Fréttatíminn - 04.01.2013, Síða 21
KOMDU ÞÉR Í TOPPFORM
Fyrir konur og karla, CLUB FIT, 6-vikna námskeið
50 mínútur 3x í viku
Club Fit MTL (mótun, tónun, lenging) Rólegri tímar - unnið með eigin líkamsþyngd
og gengið eða skokkað á göngubretti
Club Fit 50+ Fyrir konur og karla, 50 ára og eldri
Club Fit Extreme Fyrir þá sem vilja enn meira. Meiri keyrsla, erfiðari æfingar.
Club Fit hefur slegið rækilega í gegn!
Tímarnir byggjast á að lyfta lóðum og hlaupa á
hlaupabretti.
Hraði og þyngdir sem henta hverjum og einum.
ÞJálfari stýrir hópnum, leiðbeinir og hvetur áfram.
Frábær stemning! Þú kemst í flott form áður en þú
veist af og hefur gaman af.
Allar nánari upplýsingar um verð og tímasetningar
á www.hreyfing.is
Pantaðu frían prufutíma á www.hreyfing.is
Innifalið:
• Þjálfun 3x í viku
• Club Fit æfingakerfið sem miðar að því að „ögra“ líkamanum
að komast út úr stöðnun og tryggja að þú komist í þitt allra
besta form
• Þátttakendur hafa aðgang að lokuðu svæði með fræðslu,
upplýsingum og uppskriftum frá Hreyfingu
• Þol- og styrktarmælingar – fyrir og eftir
• Ótakmarkaður aðgangur að tækjasal og opnum tímum
• Aðgangur að glæsilegri útiaðstöðu – jarðsjávarpotti
og gufuböðum
NÝTT
XL
Í kvikmyndinni XL leikur Ólafur Darri áfengis-
þyrsta þingmanninn, óstýrláta flagarann og fjöl-
skyldumanninn fyrrverandi, Leif Sigurðarson. For-
sætisráðherra, sem er vinur þingmannsins, rekur
hann í meðferð en sá stóri dómur veitir honum
fullkomna afsökun til þess að halda óstjórnlega gott
partí.
Á meðan partíið er í gangi kynnast áhorfendur
Leifi og gestum hans betur og eftir því sem þing-
maðurinn djúsar meira afhjúpast leyndarmálin hvert
á fætur öðru. Grátbrosleg og dramatísk fortíð hóps-
ins kemur upp á yfirborðið auk þess sem ástarsam-
band Leifs og hinnar tvítugu Æsu, sem er vinkona
dóttur hans, fær á sig skýrari mynd.
Aðeins þeim sem hafa aldur til að kjósa þingmann-
inn er boðið í partíið.
Ólafur Darri telur
víst að þingmaður-
inn Leifur sé
ómerkilegasta
persónan sem
hann hefur leikið.
Af músum...
Borgarleikhúsið frumsýndi Mýs
og menn um síðustu helgi. Jón
Páll Eyjólfsson leikstýrir þar Ólafi
Darra og Hilmari Guðjónssyni í
hlutverkum farandverkamann-
anna George og Lennie sem flakka
saman á milli vinnustaða. Verkið
byggir á hinni þekktu skáldsögu
Johns Steinbeck um örlög þessara
tveggja ólíku manna. Einfeldn-
ingsins Lennie og hins lífsreynda
George sem reynir að halda yfir
honum verndarhendi.
„Þetta er búið að vera sérlega
ánægjulegt,“ segir Ólafur Darri
um vinnuna í Borgarleikhúsinu.
„Ég hef unnið áður með Jóni Páli
sem leikara en aldrei sem leik-
stjóra og mér hefur einhvern veg-
inn fundist þetta alveg sérstaklega
skemmtilegt. Aðferð hans er við-
felldin. Reynir á en er alveg rosa-
lega gefandi. Það er gott að skapa
í þessum félagsskap þar sem ríkir
mikið ástríki.“
Of Mice and Men hefur oft verið
sett á svið og er kvikmynduð með
reglulegu millibili. Ólafur Darri
hefur séð útgáfuna sem leikarinn
Gary Sinise leikstýrði og lék Ge-
orge á móti John Malkovich í hlut-
verki Lennie. Annars hefur hann
haldið sig frá kvikmyndagerðum
sögunnar.
„Ég las bókina bara í mennta-
skóla á sínum tíma. Ég reyni oftast
að forðast að fara mikið og skoða
eitthvað svona þegar ég undirbý
mig fyrir hlutverk. Ég reyni bara
að einbeita mér að því handriti
sem mér er afhent. Það er svolítið
í genamengi leikarans að vilja ekki
herma eftir og um leið og maður
er búinn að sjá einhverja ákveðna
túlkun eða einhverja ákveðna leið
farna þá eru allar líkur á því að
maður þori ekki að fara þá leið.
Eða vilji það bara ekki þannig að
það er ofsalega þægilegt að ýta
þessu áreiti í burtu.“
...og sjálfhverfum mönnum
Síðar í þessum mánuði verður
kvikmyndin XL frumsýnd. Þar
fer Ólafur Darri með aðalhlut-
verkið auk þess sem hann er einn
framleiðenda. Marteinn Thorsson
leikstýrir en þeim varð vel til vina
þegar þeir gerðu Rokland saman
fyrir örfáum árum.
Í XL leikur Ólafur Darri þing-
manninn og fyllibyttuna Leif
Sigurðarson sem forsætisráðherra
skikkar til þess að fara í vímuefna-
meðferð. Áður en Leifur tekur
skellinn heldur hann nokkrum
vinum sínum matarboð þar sem
ýmislegt kemur upp á yfirborðið.
„Þetta eru svona um það bil eins
ólíkar persónur og hugsast getur,“
segir Ólafur Darri um barnslega
verkamanninn Lennie annars
vegar og þingmanninn Leif, hins
vegar. „Ég lagði líf og sál í XL sem
er reyndar mjög fyndið í ljósi þess
að ég held að manneskjan sem ég
leik í myndinni sé svona örugglega
í ógeðfelldari kantinum af þeim
manneskjum sem ég hef leikið.
Hann er fullkomlega siðblindur,
sjálfhverfur maður í fíkn og mjög
fáir hlutir fá pláss í lífi hans annað
en hann sjálfur,“ segir Ólafur
Darri og getur ekki neitað því að
það hafi verið skemmtilegt að leika
þessa ógeðfelldu persónu.
Óþolandi náungi
Ólafur Darri er einn framleiðenda
XL ásamt leikstjóranum Marteini
Thorssyni, Guðmundi Óskarssyni
og Ragnheiði Erlingsdóttur. Mar-
teinn leikstýrði Ólafi Darra í Rokl-
andi og þá varð þeim afskaplega
vel til vina. „Við höfum líka gert
eina stuttmynd saman og erum
meira eða minna innvinklaðir hvor
hjá öðrum í öllum þeim verkefnum
sem við erum að hugsa um. Mig
og Elmu Lísu leikkonu langaði
alltaf að gera mynd um alkóhól-
isma og Matti kveikti vel á þeirri
Framhald á næstu opnu
viðtal 17 Helgin 4.-6. janúar 2013