Fréttatíminn - 04.01.2013, Blaðsíða 32
4 heilsa Helgin 4.-6. janúar 2013
Síðumúla 6, 108 Rvk, sími 568 3868
www.matarfikn.is
Esther Helga Guðmundsdóttir M.Sc.
Glímir þú við stjórnleysi í áti og þyngd!
Þá gætir þú átt við matar- eða sykurfíkn að stríða.
Næstu byrjendahópar hefjast 07.01.13. og 28.01.13.
Framhaldshópar hefjast í byrjun janúar.
Einstaklingsmiðuð meðferð hjá MFM matarfíknarmiðstöðinni innifelur:
• Fræðslu um offitu, matar/sykurfíkn og átraskanir; orsakir og afleiðingar.
• Ráðgjöf og kynningu á leiðum til lausna, m.a. 12 spora bataleiðinni.
• Einstaklingsmiðaða meðferð og stuðning í meðferðahópum og einstaklingsviðtölum.
• Leiðbeiningu um breytt mataræði og stuðning við fráhald.
• Matreiðslunámskeið; lært að elda fyrir nýjan lífstíl.
www.matarfikn.is
Frá skjólstæðingum MFM miðstöðvarinnar:
„Meðferðin hjá MFM hefur bjargað lífi mínu, hún er einstök og nálgast offituvandann og átraskanir út frá sjónarhorni fíknar.
Vonandi lifir og stækkar MFM módelið í réttu hlutfalli við vandann sem er við að etja í samfélaginu“.
„Frábært starf og ánægður með þá elsku og umhyggju sem skín í gegn frá ykkur sem starfið þarna :-)“.
Það sem við bjóðum uppá í vetur:
· 12 vikna meðferð fyrir nýliða og þá sem þurfa að komast í „fráhald“. Meðferðin hefst með
helgarnámskeiði og síðan tekur við daglegur stuðningur við matarprógramm, vikulegir meðferðarhópar,
fyrirlestrar og kynningar m.a. á 12 spora starfi.
· Fráhald í forgang: 16 vikna framhaldsnámskeið fyrir þá sem hafa lokið 12 vikna meðferðinni og vilja
áframhaldandi stuðning og dýpri vinnu.
· Innra særða barnið. 16 vikna námskeið fyrir þá sem hafa verið í 12 spora vinnu og/eða lokið „Fráhald í
forgang“ námskeiði. M.a. unnið eftir bókinni „Heimkoman“ eftir John Bradshaw.
· 9 mánaða framhaldshópa sem hittast einu sinni í mánuði. Þessir hópar eru hugsaðir sem stuðningur við
fráhald og 12 spora starf.
· Einstaklings- og dáleiðsluviðtöl hjá Esther Helgu Guðmundsdóttur, matarfíknarráðgjafa og
dáleiðslutækni.
· Einstaklingsviðtöl hjá Lilju Guðrúnu Guðmundsdóttur, matarfíknarráðgjafa.
Áhugasamir hafi samband í síma 568 3868 eða sendið póst á matarfikn@matarfikn.is
Velkomin á fræðslu- og kynningarfund
miðvikudaginn 9.01.13. kl. 20.00, í Síðumúla 6.
KAUPTU FJÓRAR
FÁÐU SEX
Mataræði Heilbrigðar venjur
Engar skyndilausnir
– breyttu lífsstílnum
Elísabet Margeirsdóttir næringarfræðingur ráðleggur bæði einstaklingum og hópum um heilsusam-
legt mataræði og líferni. Hún ræður fólki frá því að sóa peningum í skyndilausnir.
e lísabet Margeirsdóttir er næringarfræðingur og starfar sem slíkur í fyrir-
tæki sínu, Betanæring. Hún
segir það nauðsynlegt fyrir alla
að temja sér einhverjar heil-
brigðar venjur á hverjum degi.
Þær geta dregið úr líkum á alls
kyns lífsstílssjúkdómum og
þyngdaraukningu. „Þeir sem
hafa sett sér það markmið að
léttast á nýju ári þurfa að hafa
þau markmið raunhæf og láta
skynsemina ráða ríkjum til
að ná þeim. Það er til dæmis
óraunhæft fyrir flestalla að
missa meira en eitt kíló á viku.
Ýmsir heilsugúrúar leggja
sig alla fram við að auglýsa
nýjustu kúrana, hreinsanir og
töfrafæðu. Þeir keppast við að
skapa sér sérstöðu með ótrú-
legum skyndilausnum. Einnig
er árangri lofað á nokkrum
vikum eða jafnvel dögum og
fjölmargar dæmisögur eiga að
styðja þær fullyrðingar. Netið
er uppfullt af upplýsingum og
ráðum um mataræði en þessi
gömlu góðu grundvallaratriði
ekki áberandi. Ráðleggingar
eins og að borða hæfilega stóra
skammta eða fimm ávexti og
grænmeti á dag virðast ekki
vera í tísku.“
Góðir hlutir gerast hægt
Þegar til stendur að umbylta
mataræðinu í skamman tíma
er mjög líklegt að allt verði
komið í sama horfið þegar
fólk fer að borða líkt og það
gerði áður. Hún hvetur fólk
til að fara sér hægt og gera
litlar breytingar í einu sem
fólk geti hugsað sér að halda í
það sem eftir er. „Litlir hlutir
eins og að minnka bakkelsið í
kaffitímanum, sleppa gosinu
með kvöldmatnum og auka
við grænmetisskammtinn
nokkrum sinnum í viku getur
haft heilmikið að segja. Allar
breytingar þurfa heldur ekki að
gerast á sama tíma. Hægt er að
taka nokkur atriði fyrir í hverri
viku eða mánuði og sjá góðan
og varanlegan árangur. Hreyf-
ing og styrktarþjálfun er síðan
lykilatriði fyrir bættri líðan og
bættum lífsgæðum af mörg-
um ástæðum. Einn jákvæður
fylgikvilli hreyfingar er aukinn
vöðvamassi sem eykur grunn-
brennslu líkamans og auðveld-
ar fólki að grennast.“
1. Skipta sykruðum og orku-
ríkum drykkjum út fyrir
vatn.
2. Takmarka sælgæti, bakk-
elsi og ís við sérstök til-
efni.
3. Velja oftar óunnin matvæli
og sjaldnar matvæli með
langa innihaldslýsingu.
4. Borða að minnsta kosti 5
skammta af ávöxtum og
grænmeti á dag.
5. Elda hollan og einfaldan
mat öll kvöld vikunnar og
takmarka kaup á skyndi-
bita.
6. Bæta við trefjum í mat-
aræðið með því að velja
frekar heilkorna vörur og
brauð.
7. Aldrei sleppa hollum og
næringarríkum morgun-
verði eins og til dæmis
hafragraut með ávöxtum
eða eggi á heilkorna
brauðsneið.
8. Borða fiskmáltíð að
minnsta kosti tvisvar í
viku.
9. Taka lýsi á hverjum degi.
10. Bíddu í 15 mínútur þar til
þú ætlar að fá þér aftur á
diskinn.
Framandi skyndi-
lausnir eru yfirleitt
of góðar til að vera
sannar og alltof margir
sóa peningum og
dýrmætum tíma í
slíkt. Það kostar mikla
vinnu, tíma og þolin-
mæði til að ná varan-
legum árangri. Ef
einhverjar af þessum
lausnum virkuðu sem
skyldi þá væru líklega
fleiri hraustir og
spengilegir.
Elísabet Margeirsdóttir tók til 10 atriði sem við ættum að tileinka okkur á nýju ári.