Fréttatíminn - 04.01.2013, Page 4
Mikael
Torfason
mikaeltorfason@
frettatiminn.is
Smurostar
við öll tækifæri
ms.is
... ný bragðtegund
H
VÍ
TA
H
Ú
SI
Ð
/
SÍ
A
- 1
1-
05
09
Ný bragðtegund
með
pizzakryddi
Ný viðbót í ...
... baksturinn
... ofnréinn
... brauðréinn
... súpuna
eða á hrökkbrauðið
Fjórar íslenskar sveitir á Eurosonic
Systurnar í Pascal Pinon, skipaður
þeim Jófríði og Ásthildi Ákadætr-
um, treður upp á tvennum tónleikum
á Eurosonic-tónlistarhátíðinni í
næstu viku. Mynd/Lilja Birgisdóttir
Fjórir listamenn og hljómsveitir verða full-
trúar Íslands á Eurosonic-tónlistarhátíðinni í
Groningen í Hollandi í næstu viku. Þeir eru
Snorri Helgason, Ásgeir Trausti, Epic Rain og
Pascal Pinon en það voru skipuleggjendur
Eurosonic sem óskuðu eftir að þeir kæmu
fram.
Útflutningsstofa íslenskrar tónlistar, Útón,
sér um skipulagningu ferðarinnar og þeir
Tómas Young og Sigtryggur Baldursson verða
með í för. Hátíðin stendur frá miðvikudegi til
laugardags.
„Þetta er ein stærsta tónlistarkaupstefnan
í bransanum í dag,“ segir Tómas Young
hjá Útón. Hann segir að á Eurosonic mæti
allir helstu tónleikabókarar, fulltrúar frá
plötuútgáfum og tónlistarhátíðum og stóru
ríkisfjölmiðlarnir. „Þarna hittist bransinn og
verslar,“ segir Tómas. -hdm
F jölmörg tilfelli svínainflú-ensu hafa greinst í Noregi undanfarnar vikur og lést
11 ára drengur af völdum sjúk-
dómsins milli jóla og nýárs. Að
sögn Þórólfs Guðnasonar, yfir-
læknis sóttvarna hjá landlæknis-
embættinu, er svínainflúensan
nú orðin að árlegri inflúensu en
ekki er vitað hvort bólusetning
frá 2009 dugi enn gegn veirunni.
Í Noregi standa nú yfir rann-
sóknir á því hvort tilfellin þar
megi rekja til stökkbreyttrar
svínainflúensuveiru. Ekki er
vitað hvort hún grasseri einnig
hér á landi þótt nokkur inflú-
ensutilfelli hafi þegar greinst,
þau fyrstu í október. „Inflúensan
er að koma upp núna um þessar
mundir hér á landi eins og hún
gerir árlega. Það eru hins vegar
ekki komnar niðurstöður úr
greiningum á því hvaða tegund
er um að ræða,“ segir Þórólfur.
Gert er ráð fyrir að þrjár
tegundir inflúensu muni ganga
hér á landi, tvær svokallaðar
A-inflúensur og er svínaflensan
önnur hennar, og hins vegar ein
gerð af B-inflúensu. „Til þessa
hefur bólusetningin frá árinu
2009 dugað því það komu ekki
upp mörg tilfelli af svínainflú-
ensu í fyrra og hittifyrra. Við
vitum hins vegar ekki enn hvort
bólusetningin dugi áfram eða
hvort liðinn sé svo langur tími
að veiran hafi náð að breyta sér,“
segir Þórólfur.
Að sögn Þórólfs getur inflú-
ensa alltaf verið hættuleg, sér-
staklega þeim sem eru með
undirliggjandi sjúkdóma á borð
við öndunarfærasjúkdóma eða
skert ónæmiskerfi. Svínaflensan
sé þar í engu frábrugðin öðrum
inflúensuveirum.
Erfitt er að bólusetja gegn ár-
legri inflúensu því veiran breytir
sér sífellt milli ára og því verður
að þróa bóluefnið upp á nýtt á
hverju ári.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
Kannabis fyrir
borgarráð.
Kannabis Umræða Um lögleiðingU á betri reyKjavíK
Ekki á verksviði borgarinnar að lögleiða kannabis
„Þetta er einfaldlega tillaga
sem kom inn á Betri Reykjavík
punktur is rétt fyrr jól og hún
er komin í ferli hjá borgar-
ráði Reykjavíkurborgar,“ segir
Helga Björk Laxdal, skrif-
stofustjóri hjá Reykjavíkur-
borg, um tillögu þess efnis
að kannabis verði lögleitt og
salan á efnunum skattlögð
til styrktar hagkerfinu. 40
notendur á Betri Reykjavík
punktur is greiddu atkvæði
með tillögunni en 13 voru á
móti.
Í umræðum á vefnum er
dregið í efa að Reykjavíkur-
borg geti eitthvað haft með
þetta að gera en fylgjendur
vilja að borgin þrýsti á breyt-
ingar. Helga Laxdal segir það
ekki á verksviði Reykjavíkur-
borgar að lögleiða kannabis.
Hún segir allt vera tekið til
formlegrar meðferðar sem
kemur á þennan vef, Betri
Reykjavík, og býst við að
hugmyndin verði lögð fyrir
borgarráð ásamt tillögu um að
þessu verði vísað frá.
Heilbrigðismál eKKi vitað Hvort svínaFlensUbólUsetningin dUgi enn
Svínainflúensan orðin
árviss viðburður
Inflúensu hefur orðið vart hér á landi að undanförnu og hafa
nokkur tilfelli verið greind þótt ekki sé enn vitað hvort um
svínainflúensu sé að ræða. Hún sé hins vegar orðin árviss við-
burður en ekki er vitað hvort bólusetningar frá 2009 dugi gegn
svínainflúensu nú. 11 ára drengur lést milli jóla og nýárs úr
svínainflúensu í Noregi.
Sóttvarnalæknir áætlar að á Íslandi hafi bólusetning gegn svínainflúensu á árunum 2009-10 komið í veg fyrir að minnsta kosti
20.000 sýkingar, 70 sjúkrahúsinnlagnir, 7 innlagnir á gjörgæsludeild og eitt dauðsfall.
Hverjir eiga að láta
bólusetja sig?
Einkenni inflúensunnar eru yfirleitt
sérstök. Þau eru bráð, með höfuðverk,
háum hita, hósta og hálssærindum og
beinverkjum.
Flestir ná sér innan viku og oftast fylgir
sjúkdómnum engin hætta, en inflúensa
getur verið alvarleg þeim sem eru með
undirliggjandi sjúkdóma eða aldraðir.
Besta vörn gegn inflúensu er með
bólusetningu en verndin er mismunandi
á milli ára og getur verið allt að 60–70%.
Jafnvel þótt bólusetning verndi ekki full-
komlega getur hún í mörgum tilfellum
komið í veg fyrir alvarlega sýkingu. Rétt
er einnig að minna á að til eru lyf sem
hægt er að nota ef þau eru tekin innan
við tveggja sólarhringa frá upphafi ein-
kenna.
Mælst er til að eftirtaldir áhættuhópar
njóti forgangs við inflúensubólusetn-
ingar:
Allir einstaklingar 60 ára og eldri.
Öll börn og fullorðnir sem þjást af
langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og
lifrarsjúkdómum, sykursýki, illkynja
sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi
sjúkdómum.
Heilbrigðisstarfsmenn sem annast
sjúklinga í áhættuhópum sem taldir eru
upp hér að ofan.
Þungaðar konur.
Ný lög um barnavernd
samþykkt
Ný lög um barnavernd voru samþykkt á
dögunum. Greinar laganna eru marg-
þættar en snúa aðallega að ákvæðum um
forsjá og umgengni.
Gömlu lögin í umgengnismálum voru
háð því að barnavernd gæfi umsókn sína.
Nú hefur þetta fyrirkomulag verið afnumið
og fært alfarið til sýslumannaskrifstof-
anna. Lögfræðingur hjá Barnaverndar-
stofu segir breytinguna jákvæða.
„Það sem verið er að gera er að stytta
allan biðtíma verulega og það er mikilvægt
skref í bættri þjónustu,“ segir Heiða Björg
Pálmadóttir, lögfræðingur barnaverndar-
stofu. Samkvæmt Heiðu Björgu verður
umsagnarferlið ekki í höndum tveggja
nefnda heldur aðeins einnar. „Það sem
gera á inni á sýslumannsskrifstofunum
með þessu fyrirkomulagi er að búa til sér-
fræðinga þar innanhúss og fjölga þannig
stöðugildum. Þegar forsjármál fer til með-
ferðar hjá Barnaverndarstofu veldur það
oft leiðum misskilningi um að það sé orðið
að barnaverndarmáli þó við séum aðeins
að veita efnislega umsögn. Með breyting-
unum verður komið í veg fyrir slíkt.“
Heiða Björg segist jákvæð fyrir breyting-
unum. Barnaverndarstofa gaf lögunum því
jákvæða umsögn sína á þinginu.
Versta snjóflóðahrinan
í sjö ár
Snjóflóðahrinan sem valdið hefur
vandræðum á Vestfjörðum og Norðurlandi
undanfarna daga er líklega versta hrina
sem orðið hefur á Vestfjörðum síðan 2005,
að því er fram kemur á vef Veðurstofunn-
ar. Mörg snjóflóð féllu yfir vegi og nokkur
nærri byggð á norðanverðum Vestfjörð-
um. Snjóflóðahrinan olli einnig miklum
truflunum á samgöngum á Norðurlandi
þó ekki kæmi þar til rýmingar á húsum.
Hlýnandi veður í lok hrinunnar olli svo
hættu á snjóflóðum í meira en sólarhring
eftir að veðrið gekk niður.
Lítil aukning milli ára
Rétt rúmlega 6 prósent fleiri fasteignir
seldust á höfuðborgarsvæðinu í desember
síðastliðnum miðað við sama mánuð ári
fyrr, samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá.
Alls seldust tæplega 400 eignir og var
meðalupphæð hvers kaupsamnings tæpar
34 milljónir króna. Til samanburðar voru
kaupsamningarnir 635 í desember 2006.
-sda
2 fréttir Helgin 4.-6. janúar 2013