Fréttatíminn - 06.01.2012, Page 6
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Kletthálsi Rvk
Akureyri
Reykjanesbæ
Húsavík
Vestmannaeyjum
Jólin í geymsluna
Gerð 002 með hjólum
52 lítra 58x42x34cm 1.890,-
Gerð 8858 með hjólum 35 lítra
80x39,5x16cm 1.599,-
Gerð B002 með hjólum 46 lítra 55,5x40,5x33cm 1.699,-
Gerð B003 með hjólum 28 lítra 49x36x28cm 1.299,-
MARC-LEO1 Leo hillueining.
75x30x135cm. 4 hillur
4.990,-
MARC-LEO5 Leo hillueining.
100x30x185cm. 5 hillur
6.990,-
Gerð 003 með hjólum
28 lítra 49x36x28cm 999,-
Krónan veik í upphafi árs
4%
Veiking á gengi
krónunnar á
árinu 2011
Samkvæmt
gengisvísitölu
Greining
Íslandsbanka
Milljarðs gjald-
þrot trésmiðju
kröfur í þrotabú Trésmiðju
Fljótsdalshéraðs og tveggja
skyldra félaga námu tæpum
einum og hálfum milljarði
króna. Um fimmtungur þeirra
fékkst greiddur. Skiptum á
búunum lauk í desember, að
því er fram kemur í Lögbirt-
ingablaðinu sem austur-
glugginn vísar til. Félögin eru
kass, TF Festir og Trésmiðja
Fljótsdalshéraðs. Þau voru í
eigu sömu eða tengdra aðila
frá árinu 2002. á uppgangs-
árum á mið-austurlandi upp
úr árinu 2000 voru félögin
umsvifamikil í fasteignavið-
skiptum. Til dæmis keypti kass
árið 2005 þrettán félagslegar
íbúðir af Seyðisfjarðarkaupstað
sem leigja átti út og árið 2006
tók það við að reka Valaskjálf
á egilsstöðum. um haustið fór
rekstur Trésmiðjunnar í þrot.
Hún var úrskurðuð gjaldþrota í
desember 2006 og hin félögin
í mars 2007. einn fyrrum
eigenda Trésmiðjunnar var árið
2008 dæmdur til að greiða
þrotabúinu yfir 100 milljónir
króna. -jh
Ættleiðingar
frá Búðardal til
reykjavíkur
Veiting leyfa til ættleiðinga
færðist um áramótin frá
sýslumanninum í Búðardal til
sýslumannsins í reykjavík. Með
reglugerð frá árinu 2006 var
sýslumanninum í Búðardal falið
að annast útgáfu ættleiðingar-
leyfa. Verkefnið er fært þaðan
til reykjavíkur með ákvörðun
Ögmundur Jónassonar innan-
ríkisráðherra, að því er fram
kemur í Skessuhorni. Sýslu-
maðurinn í reykjavík tekur við
meðferð mála sem kann að
hafa verið ólokið 1. janúar hjá
sýslumanninum í Búðardal. nýj-
um umsóknum um ættleiðingar
og forsamþykki til ættleiðingar
á erlendum börnum skal fram-
vegis beint til sýslumannsins í
reykjavík. - jh
aukning gjald-
þrota 63 prósent
alls voru 115 fyrirtæki tekin til
gjaldþrotaskipta í nóvember
síðastliðnum samanborið
við 101 fyrirtæki í nóvember
2010, að því er fram kemur
hjá Hagstofu Íslands, flest
í fjármála- og vátrygginga-
starfsemi. Fyrstu 11 mánuði
ársins 2011 var fjöldi gjaldþrota
1.432 sem er 63 prósenta
aukning frá sama tímabili árið
2010 þegar 877 fyrirtæki voru
tekin til gjaldþrotaskipta. Þá
greinir Hagstofan frá því að
í nóvember voru skráð 166
ný einkahlutafélög en 117 í
nóvember 2010. - jh
R annsóknarstyrkir til Háskól-ans í Reykjavík úr innlendum samkeppnissjóðum þrefölduð-
ust á árunum 2007 til 2010; fóru úr
um 70 í um 221 milljónir króna. Hefur
Háskólinn í Reykjavík tekið forystu
meðal íslenskra háskóla sem rann-
sóknarháskóli á sínum sérsviðum
sem eru viðskipti, tækni og lög. Skól-
inn birtir fleiri vísindagreinar á þeim
sviðum en aðrir innlendir háskólar
og hafa greinarnar birst í alþjóðlega
viðurkenndum vísindatímaritum.
Frá árinu 2007 til 2010 hækkaði
meðalstyrkupphæðin á verkefni úr
2,6 í 6,1 milljón króna en auk rann-
sóknastyrkja úr íslenskum sam-
keppnissjóðum hefur HR fengið
marga rannsóknarstyrki úr erlend-
um samkeppnissjóðum.
Er þessi árangur þeim mun merki-
legri því hann hefur náðst þrátt fyr-
ir almennan efnahagssamdrátt og
niðurskurð. Dr. Ari Kristinn Jóns-
son, rektor Háskólans í Reykjavík,
segir lykilatriðin þarna að baki fyrst
og fremst tvö; skýr stefna og öflugt
starfsfólk. „Árið 2007 tók HR þá
stefnu að við skólann yrðu stundað-
ar metnaðarfullar rannsóknir sem
mældar yrðu með alþjóðlegum mæli-
kvörðum. Rannsóknir eru órjúfan-
legur hluti háskólastarfs enda skapa
þær ekki aðeins nýja þekkingu og
stuðla að nýsköpun, heldur næra
þær og styðja háskólamenntun.
Framkvæmd þessarar stefnu felst
meðal annars í stuðningskerfi fyrir
rannsóknir, árlegu mati á rannsókn-
arvirkni hvers akademísks starfs-
manns og skiptingu rannsóknarfjár
á deildir eftir rannsóknarvirkni. En
ekkert af þessu myndi skila árangri
án sterkra vísindamanna. HR nýtur
þess að hafa öfluga starfsmenn í
rannsóknum sem leggja hart að sér
til að ná árangri og á endanum er
þessi árangur þeim að þakka,“ segir
Ari.
Aðspurður segir Ari að kenn-
arar og fræðimenn við HR fái ekki
betra rými til að sinna rannsóknar-
störfum en starfsmenn annarra ís-
lenskra háskóla. „Nei, ég tel ekki svo
vera. Hlutfall rannsóknatíma starfs-
manna í HR er alls ekki hærra en í
öðrum háskólum sem stunda rann-
sóknir og miklar kröfur eru gerðar
til akademískra starfsmanna þegar
kemur að gæðum kennslu. Áhersla
hefur hins vegar verið lögð á að ráða
mjög hæft starfsfólk í akademískar
stöður og eru gerðar skýrar kröfur
um menntun og reynslu sem standi
undir kennslu og rannsóknum á há-
skólastigi.“
Ari bendir á að þessi áhersla skól-
ans á rannsóknir vegi töluvert þungt
í að skapa öflugum starfsmönnum
umhverfi sem nærir þá og hvetur.
„Margir okkar starfsmanna eru al-
þjóðlega samkeppnishæfir og geta
sótt annað, en hafa valið að helga
HR krafta sína. Fyrir það er skólinn
mjög þakklátur.“ -jk
HR Í foRystu sem RannsóknaRHáskóli á sÍnum séRsviðum
ÚTSALA
Lín Design Laugavegi 176 Sími 533 2220 www.lindesign.is
af öllum barnavörum
30-50% afsláttur
Rannsóknarstyrkir
til HR þrefaldast
Skólinn birtir fleiri vísindagreinar á sínum sérsviðum en aðrir innlendir háskólar og hafa
greinarnar birst í alþjóðlega viðurkenndum vísindatímaritum.
Dr. ari Jónsson, rektor Háskólans
í reykjavík, segir að markvisst sé
unnið að því að efla ytri fjármögnun á
rannsóknum með því að auka sókn í
innlenda- og erlenda samkeppnissjóði.
Úthlutunarhlutfall skólans hjá sam-
keppnissjóðum, þar sem keppt er um
rannsóknarstyrki byggt á jafningjamati,
er mikilvægur mælikvarði á akadem-
ískan styrk. á aðeins fjórum árum, frá
2007 til 2010, þrefaldaðist heildarstyrk-
upphæð úr innlendum samkeppnis-
sjóðum til skólans. auk rannsókna-
styrkja úr íslenskum samkeppnissjóðum
hefur Hr fengið marga rannsóknastyrki
úr erlendum samkeppnissjóðum, meðal
annars þrjá myndarlega styrki úr 7.
rannsóknaráætlun evrópusambandsins.
Aðspurður svarar Ari að erfitt sé að
segja til um hvað standi uppúr af birtum
rannsóknum undanfarin ár.
„Það að velja ákveðin dæmi er á við
að þurfa að gera upp á milli barnanna
sinna en svo er líka umfang rann-
sóknanna og birtinganna orðið mjög
mikið. Það sem stendur upp úr í mínum
huga er fyrst og fremst hversu mikill
árangur hefur náðst á stuttum tíma og
hversu stór hluti birtinga starfsmanna
er í svokölluðum iSi tímaritum sem eru
ákveðinn gæðastaðall í rannsóknum.
Það má þó nefna tvo einstaklinga sem
hlotið hafa árleg rannsóknaverðlaun Hr
síðustu ár og eru meðal þeirra vísinda-
manna Hr sem eru í fremstu röð á
alþjóðavísu – þeir Magnús Már Halldórs-
son í tölvunarfræðideild og Slawomir
koziel í tækni- og verkfræðideild.“
Mikilvægur mælikvarði á akademískan styrk
Dr. Ari Jónsson, rektor Háskólans í reykjavík, segir árangurinn byggja á stefnu-
mörkun frá 2007 og öflugu starfsfólki. Ljósmynd/Hari
gengi krónunnar veiktist nokkuð gagnvart helstu
viðskiptamyntum okkar á nýliðnu ári. evran kostaði
í upphafi síðasta árs tæpar 154 krónur en var í lok
ársins orðin 5 krónum dýrari. Veiking krónunnar á
árinu nam 3,5 prósentum. Bandaríkjadollar, sem
kostaði 115 krónur í upphafi árs, kostaði tæpar 123
krónur í lok árs. Veiking á árinu nam 6 prósentum.
Þá veiktist krónan um 6,6 prósent gagnvart breska
pundinu en pundið kostaði 191 krónu um áramót
sem er 13 krónum meira en það kostaði fyrir ári,
að því er fram kemur hjá greiningu Íslandsbanka.
gengisvísitalan, sem vegur saman verð gjaldmiðla
helstu viðskiptaþjóða Íslands, stendur í upphafi nýs
árs í rúmlega 217 stigum en var 208 stig í upp-
hafi síðasta árs. Gengi krónunnar veiktist á þann
mælikvarða um rúmlega 4 prósent árið 2011. - jh
6 fréttir Helgin 6.-8. janúar 2012