Fréttatíminn


Fréttatíminn - 15.02.2013, Síða 43

Fréttatíminn - 15.02.2013, Síða 43
Njóttu lífsins með heilbrigðum lífsstíl KEA-skyr er frábær hollustuvara sem einungis er unnin úr náttúrulegum hráefnum. KEA-skyr er einstaklega næringarríkt, það inniheldur hágæðaprótein og er fitulaust. KEA-skyr er góður kostur fyrir alla þá sem hafa hollustuna í fyrirrúmi og vilja lifa á heilsusamlegan hátt. Fegurð - Hreysti - Hollusta mín, höfum verið að fá fyrir- spurnir um svona námskeið í einhvern tíma svo við ákváðum að slá til. Við erum samt alls ekki fyrst til þess að bjóða upp á svona kennslu. Þvert á móti virðist þetta hafa komið í bylgjum svona í gegnum árin. Ætli það sé bara ekki af nógu að taka,“ útskýrir Margrét. Ekki fyrir joggingdýr Að sögn Margrétar virðast nám- skeiðin vera vinsælli hjá vin- kvennahópum en einstaklingum og segir Margrét það jákvætt. „Það er ótrúlega gott að stelpur finni og geti notað vettvang sem þennan til þess að byggja sig upp saman. Það er líka nauðsyn- legt að læra að þekkja líkama sinn og klappa sjálfri sér um leið og lærin og rassinn hristast. Þetta eru þrusugóðar æfingar og mjög skemmtilegar. Ég hvet líka þátttakendur til þess að koma svolítið til hafðar hvernig sem það er svo túlkað. Það skemmir ekkert að setja á sig maskara og vera svolítil pæja. Það passar bara ekki hafa ein- tóm joggingdýr í kvennahlaups- bolum að dansa Beyoncé,“ útskýrir Margrét kímin en hún hefur ekki neinar áhyggjur af gagnrýnisröddum sem kunni að berast vegna þessara fyrir- mæla, eða námskeiðsins sjálfs og segist þreytt á þeirri pressu sem konur finni fyrir úr öllum áttum. „Það er nefnilega mjög áhuga- vert að hugsa til þess að ef þú ert eins og Lena Dunham er það femínískt að sýna líkamann en ef þú ert með líkama eins og Beyoncé þá er það ekki femín- ískt.“ Sjálf segir Margrét að sér leið- ist líkamsrækt sem virkar ekki örvandi á hugann um leið. „Svo ég geri orð frænda míns, Egils Ólafssonar, að mínum þá gera æfingar sem innihalda stöð- ugar endurtekningar þig ekki aðeins grannan, heldur líka vit- grannan. Dansæfingar eru mjög örvandi á marga vegu og það er ótrúlega gaman að dansa. Enda reikna ég með að tímarnir eigi fyrst og fremst eftir að snúast um gleði, hlátur og mikið fjör.“ Margrét segir að vonandi dugi námskeiðin þrjú til svo þau sem hafi áhuga komist öll örugglega að. Aðallega séu þetta konur en þó hafi einn karl skráð sig. „Hann er bara einn og skilur ekkert í því.“ Allar nánari upplýsingar um námskeiðin má finna hjá Kram- húsinu. María Lilja Þrastardóttir marialilja@frettatiminn.is Gleraugnaverslunin þín PIPA R\TBW A • SÍA • 130492 MJÓDDIN Álfabakka 14 Sími 587 2123 FJÖRÐUR Fjarðargötu 13-15 Sími 555 4789 SELFOSS Austurvegi 4 Sími 482 3949 Tilboð í Augastað Frí lesgler þegar þú kaupir margskipt gleraugu í Augastað Lesgler fylgja með ef þú kaupir margskipt gler og umgjörð í Augastað. Tilboðið gildir til 15. mars 2013.

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.