Fréttatíminn - 06.01.2012, Qupperneq 20
Fulltrúar evrópskra samstarfsáætlana og þjónustuskrifstofa standa fyrir kynningu á styrkja-
og samstarfsmöguleikum á vegum evrópskra og norrænna samstarfsáætlana.
Kjörið tækifæri fyrir einstaklinga, skóla, fyrirtæki, stofnanir og samtök að kynna sér möguleika
til samstarfs á fl estum sviðum menntunar, menningar og atvinnulífs.
Háskólatorgi fi mmtudaginn 12. janúar 2012 kl. 15:00 - 17:30
Kynning á tækifærum og styrkjum í Evrópusamstarfi
●
M
enntaáæ
tlun ESB
●
7. rannsóknaáæ
tlun ESB
●
Evrópa unga fólksins
●
M
enningaráæ
tlun ESB
●
EU
RES - Evrópsk vinnum
iðlun
●
Enterprise Europe N
etw
ork
●
ESPO
N
●
eTw
inning - rafræ
nt skólasam
starf
●
N
ora - N
orður A
tlantsnefndin
●
Europass
●
Euroguidance
●
A
lm
annavarnaáæ
tlunin
●
CO
ST
●
M
ED
IA
●
Evróvísir
●
Sam
keppnis og nýsköpunaráæ
tlun ESB
●
Euraxess - Rannsóknarstarfatorg
●
N
orræ
nt sam
starf og styrkir
Áætlanir sem kynntar verða á Háskólatorgi eru:
www.evropusamvinna.is
Allir velko
mnir!
Snýr sér að vinnu
fjárlagafrumvarps 2013
„Ég sé ekki fyrir breytingar á fjárlögum sem er nýbúið að samþykkja.
Núna förum við að vinna fjárlög fyrir 2013, sem eru síðustu aðgerðirnar
til þess að loka þessu gati [milli tekna og útgjalda ríkisins] og komast
á þann stað að við þurfum ekki að reka okkur á lánum. Það verður
stórkostlegur áfangi. Við höfum eytt svo miklu púðri
í að loka þessu 216 milljarða gati. Því
það græða allir landsmenn á því í stað
þess að greiddar séu fúlgur í vexti.
Það sem við þurfum síðan að gera er
að plana hvernig við ætlum að nýta
þennan árangur. Við þurfum að ná
niður skuldum og stilla upp myndinni af
því hvernig við ætlum að koma okkur á þann
stað að við þolum áföll og getum staðist ágjöf,“
segir nýi fjármálaráðherrann. Spurð hvort hún
nái því sitji hún aðeins fram á haust „Ég get í
það minnsta komið þessari hugsun af stað.“ - gag
1977
Stúdentspróf
frá aðfaranámi
KHÍ
1980
B.Ed.-próf KHÍ
1980
1988-1990
deildarstjóri
stærð-
fræðideildar
Fjölbrautaskóla
Suðurnesja
1990-1993
sviðsstjóri
stærðfræði- og
raungreina-
sviðs
1991
Stærð-
fræðinám til
kennslurétt-
inda á fram-
haldsskólastigi
HÍ
1995-1998
Í stjórn sam-
starfsnefndar
atvinnulífs og
skóla
1994-1999
Í stjórn
Sambands iðn-
menntaskóla
1994-2003
Aðstoðar-
skólameistari
Fjölbrautaskóla
Suðurnesja
2001
MA-próf í
uppeldis- og
menntunar-
fræði HÍ
2001-2002
Vann við
skipulag og
stjórnun vett-
vangsnáms á
vegum Endur-
menntunar HÍ
2002-2003
Formaður
Félags stjórn-
enda í fram-
haldsskólum
2002-2003
Í stjórn Kenn-
arasambands
Íslands
2006
Oddviti lista
Nýrra tíma í
sveitarfélaginu
Garði
Það helsta af ferli Oddnýjar
stjóra Reykjanesbæjar. Þau kynntust í
Kennaraháskólanum en sáust fyrst á
Keflavíkurflugvelli. „Hann var tollari á
Keflavíkurflugvelli. Ég var því búin að
sjá hann, en leist ekkert á hann,“ segir
hún og hlær. „Ég leit ekkert á hann
tvisvar þá, en síðan hitti ég hann í
Kennaraskólanum. Á þessum tíma var
aldursmunurinn mikill. Ég var nítján
og hann 25. Ég hló að því og fannst
hann vera á grafarbakkanum þarna,
hann var svo gamall í huga mínum. En
við smullum saman.“
Saman eiga þau Oddný og Eiríkur
tvær dætur, Ástu Björk og Ingu Lilju
sem fæddar eru 1984 og 1986. Sú eldri
á tvo drengi. Þá Tómas Inga, fimm ára,
og Jökul Kára, sem er að verða tveggja
ára.
Oddný ætlar ekki að flytja úr Garðin-
um þrátt fyrir að vera orðinn ráðherra.
Þar er hún umkringd ættingjum og
vinum. „Reykjanesbrautin er líka besti
vegur landsins. Ég er 45 til 50 mín-
útur að keyra á milli. Mér finnst gott
að hlusta á morgunútvarpið á morgn-
anna og ná mér niður á Reykjanes-
brautinni á leiðinni heim. Mér
finnst svo gott að vakna heima hjá
mér og segi alveg eins og er að ég
nenni ekki að flytja. Þetta er ekki
það langt. Svo get ég ekki farið að
heiman,“ segir Oddný sem keypti
hús móður sinnar af systrum sínum
í fyllingu tímans.
Ekki samið um stutta veru í
stólnum
Fjölskylda Oddnýjar hefur staðið
með henni í gengum þessa ægi-
hröðu atburðarás sem hefur leitt
hana í ráðherrastól. Hún þarf nú
að læra margt og læra hratt enda
útlit fyrir að henni verði skipt út
að rúmu hálfu ári liðnu. Þá kemur
Katrín Júlíusdóttir, sem sett hefur
verið af sem iðnaðarráðherra, úr
fæðingarorlofi. En var henni strax
gert ljóst að hún sæti hugsanlega
svo stutt?
„Það var nú enginn samningur
um slíkt. Mér var tilkynnt að ég
þyrfti að taka þetta starf að mér.
Það kom mér ánægjulega á óvart,“
segir Oddný. Hún hafi ekki spáð í
hve lengi hún sæti í stólnum. „ Við
ákváðum strax á fyrsta degi með
starfsfólkinu hér að ég myndi stilla
vinnu minni þannig upp að ég væri
að klára kjörtímabilið. Ef að svo
verður ekki gengur nýr ráðherra
inn í það plan. Rétt eins og ég geng
inn í verk Steingríms. Það verður
að vera samfella í verkefnunum þó
að það verði að einhverju leyti nýjar
áherslur þegar nýr ráðherra stýrir
ráðuneytinu.“
En hvort er Oddný á vinstri- eða
hægri væng Samfylkingarinnar?
„Nú bara slær á mig þögn. Ég hef
bara ekkert hugsað það,“ segir hún.
„Ég er í þessum flokki sem er með
stefnu sem fellur mér ákaflega vel í
geð.“ En eru stjórnmálin vettvang-
ur Oddnýjar til framtíðar? „Sko, ég
veit það ekki. Ég hugsa það. Mér
finnst ég hafa gert gagn og á meðan
mér finnst það sækist ég eftir því að
vera á þessum stað.“ En sér Oddný
sig sem leiðtoga Samfylkingarinn-
ar? „Það hef ég nú aldrei íhugað.“
En nú er hún fjármálaráðherra.
„Já, mér finnst frábært að vera
komin á þennan stað og er þakklát.
Ég mun leggja mig alla fram um að
gera þetta eins vel og ég mögulega
get og þannig að þjóðinni líki. Þeg-
ar kemur að því að minn flokkur
og mitt lið hefur ákveðið að annar
eigi að taka við af mér ætla ég ekki
að fara grenjandi úr þessum stól.
Það mun ég ekki gera, því það er
gefandi starf að vera þingmaður.“
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
Steingrímur J. Sigfússon skildi eftir tilbúin fjárlög
þegar hann yfirgaf fjármálaráðuneytið og Oddný vindur
sér því í að undirbúa nýtt fjárlagafrumvarp fyrir 2013.
Þegar kemur
að því að minn
flokkur og mitt
lið hefur ákveðið
að annar eigi að
taka við að mér
ætla ég ekki að
fara grenjandi úr
þessum stól. Það
mun ég ekki gera.
20 viðtal Helgin 6.-8. janúar 2012