Fréttatíminn - 04.01.2013, Qupperneq 34
S ólveig, eða Solla eins og landsmenn þekkja hana, hefur skapað sér gott orð fyrir matreiðslu á heilsusam-
legum og hollum mat. Hún starfar sem
yfirkokkur og matarhönnuður á veitinga-
staðnum Gló. Hún segir tilvalið fyrir fólk að
breyta til í mataræðinu í byrjun árs. Flestir
eru búnir að borða yfir sig yfir hátíðirnar
og langar að passa aftur í fötin. „Ég hef
meiri trú á að gera þetta skynsamlega og
borða svona létt mataræði í stað þess að
fara, til dæmis á safakúra. Það má kannski
segja að þetta sé ágætis hreinsun svona
eftir jólin. Með þessu móti ertu að fá alla
næringu inn og það hjálpar þér að komast á
núllpunkt aftur.“
Hún vann með leikaranum Ben Stiller
síðastliðið sumar og segir stjörnuna hafa
verið mjög ánægða með matinn. „Það er
sniðugt að nota þetta sem beinagrind. Ég
lærði rosalega mikið af því að vera einka-
kokkur fyrir Ben Stiller í sex vikur síðast-
liðið sumar. Hann vaknaði eldsnemma
á morgnana og var að fram eftir kvöldi.
Galdurinn að hans mati var að hann hafði
grunninn í lagi og í mataræðinu hjá honum
voru grænu safarnir lykilatriði. Hann borð-
aði alltaf vel af salati og hlakkaði alltaf jafn
mikið til að fá bakaða grænmetið á kvöldin.
Það eru vingjarnlegri kolvetni heldur en
þau sem við höfum fengið alveg nóg af yfir
hátíðirnar.“
Solla leggur til Chiagraut á morgnana
ásamt grænum sjeik. Í hádeginu og á
kvöldin er grænmeti í aðalhlutverki en hún
mælir með því að fólk reyni að finna það út
sjálft hvað henti því best. Ef fólk vilji borða
fisk eða kjöt með er það auðvitað sjálfsagt.
„Ég er með grautinn á morgnana því hann
gefur svo góða fyllingu. Fólk getur líka
aðlagað hann að sér. Ef það vill hann sætari
er bara hægt að bæta við aðeins meira
af berjum. Hann er því mjög þægilegur.
Grænu djúsarnir eru líka svo þægilegir. Þá
erum við að koma í veg fyrir þetta aukanart
eins og til dæmis pylsurnar, snakkið eða
súkkulaðið. Svo getur fólk auðvitað bara
borðað venjulegan mat þess á milli ef það
vill. Það er bara lykilatriði að vera með
mikið af góðu grænmeti með. Aðalgaldur-
inn er að finna sjálfur hvernig maður vill
hafa þetta.“
6 heilsa Helgin 4.-6. janúar 2013
„Ég var búin að taka eftir auglýsingum frá Heilsuborg í þó
nokkurn tíma og var búin að vera að hugsa lengi um að
fara að gera eitthvað í mínum málum. Ég hef náð góðum
árangri, náð að losna við mörg kíló og er bara svo miklu
hressari og með miklu meiri orku. Maður verður að vilja
gera þetta fyrir sig sjálfan. Þetta snýst ekki um það að
megra sig þetta snýst um að lifa heilbrigðara lífi og koma
sér í gott líkamlegt og andlegt form.“
Helga Einarsdóttir
Vilt þú fá meira út úr lífinu?
Heilsuborg er með lausnina fyrir þá sem vilja læra að lifa heilbrigðu lífi!
Heilsuborg ehf. • Faxafeni 14 • 108 Reykjavík
Sími 560 1010 • www.heilsuborg.is
Heilsulausnir
Hentar þeim sem eru í ofþyngd og eru búnir
að prófa „allt“ án árangurs og vilja tileinka sér
heilbrigðan lífsstíl til langframa.
Mán., mið. og fös. kl. 6:20, 10:00, 14:00 eða 19:30
Verð kr. 16.900 á mánuði í 12 mán.
Hefst 21. janúar.
Stoðkerfislausnir
Hentar einstaklingum sem glíma við einkenni
frá stoðkerfi svo sem bakverki, verki í hnjám
eða eftirstöðvar eftir slys.
Mán, mið. og fös. kl. 15:00 eða 16:30
Verð 3x í viku, 8 vikur, kr.19.900 pr. mán.
(Samtals kr. 39.800)
Hefst 14. janúar.
Orkulausnir
Hentar þeim sem vilja byggja upp orku
t.d. vegna vefjagigtar eða eftir veikindi.
Þri. og fim. kl. 10:00 eða 15:00
Verð 2x í viku, 8 vikur, kr. 16.900 pr. mán.
(Samtals kr. 33.800)
Hefst 15. janúar.
Hjartalausnir
Hentar einstaklingum sem hafa greinst
með áhættuþætti hjartasjúkdóma, eru með
kransæðaþrengingu eða hafa fengið hjartaáfall.
Kennsla: Þri. og fim. kl. 07:00 eða 10:00
Verð 2x í viku, 8 vikur, kr. 16.900 pr. mán.
(Samtals kr. 33.800)
Hefst 15. janúar.
Morgundrykkur:
Eitt glas af sítrónuvatni: 1 1/2 dl
vatn, safi úr ¼ límónu í hvert glas.
Svo fáum við okkur 1 matskeið
af hörfræolíu og loks eitt
glas af grænum sjeik.
Grænn sjeik: 1/2 agúrka,
2 sellerístönglar, 1 hnefi
spínat, 2 msk ferskur
kóríander, ½ límóna,
3 cm engiferrót, 3 dl
vatn, 1 avókadó, 1 tsk
möluð chiafræ og eitt
límónulauf.
Morgunmatur:
Chiagrautur:
2 msk chiafræ, lagt
í bleyti yfir nótt.
Um morguninn
er þetta hrært
saman við:
1 msk hampfræ, 1
msk tröllahafrar, 1
tsk kakónibs, nokkur
mórber og
mjólk, möndlumjólk, haframjólk,
hrísmjólk eða bara venjuleg lífræn
mjólk.
Millimáladrykkir:
Jurtate eða eitt glas af sítrónuvatni.
Hádegismatur:
Salat, vænn diskur af alls konar
grænmeti og svo má hafa smá fisk-
eða kjötbita út á eða þurrkex með
hummus.
Millimál:
Tilvalið að nýta græna sjeikinn frá
því um morguninn. Það er hægt að
bæta í hann til dæmis 1 msk lucuma,1
tsk maca og 1 dl af berjum ferskum
eða frosnum. Þetta er svo allt
sett í blandarann og blandað
saman.
Kvöldmatur:
1/3 diskur grænt salat
2/3 diskur bakað eða
steikt grænmeti eða
grænmetissúpa eða
hráfæðiréttur. Með þessu er
gott að fá sér þurrkex með hummus
eða pesto. Hér má auðvitað hafa smá
fiskbita eða kjötbita með fyrir þá sem
vilja. Gott að kaupa sér góða mintu-
olíu og eiga í vasanum og setja dropa
á tunguna á sér til að hressa sig við og
einnig ef að manni sækir löngun í eitt-
hvað sem ekki er á matseðlinum.
Myndir Hari
MatSeðillinn SeM Ben Stiller fór eftir í SuMar
Góð byrjun á nýju ári
Sólveig Eiríksdóttir setti saman þægilegan matseðil sem hún segir henta öllum sem vilja breyta
til í mataræðinu á nýja árinu. Hún segir þetta vera góðan grunn fyrir alla og fólk geti svo
aðlagað hann að sínum þörfum.
Nýársmatseðill: