Fréttatíminn


Fréttatíminn - 06.01.2012, Blaðsíða 37

Fréttatíminn - 06.01.2012, Blaðsíða 37
Ég óska Hönnu Birnu Kristjánsdóttur til hamingju með hugrakkt framboð sitt, sem hún óx af. Því Hanna Birna endurspeglaði þann kraft og hugrekki sem býr í sönnu lýðræði Sjálfstæðis- flokksins engu síður en heilbrigt endurkjör formannsins. S á andi vináttu og sátta milli sam-herja sem einkenndi Landsfund Sjálfstæðisflokksins í nóvember 2011 verður lengi í minnum hafður, því sumir eru vissulega ódælli en aðrir í þeim hópi. Og glæsilegt endurkjör Bjarna Benediktssonar sem formanns eina stjórnmálaflokksins á Íslandi sem berst fyrir frelsi einstaklingsins, við- skiptafrelsi og jafnrétti í raun – þrátt fyr- ir frækið mótframboð frá Hönnu Birnu Kristjánsdóttur borgarfulltrúa – sýnir svo ekki verður um villst þann lýðræðis- kraft sem býr í flokkstarfinu. Dirfska Hönnu Birnu Virða ber þá miklu dirfsku sem felst í því að bjóða sig fram gegn sitjandi formanni Sjálfstæðisflokksins. En hafa skal í huga að til þess að slíkt framboð nái flugi þarf frambjóðandinn auðvitað að hafa byggt afar traustan grunn undir flugbrautina. Og ef fram- boð Davíðs Oddssonar gegn Þorsteini Pálssyni til formanns Sjálfstæðisflokksins árið 1991 er borið saman við framboð Hönnu Birnu gegn Bjarna Bene- diktssyni nú í nóvember, blasir við hve mikið vantaði upp á að þessi grunnur væri nægilega sterkur. Því þegar Davíð bauð sig fram gegn Þorsteini hafði hann verið varaformaður Sjálfstæðisflokksins í tvö ár. Og borgarstjóri Reykjavíkur í 9 ár, hvorki meira né minna. Þess vegna vann hann. Og þó með naumum mun (52 prósent atkvæða). Segja má að ef til vill hafi Bjarna Benediktsson vantað eitthvað upp á slíkan grunn þegar hann var kosinn formaður Sjálfstæðisflokksins 29. mars 2009. En það er öllum ljóst núna að frá þeim tíma hefur Bjarni eflst og styrkst við hverja raun. Því getur enginn haldið fram í dag að Bjarni Benediktsson sé óbarinn biskup. Þvert á móti hefur Bjarni nú þegar og af hugrekki tekist á við margan viðkvæman vanda af þeirri skynsemi, styrk og sveigjanleika sem formennska stærsta og breiðasta stjórnmálaafls á Ís- landi krefst. Vissulega er Hanna Birna Kristjánsdóttir feiki- lega öflugur stjórnmálamaður eins og Bjarni Bene- diktsson þótt með ólíkum hætti sé. Og hún hefur töluverða reynslu í ólgusjó stjórnmálanna, ekki síst á vettvangi Reykjavíkurborgar. En var þessi reynsla nægileg til að bjóða sig fram gegn formanni Sjálf- stæðisflokksins? Svo virðist ekki vera. Og þess vegna vann Bjarni með meiri mun en Davíð. Hvað er jafnrétti í raun? Sumir virðast halda að sumir karlar séu svo þröngsýnir að þeir kjósi karla bara af því að þeir eru karlar. Og að sumar kon- ur séu svo þröngsýnar að þær kjósi kon- ur bara af því að þær eru konur. Sem er viss mismunun. Og hlægileg rangtúlkun á raunveruleikanum. Því auðvitað eru konur djúpgreindari en svo. Og karlar líka. Enda næðu margir karlar aldrei kjöri án stuðnings frá konum. Og marg- ar konur næðu aldrei kjöri án stuðnings frá körlum. Að sjálfsögðu. Því það er jafnrétti í raun. Og ekkert er fjarri stefnu Sjálfstæðisflokksins en að búa til heift og skotgrafir á milli kynjanna. Er ekki orðið nóg af ofstækisfólki sem hefur brennandi áhuga á slíkum hernaði milli kvenna og karla? Slíkur hugsunarháttur er óvinveittur jafnrétti í raun og til- heyrir steinöld en ekki 21. öld. Það eru stjórnmál komin niður á sandkassastigið. Slíkt ofstæki grefur undan lýðræðinu. Slík þröngsýni elur á ójafnrétti, andlýðræði, óvild og hatri milli fólks. Í stað alvöru jafnréttis. Alvöru lýðræðis. Virðingar. Og vináttu. Konur þurfa á körlum að halda. Og karlar þurfa jafnmikið á konum að halda til að reka heilbrigt og framsækið nútímaþjóðfélag sem byggir á lifandi mannréttindum og djúpri virðingu fyrir öllum borg- urum þess. Af báðum kynjum. Frá vöggu til grafar. Enda hafnar Sjálfstæðisflokkurinn mismunun á fólki eftir kyni. Ekkert frekar en eftir kynhneigð eða litarhætti. Enda eru allar konur sem starfa á vegum Sjálfstæðisflokksins þar eingöngu vegna eigin kraftmiklu verðleika. Alls ekki einungis vegna kyns síns. Ekkert frekar en karlarnir. Því það stríðir gegn jafnrétti í raun. Ég óska Hönnu Birnu Kristjánsdóttur til ham- ingju með hugrakkt framboð sitt, sem hún óx af. Því Hanna Birna endurspeglaði þann kraft og hugrekki sem býr í sönnu lýðræði Sjálfstæðisflokksins engu síður en heilbrigt endurkjör formannsins. Og Bjarna Benediktssyni óska ég til hamingju með sterkt og skýrt umboð sitt sem formaður eina stjórnmála- flokksins á Íslandi sem berst fyrir frelsi einstaklings- ins, viðskiptafrelsi og jafnrétti í raun. Hamingjuóskir til Hönnu Birnu Hver átti að vinna í formannskjöri Sjálfstæðisflokksins? ORMSSON · LÁGMÚLA 8 · 2. HÆÐ · REYKJAVÍK · SÍMAR 530 2819 / 530 2821 · www.hth.dk Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga frá kl. 11-15 2. LAGERVARA OG ÓSAMSETT Láttu Draumaeldhúsið þitt verða að veruleika með HTH 1. SÉRPANTAÐ OG SAMSETT Veldu réttu innréttinguna fyrir heimilið þitt. HTH er hágæða dönsk framleiðsla og þú hefur 2 valkosti! HTH FRAMLEIÐIR INNRÉTTINGAR Í: · ELDHÚS · BAÐHERBERGI · ÞVOTTAHÚS OG SKÁPA Í ÖLL HERBERGI Persónuleg og góð þjónusta Viltu að við hönnum sérstaklega fyrir þig nýju eldhús- eða bað- innréttinguna – án greiðslu? Viltu fá faglegar ráðleggingar við endurnýjun innréttinga og svo pottþétt verðtilboð? Endilega komdu þá í heimsókn! 5 ára ábyrgð á vöru og virkni 12 mánaða vaxtalaus staðgreiðslulán Ragnar Halldórsson ráðgjafi. Náðu árangri með Fréttatímanum *Capacent nóvember 2011 **Capacent september 2011 Dreifing með Fréttatímanum er ávísun á árangur - skilaboðin rata til sinna. 92,8% íbúa á höfuðborgarsvæðinu segjast vita að Fréttatíminn berst á heimilið * 65% blaðalesenda á höfuðborgar- svæðinu lesa Fréttatímann í viku hverri.** viðhorf 25Helgin 6.-8. janúar 2012
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.