Fréttatíminn - 06.01.2012, Blaðsíða 42
30 bækur Helgin 6.-8. janúar 2012
RitdómuR StjaRna StRindbeRgS
Almanak Háskólans, öðru
nafni Íslandsalmanakið,
hefur komið út samfellt síðan
árið 1837. Útgáfan fyrir árið
2012 trónir nú í efsta sæti á
bóksölulista Eymundsson.
Höfundur, eins og undanfarin
ár, er Þorsteinn Sæmundsson.
175 áRa
útgáfuSaga
RitdómuR mannviSt – SýniSbók íSlenSkRa foRnleifa
S tór bók – 470 síður í brotinu 20 x 25,5 – með atriðaskrá, heimilda-skrá og aftanmálsgreinum; helguð
stöðunni í íslenskum fornleifarann-
sóknum, forsögu rannsókna allt aftur á
stofnunartíma Fornleifafélagsins 1879
og raunar lengra aftur og markar að auki
í huga lesandans ómarkvissa hugmynd
um brýna nauðsyn þess að í landinu fái
að þrífast víðtæk sátt um vel fjármagnað
rannsóknarstarf á mannvistum þjóðar-
innar til lengri tíma, er fagnaðarefni. Höf-
undurinn, Birna Lárusdóttir, gerir, ásamt
átta öðrum fræðimönnum, grein fyrir
stöðunni í þrjátíu og tveimur köflum í vel
unnum og hugsuðum texta sem dýpkaður
er með afbragðsgóðu myndefni, teikn-
ingum, kortum, bæði frá fornu og nýju.
Einkum eru það loftmyndirnar sem svifta
hulunni af mannvistarleifum vítt og breitt
um landið, yfirskyggðir staðir í landslag-
inu verða sýnilegir svo lesandinn verður
gapandi. Þó fornminjaskráningu virðist
ekki að fullu lokið er staðan þessi: Það
eru 130 þúsund minjastaðir þegar skráðir
og þeim á eftir að fjölga – mikið. Af þeim
hefur við aðeins nartað í moldina, kíkt
í örfá prósent af því sem jörðin geymir
og alltaf er eitthvað að koma okkur á
óvart. Ritaðar heimildir eru ekki aðeins
fátæklegar heldur beinlínis þegjandi um
sitthvað sem hér hefur gerst.
Hér er á ferðinni mikið öndvegisrit, al-
þýðlegt í grunninn og prýðilega læsilegt;
nákvæmt í útskýringum og útmálun á
býsna miklu magni upplýsinga því víða
þarf að setja staðreyndir í samhengi
víðara svæðis í þekkingu okkar, orða hug-
myndir um langa þróun og vel en veikt
studdar kenningar og í því fara höfundar
sér hvergi óðslega heldur gefa okkur hug-
mynd af varfærni. Íslensk fornleifafræði
er sannarlega hörkuspennandi fræðasvið.
Margt er hér á sviði skipulagsfræðinnar;
hver kafli ber yfirskrift um sitt, fyrstan
ber að telja Bæjarhóla, þá Eyðibyggðir,
Kuml, Kirkjur og kirkjugarða, Legstaði
utan þeirra og svo má telja allt að loka
kaflanum um Nýminjar.
Ritið í heild sinni segir lesanda að
breytingin sem leyfði almenna sam-
keppni og sjálfstæðan rekstur í forn-
leifarannsóknum hafi ekki aðeins svalað
einkavæðingarþrá menntamálaráðherr-
ans, Björns Bjarnasonar, og sumpart
dregið úr getu Þjóðminjasafns til að halda
úti rannsóknarstarfi í nýrannsóknum,
heldur líka hleypt nýju blóði og fjármagni
í einkaaðila á þessu sviði þar með talið
erlendum stofnunum sem hljóta að líta á
landið með öllum sínum huldu minjum
sem gnægtabrunn. Stofnun Kristnihátíð-
arsjóðs var vissulega mikil búbót, en nú
er hann fallinn saman og enn er fjármagn
háð hinu kenjaríka og fáfróða fjárveit-
ingavaldi. Og það sem verst er: Úrvinnsla
gagna, vinnan til að komast að birtri nið-
urstöðu er ekki eins sexí og vinna á vett-
vangi, hópur af fólki í sól að moka með
skeið. Þetta er mikið áhyggjuefni. Bara
sú hugmynd að ráðast í einu að Hólum,
Þingvöllum og Skálholti í einu sama vett-
vangi sýnir í hnotskurn galið sjónarhorn
því einn staður af þessum þremur kallaði
líkast til á fimm sinnum fimm ár. Þessa
bók á að gefa öllum þingmönnum ef ein-
hver vill vera rausnarlegur svo þeir öðlist
nóga þekkingu á þessu sviði vísindastarfs
í landinu.
Mannvist Birnu Lárusdóttur er mikil
og merkileg bók og þarft rit sem bak-
hjarl kennslu í mörgum greinum grunn-
skóla, framhaldsskóla og háskóla. Það
vekur upp langa röð spurninga sem ekki
verður svalað um sinn, minnir á óleystar
gátur: Hvað er á bak við garðakerfin fyrir
norðan? Hvað olli endalokum selstöðu
upp til fjalla, hvað olli meginbreytingu
á nýtingu búfjár þegar ekki var lengur
fært frá? Hvað er að baki búðakjarnanum
á Þingvöllum? Bókin vekur raunar fleiri
spurningar en að hún veiti fullnægjandi
svör. Hún er þannig hugvekja og ef vel
tekst til um dreifingu hennar, lestur og
not, getur hún orðið sprengiefni í hreyfli
íslenskra mannvistarrannsókna. Útgef-
andinn, Opna, allir aðstandendur og
höfundur verksins eiga mikið hrós skilið
fyrir þetta fallega, vel unna og mikilvæga
verk.
Bækur
Páll Baldvin Baldvinsson
pbb@frettatiminn.is
Skyldulesning landsmanna
Fimmta árið í röð eiga konur á Íslandi orðið í daga-
talsbók bókútgáfunnar Sölku. Hún geymir hnyttnar
tilvitnanir og fallega myndskreyttar. Eins og fyrr var
sendur út keðjupóstur og konur beðnar um að skrifa
hugleiðingar um hvaðeina frá eigin brjósti. Að baki
bókarinnar standa 55 konur og allar veita þær örlitla
innsýn í sitt daglega líf og þankagang í nútímanum.
Hlutverk þessarar dagatalsbókar er bæði að vera
hjálp í skipulaginu en líka að hvetja lesendur til
að huga jafnt að því smáa sem stóra í því sem lífið
býður upp á. Jafn meðal kvenna sem karla.
Viðfangsefnin í gegnum árin hafa verið eins ólík og
þau eru mörg og má þar til dæmis nefna jafnrétti,
ástin í öllum sínum myndum, umhverfisvernd, listin, áttavitar,
súkkulaði og hælaháir skór! Bókin dugar þannig körlum þeim
sem vilja ná sambandi við sína kvenlegu hlið. Myrra Leifsdóttir
hannar bókina sem fæst í öllum skárri bókabúðum. -pbb
Konur eiga orðið allan ársins hring
Mælingastofa Nelson var með fingurinn á sölulist-
unum í Bretlandi í lok árs og hver haldið þið að
hafi verið þar í efsta sæti seldra eintaka (935. 355
eintök)? Jú, rómaninn Einn dagur eftir David Nic-
holls sem Bjartur gaf út og sat lengi vel efst á met-
sölulistum hér en komst á endanum ekki einu sinni
inn á lista yfir tuttugustu efstu sætin á lista bóksala
sé litið til ársins alls. Í Bretlandi var svo sjónvarps-
kokkurinn Jamie Oliver í öðru sæti en halaði þó
mest inn tekna af öllum. Á enska listanum er Stieg
Larson með þrjú pláss á topp tíu, John Grisham
er í áttunda sæti með Játningar sínar en Kathryn
Stockett í fimmta sæti með Húshjálpina. -pbb
Breskar
metsölubækur
Stjarna Strind-
bergs
Jan Wallentin:
Þórdís Gísladóttir þýddi.
Bjartur, 355 síður, 2011.
Hinn menntaði reyfari er orðinn einhverskonar
undirdeild í þeirri framreiðslugrein og í mörgum
þeirra koma fyrir kátlegar og athyglisverðar hug-
myndir, gjarnan á sviði samsæriskenninga um
liðna atburði. Bjartsmenn voru snöggir til að kaupa
útgáfurétt af Stjörnu Strindbergs sem kom út hjá
Bonniers og víðar árið 2010 og að láta Þórdísi
Gísladóttur þýða hana. Höfundurinn er blaðamað-
ur, Jan Wallentin, fæddur 1970 og var spennusagan
seld víða um álfur strax á undirbúningsstigi fyrir
frumútgáfuna (svar Svíþjóðar við Dan Brown) og
svo er kvikmyndarétturinn seldur.
Í sögunni er ýmsu blandað saman: Hella- og
námukönnun, nýrri túlkun á André-leiðangrinum
með loftbelg á norðurpólinn, ástandi kirkjugarða
fyrri heimstyrjaldar umhverfis Ypres, skammta-
fræði þeirra sem eiga gott heimaapótek af „öps“
og „dáners“ og Sven Hedin og Ágúst Strindberg
stinga inn nefinu. Svo eru enn nýttir sögupartar
úr stuttri en alræmdri starfstíð þýskra nasista sem
er sænskum hjartfólgin svo nærri sem þeir stóðu
Þýskalandi allan þann tíma, bæði í viðskiptum og
víða hugsjónalega líka. Ætlar sú náma að reynast
sænskum krimmahöfundum djúp.
Stjarna Strindberg er hröð í gang og heldur
áhuga lesanda vel fram yfir miðju en þá verða slík
ólíkindi í sögunni að hætta er á að margir loki á
framhaldið, ég keyrði áfram á viljastyrknum einum
og undraðist oft hversu höfundurinn var kominn
langt fram úr sjálfum sér í vitleysislegum hug-
myndum til að keyra söguna áfram. Sögur af þessu
tagi, sem víkja frá hefðbundnum slóðum og sækja
sér efni í fræðikima ýmiskonar til að gera sögu-
heiminn breytilegan frá hinum velþekkta heimi
klisjubókmennta skáldsögunnar fengu byr undir
báða vængi í kjölfar velgengni Dan Brown. Þess-
háttar bókmenntir eru skrifaðar af hagnaðarvon
einni og megna sumar að skaffa höfundum sínum,
útgefendum og umboðsmönnum gott lifibrauð.
Margar bjóða uppá lausnamiðað ferli sem felst í því
að stóra gátan er upplýst eftir rannsókn á nokkrum
sjónarhornum. Könnunarsveitin er gjarna samsett
af karli og konu (einsog hér) og þau eru andstæður
í háttum (einsog hér). Oft er leitað á afvikna staði
(kirkjugarður og forn kastali koma fyrir hér) og
gjarna sýna þeir holur hins falda valds sem er karl-
lægt og aldrað og byggir á fornum reglum.
Í þessu tilviki tókst vel til þar til komið var inn í
plottið mitt enda fór þá að skína í lausn furðusögu
sem sveif niður á plan fantasíu. -pbb
Stærsti leyndardómur heimsins
mannvist – sýnis-
bók íslenskra
fornleifa
Birna Lárusdóttir
Opna, 474 síður, 2011.
Mannvist Birnu Lárusdóttur er mikil og merkileg bók, öndvegisrit, alþýðlegt í grunninn og
prýðilega læsilegt.
Birna Lárusdóttir
Ef vel tekst til með
dreifingu og lestur
getur bók hennar
orðið sprengiefni
í hreyfli íslenskra
mannvistarrann-
sókna.
[ég] undraðist
oft hversu
höfundurinn
var kominn
langt fram úr
sjálfum sér í
vitleysislegum
hugmyndum
til að keyra
söguna áfram.
Heyrðu umskiptin
Fáðu heyrnartæki til reynslu
Tímapantanir 534 9600
Heyrn · Hlíðasmári 11
201 Kópavogur · heyrn.isHEYRNARÞJÓNUSTA