Fréttatíminn - 06.01.2012, Blaðsíða 10
G l æ s i b æ | Á l f h e i m u m 7 4 | 1 0 4 R e y k j a v í k | Þ j ó n u s t a á l a n d s b y g g ð i n n i | S í m i 5 6 8 6 8 8 0 | w w w. h e y r n a r t æ k n i . i s
Bókaðu tíma í fría heyrnarmælingu í síma 568 6880
og fáðu Intiga til prufu í vikutíma
Intiga eru ofurnett heyrnartæki og hönnuð með það fyrir augum að gera aðlögun að notkun
heyrnartækja eins auðvelda og hægt er. Hljóðvinnslan er einstaklega mjúk og talmál verður
skýrara en þú hefur áður upplifað.
Með Intiga verður minna mál að heyra betur í öllum aðstæðum!
*Í flokki bak við eyra heyrnartækja
sem búa yfir þráðlausri tækni og hljóðstreymingu
Heyrnartækni kynnir ...
Minnstu heyrnartæki í heimi*
Þ að er alrangt að kostn-aður Hafnarfjarðarbæjar aukist um milljarð vegna
slælegra vinnubragða við endur-
fjármögnun lána bæjarins líkt
og Valdimar Svavarsson heldur
fram,“ segir Eyjólfur Þór Sæ-
mundsson, bæjarfulltrúi Sam-
fylkingarinnar, í samtali við
Fréttatímann. Líkt og blaðið
greindi frá telur Valdimar, sem
er oddviti Sjálfstæðisflokks í
bæjarstjórninni, að seinagangur
meirihlutans við endurfjármögn-
un lána bæjarins muni kosta um
milljarð þegar uppi verður staðið
vegna þess að öll lán voru gjald-
felld þegar eitt lán féll á gjald-
daga.
Eyjólfur segir það ódrengilegt
af Valdimari að setja fram þær
fullyrðingar sem hann gerir.
„Hann sakar meirihlutann um
sleifarlag og að allt of seint hafi
verið af stað farið við endurfjár-
mögnunina. Þetta er rangt hjá
honum. Hörðum höndum var
unnið að þessum málum og bæj-
arstjórinn, fjármálastjórinn og
óháðir ráðgjafar sem að þessu
unnu með þeim lögðu hart að sér
í þessum málum,“ segir Eyjólfur
og bætir við að skilanefnd hins
fallna erlenda banka sem bærinn
skuldaði hafi hins vegar ekki ver-
ið reiðubúin að ganga til samn-
inga í tæka tíð fyrir fyrsta gjald-
daga þó viðræður væru í gangi.
Meintur seinagangur hafi því al-
farið verið þeim megin.
Eyjólfur segir að um tvo kosti
hafi verið að ræða: Annars vegna
að endurfjármagna lánin í er-
lendri mynt hjá skilanefnd hins
fallna Depha-banka eins og gert
var eða fjármagna hvern gjald-
daga Depha-lánanna innanlands-
ins og halda kjörum þeirra lána
sem eftir stóðu til gjalddaga.
„Þessir kostir hafa verið bornir
saman miðað við líklegar for-
sendur um verðbólgu og gengi.
Ekkert bendir til annars en að
fyrri kosturinn, sem valinn var,
sé mun hagstæðari og spari
bæjarfélaginu hundruð milljóna
króna miðað við þann síðari,“ seg-
ir Eyjólfur og er algjörlega á önd-
verðum meiði við Valdimar sem
sagði í samtali við Fréttatímann
að niðurstaða hans væri fenginn
með einföldum reikningi á vaxta-
muni nýju og gömlu lánanna.
„Mín niðurstaða er sú að það
er enginn fótur fyrir fullyrðing-
um Valdimars um að endurfjár-
mögnunin sé slæm og kosti bæ-
inn um milljarð króna í aukna
vexti. Þvert á móti sparar bærinn
hundruð milljóna með þeim hag-
stæðu kjörum sem hann náði í
langvinnum og á tíðum erfiðu við-
ræðum við þýsku skilanefndina
miðað við þau lánakjör sem bjóð-
ast hér innanlands og flest sveit-
arfélög hafa orðið að nýta sér.
Lánskjörin eru einnig hagstæð
miðað við þann nýja veruleika
sem nú blasir við á erlendum
lánamörkuðum,“ segir Eyjólf-
ur. En þess ber að geta að ekki
hefur verið upplýst um vaxtakjör
Hafnarfjarðar á nýju lánunum að
beiðni þýsku skilanefndarinnar.
Óskar Hrafn Þorvaldsson
oskar@frettatiminn.is
Heldur bjartara
fram undan
Þrátt fyrir að langt sé frá að
Íslendingar teljist bjart-
sýnir á horfur í efnahags- og
atvinnumálum um áramót er
landinn jákvæðari en hann
hefur að jafnaði verið frá
hruni. Í desember hækkaði
Væntingavísitala Gallup um
4,6 stig frá fyrri mánuði og
fór gildi hennar upp í 67,5
stig. Á árinu 2011 mældist
vísitalan að meðaltali 60,9
stig, og hefur hún aðeins
þrisvar mælst hærri frá hruni
en í desember síðastliðnum.
Hækkun vísitölunnar skýrist,
að því er Greining Íslands-
banka segir, að mestu leyti
af hækkun á væntingum til
ástandsins eftir 6 mánuði.
Nánast jafn margir svarendur
voru bjartsýnir og svartsýnir
á ástandið í efnahags- og
atvinnumálum þjóðarinnar
að hálfu ári liðnu. - jh
Svartfuglar
friðaðir
Starfshópur sem Svandís
Svavarsdóttir umhverfisráð-
herra skipaði í september
um verndun og endurreisn
svartfuglastofna leggur til
að fimm tegundir sjófugla af
svartfuglaætt verði friðaðar
fyrir öllum veiðum
og nýtingu næstu
fimm árin. Um er að
ræða álku, langvíu,
stuttnefju, lunda og
teistu. Lagabreyting
er nauðsynleg til
þess að friðunin
nái fram að ganga.
Umhverfisráðherra undirbýr
frumvarp í þá veru. - jh
Síðustu hlutar
kreppulána
Síðustu hlutar lána frá
Norðurlöndunum, í kjölfar
efnahagshrunsins, hafa verið
greiddir til Íslands, að því
er fram kemur í tilkynningu
Seðlabankans. Í
tengslum við efna-
hagsáætlun stjórn-
valda var samið
um tvíhliða lán frá
Norðurlöndunum. Í
árslok voru síðustu
hlutar þessara lána
greiddir hingað.
Um er að ræða 887,5 millj-
ónir evra, sem samsvarar 141
milljarði króna. Sú fjárhæð
bætist við gjaldeyrisforða
Seðlabankans. Frá því í októ-
ber 2008 hefur Ísland tekið
lán sem nema samanlagt um
753 milljörðum króna í því
skyni að styrkja gjaldeyris-
forða Seðlabanka Íslands.
Gjaldeyrisforðinn í heild
nemur 1.030 milljörðum
króna eða 2/3 af vergri lands-
framleiðslu. Vaxtagreiðslur
af gjaldeyrislánum nema um
33 milljörðum króna á ári. - jh
Aukið öryggi
í Hvalfjarðar-
göngum
Öryggis- og eftirlitsbúnaður í
Hvalfjarðargöngunum hefur
verið aukinn undanfarna
fjórtán mánuði. Kostnaður
við framkvæmdirnar nálgast
250 milljónir króna, þar af
kostaði nýtt sívöktunarkerfi,
sem tekið var í notkun seint
á árinu 2010, um 84 milljónir
króna. Í tilkynningu á heima-
síðu Spalar, sem Skessuhorn
greinir frá, segir að vegfar-
endur merki á ferðum sínum
undir Hvalfjörð að bjartara er
nú en áður á köflunum inn af
gangamunnum beggja vegna
og sömuleiðis sjá þeir á
gangaveggjum flóttaljós, sem
sett hafa verið upp og vísa
á hvorn munna ef rafmagn
fer af göngunum. Þá hefur
skápum með slökkvitækjum
og neyðarsímum verið
fjölgað. Unnið var að endur-
bótunum til að uppfylla ESB-
tilskipun sem tekið hefur gildi
hérlendis. - jh
Hægt að fylgj-
ast með strætó
Með nýju rauntímakorti á
vef Strætó bs. er nú hægt að
fylgjast með ferðum strætis-
vagna í rauntíma. Þannig
geta strætófarþegar, með
hjálp nýjustu tækni, séð hvar
vagninn sem þeir ætla að
taka sér far með er staddur á
hverjum tíma. GPS-búnaður
um borð í öllum vögnum gerir
farþegum kleift að fylgjast
með ferðum vagnanna á
vefnum straeto.is. Stað-
setning vagnanna er uppfærð
á um það bil tíu sekúndna
fresti. - jh
Hafnarfjörður Deilur um HagfellDni fjármögnunar
Alrangt að endur-
fjármögnun auki
kostnað um milljarð
Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði vísar ásökunum oddvita Sjálfstæðisflokksins
um milljarðs kostnaðarauka vegna endurfjármögnunar lána bæjarins til föðurhúsanna.
Eyjólfur Þór Sæmundsson, bæjarfulltrúi í Hafnarfirði, telur málflutning sjálfstæðismanna um
aukinn kostnað vegna endurfjármögnunar lána bæjarins vera rangar. Ljósmynd/Hari
10 fréttir Helgin 6.-8. janúar 2012