Fréttatíminn


Fréttatíminn - 15.02.2013, Blaðsíða 30

Fréttatíminn - 15.02.2013, Blaðsíða 30
samt búinn að vera helvíti strangur. Við byrjuðum að æfa Grjótið í ágúst, svo fór ég í Bastarða uppi í Borgarleikhúsi og svo í Macbeth, þannig að þetta er fjórða verkið á vetrinum og það teljum við nú gott. Þetta er alltaf vertíð í þessum bransa en það er vissulega búin að vera mikil keyrsla á þessu ári en ég er ekkert þreyttur. “ Hilmir Snær er einn ástsælasti leikari þjóðarinnar. Ferill hans er orðinn langur og glæsilegur, bæði á sviði og í kvikmynd- um. Hann þykir hafa verið í fantaformi undanfarið en hvað heldur hann sjálfur? Er hann að toppa á ferlinum núna? „Ég ætla að vona að ég sé ekki að toppa núna. Þá er bara leiðin niður eftir,“ segir Hilmir. „Ég veit það ekki en maður er von- andi farinn að kunna eitthvað meira en maður gerði áður. Ég held að það sé nú alltaf málið.“ Stöðug dagdrykkja Johnny Byron drekkur dagana langa en Hilmir getur ekki leyft sér að elta persón- una í þeim efnum og hefur lítið látið sjá sig á börum. „Það er nú voðalega lítið þegar maður er með svona mikið í gangi. Enda er það bara ágætt. Að klára bara vertíð- ina fyrst...,“ segir Hilmir og hlær prakk- aralega. „Þegar maður er með mikinn texta og svona mikla vinnu þá þýðir ósköp lítið að vera óskýr í kollinum. Maður getur samt fengið sér eina og eina rauðvín með matnum og svona. Þegar maður á smá frí.“ Önnur lögmál gilda um Johnny. „Hann drekkur allan daginn, tekur spítt og kók. Reykir gras og allt það sem fólk á ekki að gera. Ungdómurinn í bænum safnast að honum sem og gamlir félagar sem eru í kringum hann og lifa svolítið á honum. Hann kallar þetta stundum rottur. En það er gaman að vera í kringum Johnny. Hann er mikill sögumaður og við vitum svosem ekki alltaf hvort hann er að ljúga eða segja satt, enda skiptir það ekki öllu máli þegar góð saga er á ferðinni. Hann er gleðimaður og það er greinilega alltaf stuð í hans félagsskap.“ Baráttan við normið Fyrirheitna landið hverfist þó um annað og meira en óreglu og sukk. „Ég held samt sem áður að dópið og drykkjan sé einhvern veginn ekki aðalmálið í verkinu. Þetta snýst ekki beinlínis um það,“ segir Hilmir. „Auðvitað er hann svoleiðis mað- ur. Og þessir krakkar sem eru í kringum hann eru svolítið svoleiðis fólk þótt þau séu kannski meira að djamma um helgar og þannig. En þetta snýst kannski meira bara um baráttu hans fyrir að fá að vera sá maður sem hann er. Á þeim stað sem hann er,“ segir Hilmir um Johnny sem er af því sauðahúsi sem fólk vill alla jafna losa sig við og sem minnst vita af. „Í nú- tímasamfélagi finnst okkur við alltaf þurfa að losa okkur við fólk sem vill ekki alveg lúta sömu lögum og við sjálf. Við viljum ekki sjá til dæmis sígauna og fólk sem lifir á jaðrinum. Johnny er í þessari stöðu. Leikurinn gerist á afmæli Elísabetar drottningar. Hátíðarhöld eru í aðsigi og þetta er eiginlega síðasti dagurinn hans þar sem hann er óhultur á þessum stað. Við sjáum ferli hans vera að ljúka þannig að ég held að þetta sé meira um baráttuna milli normsins, innan gæsalappa „venju- lega fólksins“, og jaðarfólksins. Innan gæsalappa vegna þess að svo kemur í ljós að venjulega fólkið er með margt undir Úrvalið er í Útilíf Láttu hart mæta hörðu Nú eru hjálmadagar í Útilíf, 20% afsláttur af öllum skíða- og brettahjálmum. Á R N A S Y N IR E ftir heilmikið villuráf um mannlausa ranghala Þjóð-leikhússins finnst Hilmir Snær á stóra sviðinu þar sem búið er að koma fyrir gamalli rútu í heilu lagi. Miðpunkti glæsilegrar leikmyndar verksins Fyrirheitna landið–Jerúsalem eftir Jez Butter- worth. Hilmir Snær fer með aðalhlut- verkið í sýningunni sem verður frumsýnd um næstu helgi. Óhætt er að segja að sýningin muni hvíla á herðum leikarans sem verður á sviði allan tímann í hlutverki upp- reisnarmannsins og flækingsins Johnny Byron. Hilmir Snær er greinilega vel heima í umhverfinu sem leik- myndahönnuðurinn Finnur Arnar Arnarson hefur skapað. Fúlskeggj- aður og dálítið rustalegur fellur leikarinn mjög eðlilega inn í sviðs- myndina. En af hverju allt þetta skegg? Er hann að elta skeggtísk- una sem nú er alls ráðandi? „Nei. Þetta er Johnny Byron- skeggið. Maður leggur þetta á sig í óþökk margra,“ segir Hilmir og hlær. „Johnny er svolítið villtur karakter og þá er gaman að vera svolítið ljótur. Hann er ekki bein- línis umhirðusemin holdi klædd. Þannig að það er fínt að vera svolítið druslulegur, svo er þetta voðalega þægilegt yfir veturinn.“ Bjartur, Megas, Mussolini og Hilmir „Johnny er svolítill „white trash“- gaur en það er einhver sígauni í honum líka,“ segir Hilmir þegar hann heldur áfram að tala um persónuna sem hefur tekið sér bólfestu í höfði hans þessi dægrin. „Þetta er náungi sem hefur ferðast á milli bæja á rútunni sinni og býr þar sem honum líður vel hverju sinni. Hann er reyndar búinn að vera svolítið lengi hérna, í útjaðri bæjarins, og fólk vill fara að losna við hann. Hann hefur svolítið strandað þarna, eins og kannski í lífinu sjálfu. Hann er svona an- arkisti sem hefur sagt sig svolítið úr samfélagi mannanna. Neitar bara að lifa samkvæmt einhverj- um stöðlum og normum en á móti kemur að hann verður svolítið eftir á vissan hátt líka.“ Eins og lýsingar leikarans benda til hlýtur Johnny að vera persóna sem gaman er að eiga við. „Þetta er mjög skemmtileg týpa. Ætli hann sé ekki blanda af Bjarti í Sumarhúsum, Megasi, Mussolini og mér. Maður verður nú alltaf að setja eitthvað af sjálfum sér svona með,“ glottir Hilmir. „En það er ekki mikið af mér þarna. En eitt- hvað þó.“ Hilmir hefur haft í nógu að snúast á leikárinu og í kolli hans hafa ýmsar persónur fengið að leika lausum hala. Hann lék blóði drifinn Bancquo í Macbeth, bregður sér enn í ýmissa kvikinda líki í Með fulla vasa af grjóti og nú er röðin komin að Johnny Byron að taka sviðið. Þá lék hann einnig með Vesturporti í Bastörðum á síðasta ári. „Macbeth er nú dottið út þannig að nú eru það Með fulla vasa af grjóti og Fyrirheitna land- ið. En þetta er ekkert sem maður lifir ekki af og svo er maður bráð- um kominn í frí á daginn. Þetta er eiginlega bara búið í vetur sem er Veturinn hefur verið annasamur hjá leikaranum Hilmi Snæ Guðnasyni. Hann hefur verið á fleygiferð með Stefáni Karli Stefánssyni í verkinu Með fulla vasa af grjóti, hann tróð upp með Vesturporti í Bastörðum, fór mikinn, baðaður blóði, í Macbeth og lýkur nú vetrinum í hlutverki utangarðsmanns og fyllibyttu í Fyrirheitna landinu. Ólíkt þeirri persónu hefur hann haft lítinn tíma til að djamma og djúsa en sér fram á gott og langt sumar með hestunum sínum. Hestamennskan er hans jóga, jafnvel þegar hann er bara að moka skítinn. Úr blóðbaði í sukk og svínarí Þegar maður er með mikinn texta og svona mikla vinnu þá þýðir ósköp lítið að vera óskýr í koll- inum. Maður getur samt fengið sér eina og eina rauðvín með matnum og svona. 30 viðtal Helgin 15.-17. febrúar 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.