Fréttatíminn - 06.01.2012, Qupperneq 38
Í
Í síðustu viku febrúarmánaðar í fyrra lét
Hrólfur Ölvisson, framkvæmdastjóri Fram-
sóknarflokksins, eftirfarandi orð falla í
samskiptum við blaðamann Fréttatímans:
„Vinna við undirbúning á skilum félaganna
fyrir næsta ársreikning og umbótum á ferli
nauðsynlegra skila frá Framsóknarfélögun-
um hefur þegar hafist til að svona seinkun
muni ekki endurtaka sig. Ég biðst afsök-
unar á að skila ársreikn-
ingnum svona seint.“
Tilefnið var að Fram-
sóknarflokkurinn hafði
þá loks skilað ársreikn-
ingi fyrir árið 2009, tæp-
um fimm mánuðum eftir
lögbundinn skiladag. Var
því ekki furða þó Hrólfur
hafi sýnt iðrun og lofað
yfirbót.
Heitstrengingar Hrólfs
reyndust hins vegar orðin tóm þegar á
reyndi. Skilafrestur Ríkisendurskoðunar,
1. október, kom og fór án þess að Fram-
sóknarflokkurinn bætti ráð sitt. Og nú,
rúmlega þremur mánuðum síðar, bólar enn
ekki á ársreikningi frá flokknum.
Þetta er óvenju einbeittur brotavilji og
fyrirlitning á lögum landsins. Furðulegt er
að stjórnmálaflokkur sem gerir tilkall til
þess að koma að stjórn landsins leyfi sér
slíkt sleifarlag ár eftir ár.
Hitt er ánægjulegt að vörslumenn sjóða
almennings hyggjast nú setja Framsóknar-
flokknum stólinn fyrir dyrnar, eins og
kemur fram í forsíðufrétt Fréttatímans,
en Ríkisendurskoðun hefur beint þeim til-
mælum til Fjársýslu ríkisins að greiða ekki
út ríkisstyrkinn til flokksins fyrr en hann
hefur sinnt lögbundinni upplýsingaskyldu.
Þetta þýðir að Framsóknarflokkurinn fær
ekki að svo stöddu þær 60 milljónir sem
hann á að fá í samræmi við þingstyrk sinn.
Árið 2006 voru sett ný lög um fjármál og
upplýsingaskyldu í stjórnmálastarfsemi.
Jákvæður þáttur þeirrar lagasetningar var
að stjórnmálaflokkar voru skyldaðir til
leggja fram ársreikninga. Þetta var mikið
framfaraskref því engin lög höfðu áður gilt
um fjármál stjórnmálaflokka. Loks gátu
kjósendur haft greiðan aðgang að upplýs-
ingum um hvernig flokkarnir fjármagna
starfsemi sína og hvaða fyrirtæki leggja
þeim lið. Þarna voru komnar nokkurs kon-
ar umferðarreglur fyrir stjórnmálalífið og
ef þátttakendur þar velja að virða þær ekki
vita kjósendur að það er af ásetningi.
Neikvæða hlið laganna frá árinu 2006 er
að með þeim komu stjórnmálaflokkarnir,
sem eiga fulltrúa á Alþingi, sér að stórum
hluta á framfæri almennings.
Stjórnmálaflokkarnir fá hátt í hálfan
milljarð króna á ári úr opinberum sjóðum.
Langfrekastir til fjárins eru gömlu hefðar-
flokkarnir fjórir: Sjálfstæðisflokkur, VG,
Samfylking og Framsóknarflokkur.
Fyrirlitning Framsóknarflokksins á upp-
lýsingaskyldunni, sem þarf til að fá ríkis-
styrkinn, er út af fyrir sig ástæða til að
afnema greiðslurnar til hans.
Óeðlilegt forskot fjórflokksins á aðrar
stjórnmálahreyfingar við fjármögnun starf-
semi sinnar er þó ein og sér næg ástæða til
að breyta þessu fyrirkomulagi.
Skil ársreikninga
Raðsyndaselirnir í Framsókn
Jón Kaldal
kaldal@frettatiminn.is
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjóri: Jón Kaldal kaldal@frettatiminn.is Framkvæmdastjóri: Teitur
Jónasson teitur@frettatiminn.is Fréttastjóri: Óskar Hrafn Þorvaldsson oskar@frettatiminn.is Ritstjórnarfulltrúi: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is. Auglýsinga-
stjóri: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
Veitingahús
SuZushii Stjörnutorgi
Karma Keflavík ehf
Grófinni 8
Kringlunni 4-12
8 ummæli
5 ummæli
6 ummæli
16 ummæli
11 ummæli
Saffran
Krúska ehf
Suðurlandsbraut 12
1
2
3
4
5
Efstu 5 - Vika 1
Topplistinn
Pizzafjörður ehf
Strandgötu 25
S amkvæmt ævafornu tímatali Maya-indjána mun dagatal þeirra enda þann 21.12.12 – sem sagt á vetrar-
sólstöðum í lok þessa árs.
Varst þú búin/n að gera ráð fyrir þessu
í þinni áætlanagerð fyrir 2012?
Maya þjóðflokkurinn á rætur sínar að
rekja til Mið Ameríku – en dagatal þeirra
(The Long Count) er talið hefjast þann
11. ágúst, 3114 fyrir Krist samkvæmt
gregorískri talningu. Maya-indjánarnir
voru einstakir vísindamenn og áhrifafólk
á sviði tungumála, lista, arkitektúrs og
skipulagsfræða, stærðfræði og stjarn-
fræði. Þeirra útfærsla á dagatali byggir
á meðalævilengd samtímamanna (52 ár)
auk túlkunar þeirra á afstöðu stjarnanna
og hefur hún nært sköpunargleði ýmissa höfunda eins
og birtist til dæmis í bók Dan Brown – The Lost Sym-
bol og kvikmyndunum 2012 og Apocalypto.
Mikil stemning hefur myndast fyrir dagsetning-
unni í sýndarheimum netsins, en minni stemning
ríkir fyrir 21.12.2012 í raunheimum vísindanna.
Sumir benda á að rangt hafi verið talið, skilaboð
Mayanna mistúlkuð, og við höfum hreinlega misst af
heimsendi. Aðrir minna okkur á skrumið í kringum
Y2K (aldamótatölvuvandann) sem kostaði botnlausa
fyrirbyggjandi vinnu og áhyggjur. En flestir eru sam-
mála um að slíkur hræðsluáróður þjóni takmörkuðum
tilgangi – öðrum en að kynda undir spuna og græðgi
áróðursmeistara.
Við fjölskyldan fengum tækifæri til að kynnast
speki Maya-indjánanna á ferðum okkar um Belize,
Mexico og Guatemala í fyrra. Flestir þeirra sem við
ræddum við um daginn ógurlega voru sammála um að
dagatalið markaði ekki endalok heldur nýtt upphaf.
„Heimsendir“ Maya-indjánanna markaði í
raun vitundarvakningu, nýtt stig sameigin-
legs skilnings og nýrrar sýnar. Við ættum
því að hlakka til og fagna þessum tímamót-
um og líta á dagsetninguna sem hvatningu
til enn betri tilvistar.
Árið 2012 mun marka nýtt upphaf í
mörgum skilningi – forsetakosningar
verða víða um heim (meðal annars á Ís-
landi, í Bandaríkjunum, Frakklandi,
Mexikó, Venezúela og Egyptalandi), nýir
leiðtogar munu rísa upp innan kirkjunnar
(meðal annars munu þjónar og leikmenn
þjóðkirkjunnar velja nýjan biskup Íslands
og Benedikt páfi mun meira að segja heim-
sækja Kúbu í mars), atvinnulífið eflist, nýir
afreksmenn verða krýndir á sumarólymp-
íuleikunum í London, Facebook fer á markað og Kína
mun skjóta upp nýju mönnuðu geimfari.
Hvernig ætlar þú að nýta þetta nýja upphaf í lífi og
starfi? Hver er þín sýn?
Það er tilvalið að nýta fyrstu daga ársins til að
hugsa fram á við og hugleiða hvað þú vilt skilja eftir
þig ef heimurinn, eins og við þekkjum hann í dag,
myndi enda þann 21. desember 2012. Hvert er þitt
framlag? Hverju vilt þú áorka? Hver er þinn tilgangur?
Sjálf aðhyllist ég lífsspeki Steve heitins Jobs sem
sagðist fara fram úr á morgnana eins og þetta væri
hans síðasti dagur en nálgaðist öll viðfangefni sem
nýtt upphaf. Hann minntist endalokanna þegar hann
var rekinn frá Apple sem nýs upphafs: „The heaviness
of being successful was replaced by the lightness of
being a beginner again, less sure about everything. It
freed me to enter one of the most creative periods of
my life... Stay hungry. Stay foolish.”
Carpe diem.
Áætlanagerð
Heimsendir eða nýtt upphaf?
Guðrún Högnadóttir
framkvæmdastjóri Opna
háskólans í HR
LANGUR
LAUGARDAGUR
LAUFLÉTT ÚTSÖLUSTEMNING Í MIÐBORGINNI!
VELKOMIN Í MIÐBORGINA OKKAR. ÁVALLT!
VERÐLAUNAHLJÓMSVEITIN WHITE SIGNAL VERÐUR Á FARALDSFÆTI
FRÁ GÖMLU HÖFNINNI KL. 13:30 AÐ HALLGRÍMSKIRKJU OG HLEMMI
Neikvæða hlið laganna frá 2006 er að með þeim komu
stjórnmálaflokkarnir, sem eiga fulltrúa á Alþingi, sér að
stórum hluta á framfæri almennings.
26 viðhorf Helgin 6.-8. janúar 2012