Fréttatíminn - 06.01.2012, Blaðsíða 52
Helgin 6.-8. janúar 201240 tíska
Fjölbreytt tíska
í fjöllunum
Í vikunni skellti ég mér á skíði í Bláfjöll, eins og
vonandi flestir Reykvíkingar. Gömlu skíðagræjurn-
ar voru teknar fram og allt tilheyrandi: Föðurland-
ið, skærbleiku skíðabuxurnar mínar, úlpan og öll
þau hlýju föt sem hlífðu mér fyrir þessu frosti sem
beit í kinnar þegar ég brunaði niður brekkurnar á
fleygiferð, voru dregin fram.
Ég var ekki sú eina sem hafði dregið fram gömlu
skíðafötin og þóttist alveg hæstánægð með
þær græjur sem hafa þjónað mér ágætlega í
gegnum árin. Skipta mátti fólki gróflega í tvo
hópa: Skíðafólk og brettafólk. Mig grunar að
brettafólkið, sem flest var ungt, hugsi og
pæli meira í hverju það klæðist í brekk-
unum. Sumt þeirra skildu úlpuna
eftir heima, kusu frekar hettu-
peysu en þykka skíðaúlpu, en
vonandi klæddust þau hlýjum
og þéttum flíkum undir henni.
Skíðafólkinu virðist standa meira
á sama um klæðaburðinn. Unga fólkið
telur það almennt lúðalegra að þeytast
um á skíðum í brekkunum. Sem af leiðir
að þau sem kjósa frekar skíðin stendur
meira á sama um hvort þau geri sig lúða-
legri með því að klæða sig í gamla góða
skíðagallann. Hann er kannski ekki sam-
kvæmt nýjustu tískunni, en ég skal sko sverja
fyrir það að mun þægilegra er að skíða og
detta í þéttum skíðagalla sem hleypir engum
snjó eða kulda inn að líkamanum.
En alhæfingar geta vitaskuld reynst vara-
samar í þessu sem öðru. Allt brettafólk er ekki
svona og sama gildir um skíðafólkið. Þetta eru
bara einhverjar staðalímyndir sem ég og margir
aðrir hafa búið til í hausnum á sér. Svo er þetta jú
allt saman smekksatriði hvað er lúðalegt og
hvað ekki.
tíska
Kolbrún
Pálsdóttir
skrifar
5
dagar
dress
Söngkonan og fyrrum X-factor dómarinn
Cheryl Cole stofnaði hjálparsjóð til
styrktar börnum síðastliðin apríl og
hefur hún verið dugleg við að safna í
sjóðinn síðan þá. Nú fyrr í vikunni setti
söngkonan á markað rauðan varalit sem
hún hannaði í samstarfi við L’Orial og
mun allur ágóði sölu renna í hjálpar-
sjóðinn. Þetta er aðeins ein gerð að
varalit og valdi hún lit sem passar
við flesta húð– og hárliti. Liturinn
mun þó aðeins vera framleiddur
í takmörkuðu magni í Bretlandi
og mun að öllum líkindum
seljast upp í þessum mánuði.
Cheryl Cole framleiðir
varalit fyrir gott málefni Snyrtivörufrömuðurinn Bobbi Brown kynnti á
dögunum nýja snyrtivörulínu sem kölluð er Neon and
Nude og er hún væntanleg á markað fyrir sumarið.
Línan mun samanstanda bæði af snyrtivörum í
sterkum neonlitum en einnig í hlutlausum litum til
Neon and Nude lína frá Bobbi Brown
Rauði hárlitur Rihönnu, sá
sem hún skartaði á síðasta
ári, var valinn sá hárlitur
sem mest hafði áhrif á árinu
2011. Segja má með sanni að
þessi hárlitur hafi farið sigur-
för um heiminn. Ísland er
engin undantekning og hafa
konur hér á landi litað á sér
hárið í þessum lit í stórum
stíl og verið áberandi; þetta
er hárlitur sem fáar konur
létu sjá sig með hér áður fyrr
en um er að ræða æpandi
lit sem fer varla framhjá
nokkrum manni.
Áhrifamesti hárlitur
síðasta árs
Föstudagur
Skór: H&M
Leggings: Weekday
Bolur: Verslun í París
Jakki: Gamall frá
mömmu
Þriðjudagur
Skór: Primark
Buxur: Dorthy Perkins
Bolur: Primark
Hringur: Weekday
Klæðist alltaf
háhæluðum skóm
Fimmtudagur
Skór: Jeffrey Campbell
Kjóll: H&M
Sokkabuxur: Hagkaup
Eyrnalokkar: Dorthy Perkins
Miðvikudagur
Skór: H&M
Samfestingur: H&M
Peysa: H&M
Hálsfesti: Kolaportið
Elísa Rut Hall-
grímsdóttir er 19 ára
nemi í Verslunarskóla
Íslands og vinnur
samhliða náminu bæði
í Björnsbakarí sem og
á saumastofu. „Hann
er svolítið breyti-
Mánudagur
Skór: Primark
Buxur: Topshop
Bolur: Weakday
Hringur: Topshop
mótvægis. Hönnuður
línunnar segir að sumarið muni einkennast af
þessari blöndu; litglaðar snyrtivörur í bland við
þær hlutlausu. Eldrauður varalitur við húðlitaðan
augnskugga fer vel saman, að sögn. Línan mun
seljast á sanngjörnu verði víða um heim og er
væntanleg hingað til lands á vormánuðum.
legur. Fer eftir í hvernig
stuði ég er í,“ segir
Elísa þegar spurt er
út í stílinn hennar. „Ef
ég er í hippa stuði, þá
klæði ég mig þannig. Ef
ég er í stuði til að vera
venjuleg, þá klæði ég
mig þannig. En yfirleitt
þá nota ég ekki mikið af
skarti og klæðist alltaf
háhæluðum skóm.
Finnst ég klaufaleg ef
ég er í flatbotna.“
Elsa Rut segir að fötin sem
hún gangi mest í kaupi hún
helstí Topshop, H&M og
Einveru. „En Weekday og
Primark eru uppáhalds búð-
irnar mínar og ég versla líka
þar. Hönnuðurinn Bailman
er upppáhalds
hönnuðurinn
minn; rokk-
araleg
tíska og
mjög
flott.“
Útsala
Allar nýjar
vörur á 50%
afslætti
Allar eldri vörur
á 70% afslætti