu
betur. Við hlið hans sest
Þórhildur Ólafsdóttir,
fréttamaður. Ekki sem
stigavörður heldur með-
dómari. Starf stiga-
varðar hefur verið lagt
niður. „Já, og ég veit
ekki betur en að hún sé
kynjafræðingur,“ segir
Örn Úlfar sposkur.
Hann viðurkennir að
hausatalning Önnu Pálu
á kven- og karlpersón-
um í þremur þáttum frá
þremur árum keppn-
innar hafi komið sér
á óvart, en spurt hafi
verið um kvenpersónur
í um fimmtungs til-
fella. „Ég get svarað
fyrir mig að ég reyni að
grafa upp eitthvað sem
tengdist konum. En það
er líka staðreynd að
sagan hefur alltaf verið
skrifuð af karlmönnum.
Karlar eru ríkjandi og
úr því efni höfum við úr
að spila.“
Hann segir for-
svarsmenn þáttarins á
RÚV hafa komið með
margar hugmyndir
um breytt fyrirkomu-
lag keppninnar fyrir
þetta árið, en keppnin
sé í eigu framhalds-
skólanna og þær hafi
ekki allar fengið góðan
hljómgrunn. „Ég vil
ekki tala um það sem
við fengum ekki að
gera,“ segir hann en
að reynt hafi verið að
bregðast við gagn-
rýninni. „Frumskylda
okkar er samt að búa
til skemmtilegan sjón-
varpsþátt og vera með
sanngjarna keppni.“-
gag
gettu betur anna pála sverrisdóttir rannsakaði kynjaslagsíðu spurningakeppni framhaldsskólanna
Stigaverði skipt út fyrir kvendómara með gráðu í kynjafræðum
Fulltrúar fjögurra íslenskra
fjölmiðla; Morgunblaðsins,
Fréttablaðsins, Fréttatímans og
Mynda mánaðarins fengu einstakt
tækifæri til þess að funda með
leikstjóranum Ridley Scott í
sumar meðan hann var á landinu
við tökur á hinu óbeina Alien-fram-
haldi – Prometheus. Kvikmynda-
verið 20th Century Fox lét alla
blaðamennina undirrita fjögurra
blaðsíðna samning með alls kyns
trúnaðar- og þagnarákvæðum.
Erlingur Grétar Einarsson,
sem mætti fyrir hönd Mynda
mánaðarins, snaraði í vikunni
þýddri útgáfu sinni af fundinum
á vef sinn filmophilia.com, og
uppskar ógurlega reiði Fox sem
hefur hótað honum málssókn
vegna brots á samningi. Vefurinn
fékk hins vegar heimsathygli og
margir stærstu kvikmyndavefir
heims vitnuðu í viðtalið. Fox kann
honum hins vegar engar þakkir
enda var Scott full málglaður við
íslensku blaðamennina sem luma
á ýmsum hernaðarleyndarmálum
um myndina. Að vísu var þessi
vitneskja að mestu birt á prenti
miðlanna í sumar en rötuðu ekki út
fyrir landsteinana fyrr
en spjallið var sett
á ensku á vefinn.
Strangt ákvæði
var í samn-
ingnum um að
spjallið við Scott
væri eingöngu
ætlað til birtingar
á prenti en alls ekki
Internetinu.
Foxillur kvikmyndarisi
Verður
Gamlinginn
söluhæstur?
Gamlinginn sem skreið út
um gluggann og hvarf eftir
Svíann Jonas Jonasson er
sennilega óvæn-
tasta metsölubók
síðustu ára á
Íslandi. Gamlinginn
hefur, eftir því sem
Fréttatíminn kemst
næst, selst í tuttugu
þúsund eintaka,
bæði í kilju og inn-
bundin, og situr í öðru
sæti á metsölulista ársins
á milli Einvígis Arnaldar
Indriðasonar og Braks
Yrsu Sigurðardóttur.
Á sölulista Eymundsson
fyrir síðustu viku var
Gamlinginn bæði í þriðja
og sjötta sæti í heildarlist-
anum. Fróðir menn innan
bókageirans telja líklegt
að Gamlinginn
verði söluhæstur
á árinu þegar
allt kemur til
alls þótt Arnaldur og Yrsa
muni verða fyrir ofan hann
þegar síðasti metsölulisti
ársins verður birtur í
næstu viku. Ástæðan er
sú að menn telja að mun
minna verði skilað af
Gamlingjanum heldur en
íslensku metsöluhöfund-
unum þar sem ætlað er að
fleiri kaupi Gamlingjann
fyrir sjálfan sig.
Mugison
slekkur á
símanum
Vestfirski tónlistarmað-
urinn Mugison hefur heillað
þjóðina upp úr skónum
með tónlist sinni, hógværð
og örlæti. Platan hans er
á flestum listum yfir bestu
plötur ársins og hefur selst
eins og heitar lummur.
Mugison ákvað að þakka
þjóðinni viðtökurnar með
því að bjóða upp á ókeypis
tónleika víða um land.
Ásókn fjölmiðla og fleiri í
kjölfar þessa þeirra sem
vilja endilega eiga orð við
öðlingsdrenginn er orðinn
slík að hann hefur nú lagt
farsímanum enda þagnaði
tækið víst varla eitt augna-
blik. Nú þarf fólk að snúa sér
til umboðsmanns tónlistar-
mannsins sem skammtar
viðmælendum tíma.
É g sá handritið að þessu atriði og gat nú ekki merkt að verið
væri að gera grín, hvorki að
fólki með þroskahömlun né
öðrum,“ segir Friðrik Sigurðs-
son, framkvæmdastjóri Þroska-
hjálpar, um áramótaglensið. „Ég
vissi að fólk var dálítið kvíðið
fyrir þessu en ég sé ekkert
þarna sem mér finnst vont,
sem talsmanni hagsmunasam-
taka þessa hóps. Mér finnst
bara jákvætt að þættirnir Með
okkar augum hafi skilað því
að fólk telji að þessi hópur eigi
erindi við þjóðina. Ef það er eitt-
hvað sem þjóðin horfir á þá er
það Skaupið. Þetta er bara alveg
frábær
niðurstaða
af þessum
þáttum.“
Frið-
rik
segir
Þroska-
hjálp hafa staðið að gerð Með okkar
augum til þess að auka sýnileika
fólks með þroskahömlun í almennri
umræðu. „Það er til marks um að
eftir þáttunum var tekið að leitað
sé til þessara einstaklinga fyrir
Áramótaskaupið,“ segir Friðrik og
vísar til þess að bæði hljóti þætt-
irnir að teljast til tíðinda á árinu
sem er að líða auk þess sem það
hljóti að teljast gildisaukandi að
fá fólk með þroskahömlun til þess
að vera með í þessum vinsæl-
asta dagskrárlið hvers árs. „Við
erum auðvitað að reyna að vekja
athygli á því að fólk með þroskahöml-
un er sjálfsagður hluti af samfélaginu
og sem slíkt á það, rétt eins og við öll,
sínar björtu og dökku hliðar. Okkur
finnst alveg sjálfsagt að það sé hlegið
með fólki með þroskahömlun og
gerum greinarmun á því hvort það sé
verið að hlæja að því eða með því.“
Friðrik segir heiti þáttanna ekki
út í bláinn. „Hugmyndin gengur út á
að þetta sé fólk sem er kannski ekki
daglega í fjölmiðlum en horfi sínum
augum á samfélagið. Eiginleikar sem
við höfum verið að benda á eins og
til dæmis heiðarleiki eru ofarlega
á baugi. Oft á tíðum er þessi hópur
mjög heiðarlegur. Ef það þarf að
spyrja að einhverju þá er bara spurt
að því. Það er auðvitað út af fyrir sig
til fyrirmyndar – kannski má nú segja
að það sem gerðist til dæmis í hruninu
hafi verið að það skori fólk sem hafði
alveg heiðarlegar spurningar uppi.
Getur verið satt að þetta sé svona.“
Friðrik segir vissulega ákveðna
viðurkenningu fólgna í því að krakk-
arnir séu fengir til þess að grínast í
Skaupinu en það besta af öllu við Með
okkar augum sé þó að... „sjónvarpið
vill endilega meira þannig að við
erum að fara að búa til nýja þáttaröð.
Við ætluðum okkur að sýna fram á að
það væri bara hollt fyrir samfélagið
að fá þessa sýn og þessir þættir voru
bara mest með almenna skírskotun.
Þetta eru ekki þættir um fatlað fólk
og ekki fyrir fatlað fólk heldur þættir
unnir af fötluðu fólki fyrir alla. Og
áramótaskaupið er fyrir alla. Þannig
að ég er bara mjög spenntur að sjá
hvernig þau taka sig út.“
toti@frettatiminn.is
Krakkarnir, sem gerðu stormandi lukku fyrr á árinu
með sjónvarpsþáttunum Með okkar augum, bregða á
leik í Áramótskaupinu. Eftir því sem Fréttatíminn kemst
næst eru það Tobba Marínós og Gillzenegger sem eru í
skotlínunni í atriðinu þar sem krakkarnir, sem öll eru með
þroskahömlun, horfa á frægðarfólkið með sínum augum.
Mér finnst
bara jákvætt
að þættirnir
Með okkar
augum hafi
skilað því að
fólk telji að
þessi hópur
eigi erindi við
þjóðina.
Örn Úlfar Sævarsson,
verður ekki einn við
völd í Gettu betur í
vetur. Þórhildur Ólafs-
dóttir fréttamaður
dæmir nú með honum.
mynd/Hari
Anna Pála fyrrum kepp-
andi Gettu betur.
Viðurkenning á erindi
þeirra við þjóðina
Skúli Steinar Péturs-
son, Andri Freyr
Hilmarsson, Eiður
Sigurðarson, Katrín
Guðrún Tryggva-
dóttir, Bjarni Haraldur
Sigfússon, Steinunn
Ása Þorvaldsdóttir
og Richard Örnuson
heilluðu sjónvarps-
áhorfendur í sumar í
þáttunum Með okkar
augum. Þau verða í
Áramótaskaupinu og
þættirnir eru að koma
út á DVD-diskum.
Krakkarnir munu að
sögn horfa á Tobbu
Marínós með sínum
augum í Áramóta-
skaupinu.
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Gleðileg jól
62 dægurmál Helgin 23.-25. desember 2011