Fréttatíminn - 15.02.2013, Qupperneq 35
SJÁÐU ÍSLAND OG KÍNA
TEFLA UM HELGINA
Landskeppni Íslands og Kína í skák fer fram
í Arion banka, Borgartúni 19, helgina 16.–17.
febrúar frá kl. 13 til 17.
Spennandi atskákir. Kínverskir ofurstórmeistarar,
skákdrottningar og undrabörn. Goðsögnin Friðrik
Ólafsson í íslenska liðinu ásamt stórmeisturum og
efnilegustu ungmennum landsins.
Verið hjartanlega velkomin - kaffi á könnunni.
Skáksamband Íslands (SÍ) og
Kínversk íslenska menningarfélagið
(KÍM) standa að landskeppninni í
samvinnu við Skáksamband Kína,
og með stuðningi Arion banka, CCP,
Promens, Icelandic og Elkem Ísland.
Móðir Birgittu, tónlistar- og baráttukonan
Bergþóra Árnadóttir, er af mörgum er talin hafa
rutt brautina fyrir konur í tónlist. Bergþóra lenti í
bílslysi fyrir um 19 árum og brotnaði á úlnliðum.
Vegna slyssins gat hún lítið spilað. Hún fór í
gegnum erfið veikindi í kjölfarið. „Ef þú tekur
svona „museið“ burt frá einhverjum þá deyr eitt-
hvað í þeim,“ útskýrir Birgitta.
Aðstandendur Bergþóru halda árlega minningar-
tónleika henni til heiðurs og er áhersla lögð á að fá
nýtt tónlistarfólk til þess að flytja tónlist hennar og
halda minningu hennar þannig á lífi. Tónleikarnir
verða haldnir í Salnum í Kópavogi í kvöld og í Hofi
á Akureyri annað kvöld.
Skömmu eftir atvikið flutt-
ist Birgitta því ásamt Bergþóru
móður sinni til Danmerkur í
einangrun.
„Ég hringdi ekki í neinn og
skrifaði bara sendibréf. Ég sinnti
sköpuninni fyrst og fremst. Þetta
var erfitt en gefandi tímabil og ég
kom til baka frá því að vera mann-
eskja sem hataði sjálfa sig til þess
að vera manneskja sem elskaði sig
en það að elska sig er grunnfor-
senda þess að geta elskað aðra.“
Birgitta kom heim til Íslands full
eldmóði og hugðist tileinka líf sitt
listinni og skrifum. Hún hafði alist
upp við sterkar skoðanir móður
sinnar á samfélaginu og bjó að
kraftinum sem hafði einkennt móð-
ur hennar og listafólk þess tíma.
„Þá þótti mjög mikilvægt að
tónlistarfólk og annað listafólk
hefði sterkar skoðanir á samfé-
laginu sínu. Listamenn eru í eðli
sínu aðgerðarsinnar því þeir færa
til ríkjandi viðmið og opna sýn.
Sjálf ætlaði ég alltaf að vera skáld,
og ætla ennþá,“ segir Birgitta.
Hún útskýrir að orðið sjálft fylli
hana lotningu og hún beri mikla
virðingu fyrir skáldum og rithöf-
undum.
„Ég var svakalega dramatísk
á þessum ungskáldatíma. Talaði
alveg löturhægt og meðvitað, eins
og gamall kall. Allt sem kom út
úr mér var yfirfarið og ritskoðað.
Vinir mínir voru allir í að selja
ljóðabækurnar sínar á kaffihúsum
og ég man ég gat ekki hugsað mér
það að selja barnið mitt með þeim
hætti,“ segir Birgitta með miklu
látbragði og hlær. „Ég sagði alltaf
að fyrsta bókin mín kæmi út hjá
stærstu bókaútgáfunni á Íslandi
og það stóðst. Ég fékk loksins út-
gefna bók og var jafnframt yngsta
skáldið í Skólaljóðum. Ég man
hvað mamma var stolt, enda gerði
hún lag við ljóðið mitt. Hún notaði
nefnilega Skólaljóðin mikið í sinni
tónlistarsköpun. Það er eitthvern
veginn þannig að ef þú tekur
ákvörðun um eitthvað rétt og
stendur með henni þá gerist það.
Þetta hefur einkennt allt líf mitt.“
Birgitta hætti fljótlega í námi og
lauk því ekki framhaldsskólaprófi.
„Ég var ekki að fá það út úr nám-
inu sem ég vildi. Ég þoldi ekki að
þurfa að taka aukalega algebru
og eitthvað sem ég hataði. Ég skil
þá aðferð ekki fyllilega ennþá og
finnst hreint ekki í lagi að steypa
alla í sama mótið með þessum
hætti. Sjálf er ég dugleg að sækja
mér þekkingu um þau mál sem
eru mér hugleikin. Svo má segja
að ég sé með margar diplómur úr
skóla lífsins.“
Ástfangin af netinu
Árið 1995 segist Birgitta hafa
kynnst internetinu og í kjölfarið
orðið algjörlega hugfangin af hug-
myndinni. Hún var fyrsta íslenska
konan til þess að vinna við vefþró-
un, en inn í það datt hún að eigin
sögn alveg óvart. „Ég varð algjör-
lega ástfangin af netinu. Ég sá bara
endalausa möguleika um hvernig
hægt væri að nota þetta sem tæki
til þess að gera hið raunverulega
samfélag betra. Vegna þess hve
snemma ég byrjaði að fikta mig
áfram á netinu, má segja að ég hafi
átt þátt í að móta það frá grunni.
Fyrir það hef ég fengið viðurkenn-
ingu víða um heiminn og nú er ég fyrir
mörgum orðin hið pólitíska andlit netsins, en
ég er mjög þekkt víða um heiminn, til dæmis
vegna baráttu minnar fyrir frelsi internets-
ins.“ Viðurkenningin felst meðal annars í því,
segir Birgitta, að vera boðin til borðs með
öllum helstu sérfræðingum internetsins. Það
eigi þó ekki við hér heima.
„Ég hef alltaf verið frekar utangátta í ís-
lensku samfélagi,“ útskýrir hún og segir jafn-
framt að netið hafi gert sér kleift að ná sam-
bandi við fólk sem hún dái mikið og virði. Á
meðal þeirra sem hafi haft samband við hana
sé Naomi Klein, útgefandi Noam Chomski og
Naomi Wolf sem bauðst til þess að aðstoða
Birgittu með komandi Bandaríkjaför hennar.
Þar hyggst Birgitta láta reyna á réttindi sín
og lýsa opinberlega yfir stuðningi við Bradley
Manning, með listsýningu.
„Hún bauðst til þess að hjálpa mér að setja
upp sýninguna. Það er eitthvað svo æðislegt
við þennan stuðning,“ segir Birgitta dreymin
og bætir við að þetta þýði þó ekki að hún muni
snúa baki við löndum sínum og pólitíkinni hér
á landi. En hún vinnur nú að kappi við mótun
Píratahreyfingarinnar. „Sú vinna er alltaf
númer eitt hjá mér. Mér þykir svo vænt um
landið mitt og hér á þinginu get ég haft áhrif á
framtíð þess.“
Birgitta bætir við að sér finnist þó sem Ís-
lendingar megi vera meira vakandi fyrir því
sem í gangi er, í samfélaginu, náttúrunni og
ekki síst inni á þinginu sjálfu.
„Verum öll meira vakandi fyrir okkur, því
það skiptir máli.“
María Lilja Þrastardóttir
marialilja@frettatiminn.is
Minningartónleikar
Bergþóru
Ég man hvað mamma
var stolt, enda gerði
hún lag við ljóðið mitt.
viðtal 35 Helgin 15.-17. febrúar 2013