Fréttatíminn - 06.01.2012, Blaðsíða 32
8 heilsa Helgin 6.-8. janúar 2012
KYNNING
HreYfING Nýtt æfiNgakerfi Club-fit
www.lifandimarkadur.is
Borgartúni 24 | Hæðasmára 6 | Hafnarborg
Heilsuátakið er ha ð!
LIFANDI markaður er himnasending fyrir þá sem kjósa að setja
heilsuna í fyrsta sætið. Við seljum eingöngu vörur úr góðum
hráefnum án óæskilegra fyllingar- og aukefna. Lífrænar vörur eru
að sjálfsögðu í miklum meirihluta. Komdu og upplifðu allt öðruvísi
matvöruverslun og veitingastað fyrir þá sem vilja lifa vel.
30%
afsláttur
Millimálið
Nakd bitarnir eru
tilvaldir í millimálið.
Enginn viðbættur
sykur, sýróp eða
sætuefni. Glútein- og
mjólkurlausir.
Morgunsafi
Lífræni rauðrófusafi nn
frá Beutelsbacher er
bæði næringarríkur
og hreinsandi. 1-2 glös
á morgnana kemur
jafnvægi á meltinguna.
Nú skal það vera
nærandi og hreinsandi
Vítamín og
bætiefni frá NOW
10%
afsláttur
10%
afsláttur
Hvert sem markmið þitt er
þá byggist árangur þinn á
góðum næringargrunni. NOW
framleiðir hágæða bætiefni sem
hafa verið prófuð samkvæmt
hæstu gæðastöðlum og eru án
óæskilegra aukefna og ódýrra
fyllingarefna.
LIFANDI markaður er með
landsins mesta úrval af
bætiefnum frá NOW.
Hreinsun
Lífræna detox teið frá
CLIPPER inniheldur
lakkrísrót, nettlu og aloe
vera. Það er náttúrulega
koffínlaust og stuðlar að
léttri hreinsun.
Nýtt
20%
afsláttur
C lub-fit er nýjasta æfingakerfið á Íslandi og eina sinnar tegundar,“ segir Ágústa Johnson, framkvæmdastjóri Hreyfingar. Um er að ræða hópatíma þar sem þjálfað er til skiptis á hlaupabrettum og lóðum lyft. Tekið er
vel á því í stuttum lotum og hvílt á milli. „Æfingakerfið er samsett úr bestu
og vinsælustu æfingakerfum heims, sem sagt brot af því besta og því sem
skilar þátttakendum öruggum árangri á sem skemmstum tíma,“ segir hún.
Hver æfing tekur 45 mínútur. „Fyrir marga er það mikill kostur að stytta
aðeins æfingatímann því flestir hafa nóg að gera. Hér getur þú verið kominn
inn í Hreyfingu á góða æfingu og út á klukkutíma,“ segir Ágústa.
Club-fit fer fram í sér sal. „Þar er þrumu góð stemning, hvetjandi tónlist
og mikil orka. Þjálfarinn heldur uppi stemningu og stuði svo þér finnst
tíminn líða á örskotstundu,“ segir Ágústa. Hver og einn æfir á sínum hraða
á hlaupabretti og velur hversu þung lóðin eru, með leiðsögn frá þjálfar-
anum.
Helstu kostir þessa æfingakerfis eru, að sögn Ágústu, hversu
einfalt það er og mögulegt að ná mjög góðum árangri á skömm-
um tíma. „Það er jú það sem flestir sækjast eftir.“ Club-fit er í
opnum tímum Hreyfingar og því innifalið í meðlimagjaldi
líkamsræktarstöðvarinnar. Einungis er tuttugu manns í
hóp.
Hreyfing býður annars upp á fjölbreytt úrval annarra
æfingakerfa, til dæmis fyrir þá sem vilja mýkri tegund
þjálfunar eru svokölluðu „vellness-tímar“ vinsælir, svo
eru; Hot fitness, Pilates fitness og HD fitness. „Árangur,
átaksnámskeið fyrir konur, eru auk þess alltaf sígild,
þetta eru lokaðir hópar fyrir þær sem vilja breyta um
lífsstíl og fá fræðslu um breytt mataræði, fá fitu-
mælingu og þess háttar,“ segir Ágústa og nefnir
að Hreyfing hafi boðið upp á slík námskeið í 22 ár
og þau hafa aldrei verið vinsælli.
„Ég hvet landsmenn til að huga að heilsu sinni,
hún er það dýrmætasta sem við eigum en
oft tökum við sem sjálfsögðum hlut að hafa
góða heilsu, eða allt þar til hún bilar. Við
eigum að rækta líkamann í forvarnarskyni,
það er margt sem við getum haft áhrif á varð-
andi okkar heilsu og það gerir það enginn fyrir
okkur,“ segir Ágústa.
Club-fit er nýjasta æfingakerfið
Þjálfað er til skiptis á hlaupabrettum og lóðum lyft Við eigum að
rækta líkam-
ann í for-
varnar-
skyni.