Fréttatíminn - 04.01.2013, Blaðsíða 31
hollan mat, hreyfa okkur og versla
inn hollan mat. Þó svo að mér finn-
ist þetta skemmtilegir hlutir og næ
þess vegna árangri veit ég að marg-
ir þola ekki að elda eða hreyfa sig.
En viljið þið sjá árangur þá er ekki
til nein töfrapilla ennþá sem lagar
það. Koma svo upp með eldmóðinn,
markmiðin og skipulagið. Gangi
ykkur vel, það gerir þetta enginn
annar fyrir ykkur.“
Æfðu fyrir lífið ekki núið
Einar Einarsson, íþróttafræðingur
og sjúkraþjálfari, hvetur fólk til
þess að hugsa aðeins lengra fram í
tímann. Einar segir það ekki skipta
miklu máli þó við höfum borðað
mikið yfir jólin og kannski gert
aðeins of vel við okkur. Það skipt-
ir mun meira máli hvað þú ert að
gera alla hina dagana. Hann vill
að fólk nálgist líkamsræktina með
öðru sjónarhorni. „Fyrirsögnin hér
að ofan vísar til þess að við ættum
kannski að hugsa aðeins lengra
fram í tímann. Það eru margar góð-
ar ástæður fyrir þvi að gera líkams-
rækt að lífsstíl, það er manninum
eðlislægt að hreyfa sig og það er svo
sannarlega þess virði. Við verðum
skapbetri, vinnum gegn lífstílssjúk-
dómum eins og of háum blóðþrýst-
ingi og sykursýki. Styrktarþjálfun
styrkir beinin, vöðva og liðumbún-
að og vinnur gegn beinþynningu.
Vð aukum orkuna því þjálfun eykur
bensínið sem til er á tankinum, okk-
ur gengur betur að stjórna þyngd-
inni og kynlífið verður betra.“
Flestir kannast við að þjálfunin
getur orðið leiðigjörn þegar á líður.
Einar segir mikilvægt að gera þjálf-
unina skemmtilega og fjölbreytta
svo við hættum ekki á miðri leið.
„Þetta atriði er mikilvægt þvi það
eru svo margir sem kaupa sér kort
og hætta svo eftir 2 vikur. Það eru
nokkrar leiðir til þess að auðvelda
sér þetta, til dæmis að finna sér æf-
ingafélaga, stunda hópíþrótt eða
hópleikfimi. Stundum er erfitt að
hafa sig af stað og maður þarf að
læra elska það sem maður hatar,
minna sig á hvað það er gott þegar
maður er kominn á æfinguna og
ekki láta letikallinn á vinstra eyr-
anu vinna baráttuna.“
Mikilvægt að vinna litla sigra
Einar segir að þeir sem vilji ná ár-
angri þurfi að gera meira heldur en
bara að mæta á æfingu. Þeir þurfi
líka að taka á og reyna bæta sig,
lyfta meira en síðast eða hlaupa
hraðar eða lengra. Það er mikil-
vægt fyrir þig að vinna litla sigra,
sjá árangur erfiðisins og þess vegna
skaltu fylgjast með eða láta mæla;
þolið, styrkinn og stökkkraftinn
á 6 vikna fresti til að sjá hvort þú
bætir þig. Það er svo ekki úr vegi
að nefnað hér miðað við fréttir síð-
ustu ára að það er hvíldin sem skilar
þjálfáhrifum og mikið er ekki betra
þannig að þjálfun sem leiðir til ör-
mögnunar og of mikils niðurbrots
er beinlinis skemmandi fyrir vöðva
og liði og þú bætir þig ekki. Ef þú
æfir fyrir lífið viltu gæði, gleði og
árangur af þjálfuninni. Þú ætlar
nefnilega að mæta í ræktina i mörg
ár í viðbót. Allar ferðir byrja á fyrsta
skrefinu, settu upp góða ferðaáætl-
un sem hentar þér til betri heilsu og
leggðu af stað.“
Bjarni Pétur Jónsson
ritstjorn@frettatiminn.is
Einar Einarsson sjúkraþjálfari
ásamt Kolbeini Sigþórssyni og
Alfreð Finnbogasyni
Hvað getur NutriLenk
gert fyrir þig?
Liður með slitnum
brjóskvef
Heilbrigður liður
NÁTTÚRULEGT
FYRIR LIÐINA
Verkjalaus og svaf
eins og engill
Á einhverjum tímapunkti ákvað ég
að hætta að taka inn NutriLenk, mér
leið svo vel - verkjalaus og svaf allar
nætur eins og engill en eftir nokkra
daga fann ég fyrir gamalkunnum
verkjum og var ég fljót að byrja aftur
að taka inn NutriLenk.
Nú tek ég NutriLenk Gold að staðaldri,
3 töflur á dag eða fleiri – því þar sem
mér finnst gaman af allri útiveru og
fer til dæmis í golf, göngur og sund þá
þarf ég að “hlusta” á líkamann og taka
fleiri töflur þá daga sem ég er í meiri
hreyfingu – allt upp í 5 töflur á dag.
Nutrilenk Gold hefur reynst mér hin
besta heilsubót og undravert hversu
vel það virkaði eftir aðgerðina.
Frábært að hægt sé að endurbæta
liðheilsuna með náttúrulegu efni og
get ég svo sannarlega mælt með
Nutrilenk Gold.
Anna K Ágústsdóttir
Endurheimt liðheilsa
og laus við lyfin!
Fyrir 3 árum gekkst ég undir liðskiptaaðgerð á mjöðm, hafði ég þurft
að taka inn gigtarlyf í 5 ár þar á undan vegna slitgigtar í báðum mjöð-
mum og hálsliðum. Eftir aðgerðina var ég í tiltölulega stuttan tíma
á sterkum verkjalyfjum því ég byrjaði meðfram þeim að taka inn
Nutrilenk og fann ég fljótt fyrir mun betri líðan.
NutriLenk er fáanlegt í flestum apótekum, heilsubúðum,
Fræinu Fjarðarkaupum, Hagkaup, Krónunni, Þín verslun Seljabraut
og Vöruvali Vestmanneyjum
NUTRILENK
NÁTTÚRLEGT BYGGINGAREFNI FYRIR BRJÓSKVEFINN
Skráðu þig á facebook síðuna
Nutrilenk fyrir liðina
- því getur fylgt heppni!
P
R
E
N
T
U
N
.IS
Nánari upplýsingar á www.gengurvel.is
Við mikið álag og með árunum getur brjósk-
vefurinn rýrnað sem veldur því að liðirnir
slitna. Þetta er náttúrulegt ferli. Mjög margir
finna fyrir miklum óþægindum þegar beinin
byrja að núast saman, sérstaklega í liðamótum
eins og í mjöðmum, hryggjar og hnjáliðum.
Þess vegna er allt til vinnandi að styrkja
liðbrjóskið á náttúrulegan hátt.
Náttúrulegt byggingarefni fyrir
liðbrjóskið og beinin
NutriLenk inniheldur náttúrulegt byggingarefni
fyrir brjóskvefinn og er mjög góður valkostur
fyrir þá sem þjást af minnkuðu liðbrjóski. Unnið
úr sérvöldum fiskibeinum úr hafinu sem hefur
sýnt fram á að vera fyrsta flokks byggingarefni til
að styðja við brjóskvefinn og viðhalda honum.
NutriLenk hefur hjálpað fjölmörgu fólki.
NutriLenk er 100% náttúruleg vara sem er mjög
gagnleg þeim sem þjást af brjóskvefsrýrnun.
Prófið sjálf-upplifið breytinguna!
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands kynnir:
Þín heilsa – þín skemmtun
Landskeppni
í hreyfingu
ÍS
LE
N
SK
A
/S
IA
.I
S
/I
SI
6
24
09
1
2/
12
Skráðu þig
Skráning og nánari upplýsingar á:
www.lifshlaupid.is
Lífshlaupið
byrjar 6. febrúar!