Fréttatíminn


Fréttatíminn - 06.01.2012, Síða 34

Fréttatíminn - 06.01.2012, Síða 34
10 heilsa Helgin 6.-8. janúar 2012 KYNNING www.sagamedica.is Sæktu styrk í íslenska náttúru Úr heilsubrunni íslenskrar náttúru K onur eru svo góðar að setja sjálfar sig ekki í fyrsta sætið en við hjá Baðhúsinu erum að hvetja þær til að setja sjálfar sig í fyrsta sæti og hugsa um heilsuna,“ segir Krist- jana Þorgeirsdóttir, verkefnastjóri hjá Baðhúsinu. Þótt þær setji sjálfar sig í fyrsta sæti verður að horfast í augu við að tíminn er oft af skornum skammti og býður lík- amsræktarstöðin því upp á styttri tíma, þar sem tekið er vel á því, þannig að viðskiptavinir geti nýtt daginn sem allra best. Annars vegar er um að ræða hálftíma æfingar og hins vegar 45 mínútna æfingar. „Það þarf ekki að taka langan tíma í að æfa. Það er líklegra að þú komir reglulega allt árið um kring ef æfingin renn- ur þægilega inn í daginn,“ segir Kristjana. Hálftíma æfingatíma- rnir eru í hádeginu og henta því vel fyrir vinnandi konur. Krist- jana segir að æfingar styrki allan líkamann og séu svipaðar þeim sem einkaþjálfarar bjóða upp á. Hún segir að að eftirspurn eftir einkaþjálfurum hafi aukist þrátt fyrir efnahagskreppuna. „Einka- þjálfarar eru sífellt að aðstoða fólk sem hefur aldrei áður farið í einkaþjálfun,“ segir Kristjana og bendir á að við einkaþjálfun öðlist fólk ákveðna grunnfærni og geti því æft sig markvissara í tækjasal þegar æfingatímabilinu með þjálfaranum lýkur. Kristjana var á heilsuráðstefnu í Mílanó fyrir skömmu og þar kom fram að eftirspurn eftir einkaþjálfun fari vaxandi og að margir kjósi að fara í saman í litlum hópi til einkaþjálf- ara, því að hjá einkaþjálfara megi aðlaga æfingarnar að aðstæðum hvers og eins. Rétt er að árétta að Baðhúsið er líkamsræktarstöð sem er ein- ungis ætluð konum. Stöðin býður upp á fjölmörg námskeið. Sér- staða Baðhússins er sú að allar konurnar sem eru í KK vildar- klúbbnum fá frítt á öll námskeið sem í boði eru og betra verð á lík- amsræktarkortum. „Við bjóðum upp á mikið úrval af tímum. Það ættu flestir að finna eitthvað við sitt hæfi í Baðhúsinu. Það er hægt að velja tíma frá sex á morgnana og alveg fram á kvöld,“ segir Kristjana. En það er einnig hægt að slappa af í Baðhúsinu, eins og nafnið ber með sér. „Við erum jafnframt með aðstöðu sem kallast Hvíldarhreiðrið sem er ókeypis fyrir viðskiptavini okkar og hluti af þjónustunni sem við bjóðum upp á. Þar er heit laug, gufuböð, bekkir til að hvíla sig á, kertaljós og róleg tónlist. Þangað er afskaplega gott að fara eftir æfingu. Oft mæta þangað tvær vinkonur eða til dæmis mæðgur og eiga notalega stund saman,“ segir Kristjana. Baðhúsið leggur ríka áherslu á góða þjónustu og þægilegt and- rúmsloft. Kristjana var að kynna sér athugasemdir fjölmargra við- skiptavina líkamsræktarstöðvar- innar og þar töluðu allir ákaflega fallega um starfsfólkið og að þjónustan væri góð.  BaðhúsIð Nóg að gera hjá eiNKaþjálfurum Konur setji sjálfar sig í fyrsta sætið Styttri æfingar njóta sífellt meiri vinsælda Kristjana Þorgeirsdóttir, verkefnastjóri hjá Bað- húsinu, segir eftirspurn eftir einkaþjálfun hafa aukist þrátt fyrir efnahagskreppuna. Hvíldarhreiðrið ... Þar er heit laug, gufuböð, bekkir til að hvíla sig á, kertaljós og róleg tónlist. Þangað er afskaplega gott að fara eftir æfingu. Oft mæta þangað tvær vinkonur eða til dæmis mæðgur og eiga notalega stund saman,

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.