Fréttatíminn - 06.01.2012, Page 24
24 fréttir vikunnar Helgin 6.-8. janúar 2012
Fjöldi skipa við loðnuleit
Fjöldi skipa hefur verið við loðnuleit
norðaustur af landinu undanfarna daga.
Hægar gengur að finna loðnu en búist
var við. Stórar torfur hafa sést en þær
hafi ekki verið nógu þéttar. Skip hafi sett
út troll og verið að fá 100-170 tonn í togi.
Hafrannsóknarskipið Árni Friðriksson er á
miðunum fyrir austan.
Ánægðir Íslendingar
Íslendingar eru mjög ánægðir með líf sitt í
samanburði við aðrar þjóðir. Þetta kemur
fram í alþjóðlegri könnun sem Capacent
Gallup vann. Á heimsvísu er rétt rúmur
helmingur fólks ánægður með líf sitt en
hér á landi eru þrír fjórðu ánægðir.
Nýr forstjóri Fjarðaáls
Janne Sigurðsson var ráðin forstjóri
Fjarðaáls frá og með áramótum. Hún
tók við starfi Tómasar Más Sigurðssonar
sem tekinn er við starfi forstjóra Alcoa
í Evrópu. Janne var framkvæmdastjóri
framleiðslu Alcoa Fjarðaáls.
Slæm vika
fyrir Jón Bjarnason
alþingismann
Góð vika
knattspyrnumanninn
Gylfa Þór Sigurðsson
12000
metrar er vegalengdin sem
hjúkrunarfræðingur á bráða-
deild Landspítalans gekk á
einni vakt í haust samkvæmt
skrefamælingu.
97,2
prósent af spádómum Völvu
DV fyrir árið 2011 reyndust
vera rangir samkvæmt
úttekt Ragnars R. Ragnars-
sonar atferlissálfræðings
sem birtist í Morgunblaðinu
á fimmtudag. Aðeins var
einn af þrjátíu og sex
spádómum réttur.
3,4
milljarðar er upphæðin sem
Glitnir krefur útgerðar-
drottninguna Guðbjörgu
Matthíasdóttur vegna
gróða hennar umfram aðra
kröfuhafa við sölu á bréfum í
Glitni rétt fyrir hrun.
12
prósent er styrkleikinn á
Surti, nýjum þorrabjór,
sem Borg brugghús setur
á markaðinn
á næstunni.
Eftir því sem
næst verður
komist
er þetta
sterkasti
bjór sem
framleiddur
hefur verið á
Íslandi.
Aftur til Englands
Knattspyrnukappinn Gylfi Þór Sig-
urðsson gekk í raðir enska úrvals-
deildarliðsins Swansea í vikunni.
Hann mun leika með liðinu út
leiktíðina í láni frá þýska félaginu
Hoffenheim. Gylfi Þór þekkir
vel til á Englandi þar sem hann
lék við frábæran orðstír með
Reading undir einmitt stjórn
Brendan Rodgers, núverandi
knattspyrnustjóra Swansea.
Eftir frábært tímabil í fyrra
hefur Gylfi átt erfitt uppdráttar með
Hoffenheim það sem af er þessu tímabili
og er þetta því kærkomið tækifæri
fyrir hann að koma sér aftur í gang – hjá
þjálfara sem hefur tröllatrú á honum ef
marka má viðtöl við Rodgers eftir að Gylfi
gekk í raðir Swansea.
Grátið í Reykjavík, fagnað í Brussel
Jón Bjarnason hefur verið óþægur ljár í þúfu Jóhönnu Sigurðar-
dóttur og Steingríms J. Sigfússonar lengi en sat þó sem fastast
á funheitum landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherrastóli sínum.
Þolinmæðina þraut þó að endingu og um áramótin fékk Jón að
fjúka úr ríkisstjórninni og
tók hann Árna Pál Árnason
með sér í fallinu. Árni beit
á jaxlinn og bar harm sinn í
hljóði á meðan Jón fór með
nokkrum harmkvælum og
lýsti þvi yfir að í höfuðstöðv-
um ESB í Brussel fögnuðu
menn brotthvarfi sínu
ógurlega. Til að gera þessa
fyrstu viku ársins enn verri
fyrir ráðherrann fyrrverandi
var hann hafður að háði og
spotti í Áramótaskaupinu
þar sem hann lét meðal
annars öllum illum apalátum
í ráðuneyti sínu.
30
vikan í tölum
Er nauðsynlegt að skjóta þá?
Ásmundur Einar Daðason sér ESB-samsæri í hug-
myndum um að friða svartfugl í fimm ár.
Stefán Pálsson
Ætla út á eftir að drepa lunda og teistu til að árétta
andstöðu mína við Evrópusambandið. Sjálfstæðir
menn skjóta svartfugl!
Svandís Svavarsdóttir
Ja - nú er ég orðlaus! Einhver myndi nefna
þráhyggju.
Þorfinnur Ómarsson
Endilega að útrýma sem flestum fuglum á Íslandi
sem allra fyrst. Þannig sýnum við sko þessum háu
herrum í Brussel hverjir eru sjálfstæðir!
Hrútalykt af dagblaði
Skipulagsbreyting sem felur í sér að sérblaðadeild
Fréttablaðsins fer undir auglýsingastjóra verður
til þess að 40 prósent blaðakvenna á blaðinu
hverfur af ritstjórn, Breyting sem vakti litla kátínu
á Facebook.
Brynhildur Björnsdóttir
Ha? Eru þeir frábæru blaðamenn sem hafa
skrifað í Allt- blaðið og náð að gera jafnvel jafnvel
vinnuvéla-og loftpressublöð áhugaverð til lestrar
ekki lengur blaðamenn?
Lára Björg Björnsdóttir
Töff hjá Fréttablaðinu að reka 40% af kvenkyns
blaðamönnum sínum... heimurinn er ein stór og
feit karlremba alla mína daga.
Orð eru dýr
Kona var í vikunni dæmd í Héraðsdómi Reykjavíkur
til að greiða hinum svokölluðu Aratúnshjónunum
fébætur fyrir ummæli sem hún skrifaði við frétt
um nágrannaerjur í Aratúni á dv.is.
Þráinn Bertelsson
Loksins hefur verið gripið til aðgerða vegna net-
skríls sem finnur fróun í því að skrifa svívirðingar
um nafngreint fólk á netið, einkum í athugasemda-
kerfi fljölmiðla.
Magnús Halldórsson
Spennandi að sjá hvernig verður tekið á þessu í
Hæstarétti. Það er ekki útilokað að DV þurfi að
bera ábyrgð á athugasemdunum.
Jakob Bjarnar Grétarsson
Athyglisvert! Fyrir tíma internetsins var svo gott sem
hægt að setja samasemmerki milli fjölmiðla og þess
sem heitir opinber vettvangur. Veigamikill þáttur
í því hvernig við skilgreinum fjölmiðla og hlutverk
þeirra. Langt er síðan sú staða var uppi, eða rúm
tuttugu ár. Engu að síður bólar ekki svo mikið sem á
viðleitni til að endurskilgreina hugtakið fjölmiðill.
HEituStu kOlin á
Kaupglaðir Ís-
lendingar hafa
heldur betur
verið í essinu
sínu á nýju ári
enda kaupmenn
víða verið með
útsölur í versl-
unum sínum.
Eins og sjá má
á þessari mynd,
sem ljósmyndari
Fréttatímans tók
í Smáralind í gær,
getur afsláttur-
inn verið ríflegur
í mörgum til-
fellum.
Ljósmynd/Hari
hundsbit voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgar-
svæðinu á síðasta ári samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni og að minnsta fjórir hundar voru aflífaðir
í kjölfarið.
MATSEÐILL
LEIKHÚS-
Aðalstræti 2 / 101 Reykjavík / Sími: 517 4300 / www.geysirbistro.is
Fo r r é t t u r
Aða l r é t t i r
Laxatvenna –
reyktur og grafinn lax
Bleikja & humar
með hollandaise sósu
E f t i r r é t t u r
Þriggja rétta máltíð á 4.900 kr.
Jack Daniel’s
súkkulaðikaka
Djúpsteiktur ís og súkkulaði-
hjúpuð jarðarber
Brasserað fennell, kartöflu-
stappa og ostrusveppir
eða...
Grillað Lambafille
Með rófutvennu,
sveppakartöflum
og bláberja anís kjötsósu
Lilja boðar nýtt stjórnmálaafl
Lilja Mósesdóttir, óháður þingmaður,
boðar nýtt þverpólitískt stjórnmálaafl.
Lilja, sem sagði sig úr þingflokki Vinstri
grænna og síðar úr flokknum, þvertekur
fyrir að hún sé hluti af nýju stjórnmálaafli
Guðmundar Steingrímssonar og Heiðu
Kristínar Helgadóttur.