Fréttatíminn - 15.02.2013, Side 63
Karl Berndsen Varpar nýju ljósi
Tekur skógræktarbónda í gegn
Tískumeistarinn og Karl Berndsen snýr aftur með
þátt sinn Í nýju ljósi á Stöð 2 í næsta mánuði. Hann
segist feta nýjar slóðir að þessu sinni og tekur nú karl-
menn, sem eru lítt meðvitaðir um strauma og stefnur
í tískunni, hressilega í gegn. Meðal þeirra sem lenda í
silkimjúkum klóm Kalla að þessu sinni eru skógrækt-
arbóndi og rennismiður.
„Þetta verður miklu fjölbreyttara en áður,“ sagði
Kalli þegar Fréttatíminn náði tali af honum þar sem
hann var á fullu að klippa og lita hár á nýju stofunni
sinni í Kringlunni. „Við förum víða núna og komum
við á ýmsum stöðum. Og hver og einn þátttakandi fer
í alls konar meðferðir og aðgerðir,“ segir Kalli nokkuð
leyndardómsfullur. „Við erum aðeins að prufa nýja
hluti. Margt sem meira að segja ég hafði ekki hug-
mynd um að væru til fyrr en ég byrjaði að gera þessa
þætti.“
Kalli segir að sér hafi komið á óvart hversu karlarnir
brugðst vel og einlægt við breytingunum sem hann
gerði á þeim. „Ég er með bónda, rennismið og iðn-
aðarmann. Bóndinn er skógræktarbóndi og var mjög
svalur og skondið að breyta honum,“ segir Kalli.
„Maður getur aldrei séð fyrir hver viðbrögð fólks
verða. Sumir láta eins og ekkert sé en sumir missa sig
bara alveg. Mér fannst gaman að sjá karlana vegna
þess að maður hélt að þeir yrðu öðruvísi en þeir voru
eiginlega bara einlægari ef eitthvað er.“
Kalli segir að fyrst og fremst snúist þetta allt um
það hjá honum að fylla fólkið öryggi og sjálfstrausti.
„Þá glansa nú flestir yfirleitt.“ -þþ
Kalli átti skemmtilegar stundir með skógræktarbóndanum sem tók miklum breyt-
ingum í meðförum meistarans.
Þ óra Emilsdóttir, sem starfar hjá fjár-málaskrifstofu Reykjavíkurborgar, hefur heldur betur lífgað upp á
Facebook með myndum af sjálfri sér með
frægu fólki. Hún segist hafa byrjað á þessu
fyrir aldamót í fíflagangi þegar hún og
eiginmaður hennar brugðu undir sig betri
fætinum ásamt vinum sínum í borginni.
Þetta var að sjálfsögðu löngu fyrir daga
Facebook en fyrir nokkrum árum byrjaði
maðurinn hennar að safna myndunum
saman í myndaalbúmi á samfélagsmiðl-
inum. Í kjölfarið skoraði vinkona Þóru á
hana í keppni um hvor næði fleiri myndum
af sér með þekktu fólki og skemmst er frá
því að segja að Þóra sigraði í þeirri keppni
enda telja myndir hennar á Facebook ein-
hverja tugi.
„Hún er svo mikil gunga að hún hefur
ekki þorað að biðja nokkra manneskju um
að vera með sér á mynd,“ segir Þóra og
hlær. „En ég tók þessari áskorun frekar
alvarlega og stökk til hvort sem ég var á
læknabiðstofu eða bara í Bónus eða hvar
sem er. Ef ég rakst á einhvern þá spurði
ég bara hvort ég mætti ekki fá mynd.
Mér hefur alltaf verið vel tekið og allir
hafa haft húmor fyrir þessu og verið mjög
jákvæðir.“
Eftir að vinkona Þóru játaði sig sigraða
hefur Þóra verið róleg innan um fræga
fólkið en er ekki endilega alveg hætt. „Það
er aldrei að vita. Kannski einhvern tíma ef
maður er í stemningu og sér einhvern.“
Þóra segist ekki hafa lagst í eltingaleiki
við fólkið á myndunum heldur gripið tæki-
færin þegar þau gáfust en miðað við ár-
angurinn hlýtur hún að teljast ansi hittin.
„Þetta er nú aðallega skemmtiatriði fyrir
vini okkar hjóna en svo eru einhverjir sem
slæðast þarna inn og skoða þetta. Þetta er
búið að skemmta mörgum og mikið búið
að hlæja að sumum myndanna.“
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Þetta er
búið að
skemmta
mörgum
og mikið
búið að
hlæja að
sumum
myndanna.
Þóra með frægum
Þóra Emilsdóttir heldur úti býsna hressilegri Facebook-síðu sem hún kallar Þóra með frægum.
Þar birtir myndir hún myndir af sér ásamt þekktum Íslendingum. Hún segir þetta hafa byrjað
í fíflagangi sem varð síðan að keppni við vinkonu hennar um hvor þeirra gæti safnað fleiri
myndum af sér með frægum. Þóra malaði vinkonuna og hefur heldur hægt á sér í söfnuninni
en er ekki viss um að hún sé alveg hætt.
Þóra var í strípum þegar hún rakst á Engilbert
Jensen í hárgreiðslu-
stofunni og þá var ekki
annað til ráða en að
rjúka til með hettuna á
höfðinu. „Hann var mjög
ánægður með þetta. Að
fá mynd og að maður
skyldi þekkja hann
frægan. Hann var til í
þetta þegar búið væri að
blása hann.
Egill Helgason var í góðum fílíng með flotta
húfu þegar Þóra rambaði
á hann.
Forsetafrúin Dorrit Moussaieff er alltaf hress
og til í að bregða á leik.
Þóra laumaði sér inn á mynd með Árna Johnsen
í Hrísey fyrir þremur eða
fjórum árum. Þingmað-
urinn var alveg grunlaus
og er einn fárra sem hún
hefur ekki beðið um að
vera með sér á mynd.
En eftir að þessi mynd
var tekinn var ekki aftur
snúið. „Þetta er að vísu
svakaleg mynd af mér en
það er kannski líka það
sem gerir myndirnar og
þetta svo skemmtilegt,
að maður er ekki alltaf
jafn fallegur á mynd-
unum. Maður getur ekki
sleppt tækifærunum
þegar þau gefast!“
Páll Óskar kann að stilla sér upp með aðdáendum.
Eddan í skugga feðraveldis
Kvikmynda- og
sjónvarps-
bransinn heldur
árshátíð sína,
sem kennd er
við Edduna, á
laugardagskvöld
og þá verður
hinum eftirsóttu
Eddu-verðlaunum
úthlutað. Heldur
þykir það skyggja
á gleðina þetta
árið að ekki tókst
að fylla flokka bestu leikkvenna í aðal- og aukahlutverki en aðeins þrjár konur
eru tilnefndar í stað fimm í flokkunum tveimur. Þá er heldur engin kona í fimm
manna úrslitum í kosningunni um titilinn Sjónvarpsmaður ársins. Sara Dögg
Ásgeirsdóttir sem leikur hina vösku blaðakonu Láru í Pressu III er tilnefnd
sem besta leikkonan ásamt Önnu Gunndísi Guðmundsdóttur í Frost og Elínu
Petersdottur í Stars Above. Þá vantar tvær leikkonur til viðbótar og því ljóst að
skortur hlýtur að vera á vel skrifuðum hlutverkum fyrir konur og blaðakonan
Lára hlýtur að teljast helsta valkyrjan í íslensku sjónvarpi á síðasta ári.
Hraunbæ 115 - 110 Reykjavík - S: 567 4200
GOTT VERÐ
Eyþór Ingi á uppleið
Skammt er stórra högga á milli hjá
söngvaranum Eyþóri Inga. Í byrjun
mánaðarins sigraði hann í Söngva-
keppninni og tryggði sér flugmiða á
Eurovision í Malmö í vor. Á laugar-
daginn hlotnast honum síðan sá
heiður að fá að vera gestaleikari
hjá Spaugstofunni á Stöð 2. Eyþór
sleppur tæplega við að gera grín
að sjálfum sér í klóm Spaugstofu-
manna en hvað sem öllu sprelli líður
liggur ljóst fyrir að kappinn mun taka
lagið. Ágætis upphitun fyrir skrípaleik-
inn í Svíþjóð í maí.
Súrt kvöld hjá
Steingrími J.
Steingrímur J. Sigfússon atvinnu-
málaráðherra komst í hann
krappan á þorrablóti á Þórshöfn
á Langanesi laugardaginn 26.
janúar þegar blóðheitur
sjómaður reyndi að berja
ráðherrann. Eiríkur Jóns-
son blaðamaður greinir
frá þessu á fréttavef
sínum eirikurjons-
son.is og hefur eftir
heimamönnum að
sjóarinn æsti hafi
verið aðkomumað-
ur. Skipsfélagar
hans náðu að
yfirbuga manninn
áður en illa fór
en lífvörður og
bílstjóri Stein-
gríms þótti helst
til svifaseinn í
atganginum.
62 dægurmál Helgin 15.-17. febrúar 2013