Fréttatíminn - 04.01.2013, Síða 58
Í takt við tÍmann maren Freyja Haraldsdóttir
Hefur séð alla Survivor-þættina
Maren Freyja Haraldsdóttir er 26 ára Reykjavíkurmær sem nýlega er flutt aftur heim eftir tveggja ára dvöl í Düsseldorf. Þar í borg vann hún hjá American
Apparel en nú starfar hún hjá Kronkron. Maren er mikill aðdáandi raunveruleikasjónvarps.
Staðalbúnaður
Fatastíllinn minn er afslappaður en fágaður. Mér finnst mjög skemmtilegt að klæða mig
í litrík föt. Ég er ekki með neina reglu á því hvar ég kaupi föt, ég reyni bara að leita
uppi gersemar í hinum og þessum búðum. En ég er ömurleg í að finna „vintage“ föt,
ég hef aldrei haft augu né þolinmæði í það. Ég er mjög hrifin af Kron by Kronkron
klútnum mínum. Hann er úr hundrað prósent silki og er alveg æðislegur. Hann er
svo ofboðslega stór að maður getur notað hann líka sem kjól. Ég reyni líka alltaf
að vera í einhverju handgerðu, við fjölskyldan stundum mikið hannyrðir. Nú er
ég með mjög síðan trefil sem Steven West, vinur minn, prjónaði. Hann er sann-
kölluð rokkstjarna í prjónaheiminum. Mér finnst flestir hælaskór óbærilegir og
ég held að margar konur séu mér sammála. En Chie Mihara skórnir mínir eru
hannaðir af stoðtækjafræðingi og eru ofboðslega þægilegir. Ég tók tólf tíma
vakt á þeim um daginn og það gekk mjög vel.
Hugbúnaður
Þegar ég fer út að skemmta mér fer ég oftast á Dollý enda rekur
Óli Hjörtur, meðleigjandi minn, staðinn. Þegar ég fer á kaffihús
fer ég á Prikið, þar líður mér vel. Ég og Gauti, vinur minn,
sjáum líka um bingókvöld á Prikinu, ég hef mikinn áhuga
á lottói og bingói. Sérstaklega þegar það eru peningar í
spilinu. Ég horfi mikið á sjónvarp og er alveg sérstak-
lega veik fyrir raunveruleikaþáttum. Það byrjaði
með Survivor og ég held að ég hafi séð alla þætti
frá upphafi. Ég smita líka fólk í kringum mig af
þessum áhuga. Þessa dagana horfi ég mikið
á Inkmasters enda gaf Ragga systir mér
tattú í jólagjöf. Inkmasters eru svipaðir
og Masterchef nema bara með tattú-
liði. Dave Navarro er stjórnandinn
og mér hefur alltaf fundist hann
fyndinn. Svo horfi ég líka alltaf á
Dexter og Downtown Abbey sem eru
æðislegir. Ég dett alveg inn í „lingóið“ og
finnst ég verða einn af karakterunum þegar ég
horfi.
Vélbúnaður
Tölvan mín gafst alveg upp um daginn en ég fann pínulitla Dell-tölvu
undir rúmi hjá systur minni sem ég „sneikaði“ heim til mín. En ég
splæsti í iPhone, fimmuna, og hann hefur aldeilis breytt lífi mínu.
Mér finnst geðveikt að vera með internetið í vasanum og geta alltaf
komist til botns í málunum. Mér finnst ofboðslega leiðinlegt að
rökræða. Ég spila líka tölvuleiki á símanum en besta appið er
Sleep Time. Þetta er vekjaraklukka en þú hefur símann við
hliðina á þér og hann skynjar svefninn þinn. Svo þegar
þú vaknar sérðu graf yfir svefninn. Og hringingin er
fuglasöngur sem vekur mann inn í drauminn. Mér
finnst ég alveg vera tíu prósent ferskari þegar ég
vakna. En þetta myndi líklega ekki virka ef ég
væri ekki einhleyp.
Aukabúnaður
Mér finnst gaman að borða með fólki og elda eigin-
lega aldrei eitthvað bara fyrir mig. Við einhleypu vin-
konurnar höfum stundum gripið til þess ráðs að hringjast
á og kanna hvað er til í ísskápunum. Svo hittumst við og möllum
eitthvað úr því sem við eigum. Það kemur oft eitthvað skemmtilegt út úr
því. Svo finnst mér rosa gaman að búa til Gyoza. Ég lærði að búa það til
þegar ég heimsótti bróður minn til Japans. Það er mjög gaman að hitta
fólk og allir taka þátt í að gera Gyoza. Ég hef aldrei tekið bílpróf. Ég fór í
Ökuskólann og ökutíma en fór svo aldrei í prófið. Ég ólst að hluta til upp
í Bandaríkjunum og ber sterkar taugar þangað. Tokyo er líka í miklu
uppáhaldi hjá mér. En ég er ofboðslega ánægð að vera á Íslandi núna.
Eftir að ég flutti heim finnst mér allir vera á sömu bylgjulengd og ég
og mér finnst ég eiga mikið af skemmtilegum vinum.
Maren Freyja í klútnum sínum frá Kron by Kronkron og
með trefilinn sem Steven West prjónaði. Systir Marenar á
Knitting Iceland og hefur Maren oft unnið með henni að
myndatökum og ýmsum verkefnum. Ljósmynd/Hari
48 dægurmál Helgin 6.-6. janúar 2013