Fréttatíminn


Fréttatíminn - 06.01.2012, Qupperneq 56

Fréttatíminn - 06.01.2012, Qupperneq 56
 Plötudómar dr. gunna Stunts & rituals  Gang Related Glaðlegt glamur Í Gang Related (gott nafn!) eru í fararbroddi bræðurnir Gunnar og Albert, sem báðir spila á gítar og syngja. Helgi úr Morðingjunum er á trommur og bassaleikarinn heitir Jón Otti. Sveitin syngur á ensku og gæti vel verið eitthvert upprennandi bílskúrsband frá erlendri stórborg. Þeir eru nútíma- lega indí en með rætur í poppmelódísku sixtísi. Gítarar glamra glaðlega yfir lágum og feimnislegum söng og vænni slettu af bergmáli er svo bætt við allt saman. Þetta er hin ágætasta plata; bandið efnilegt og fundvíst á snið- ugar laglínur, en strákarnir mættu gjarnan leita eftir aðeins persónulegri tóni. neyðaróp  Gunnlaugur Blöndal Litað eftir númerum Gunnlaugur Blöndal er 27 ára og Neyðaróp er hans fyrsta sólóplata. Vopn- aðar titrandi söngröddu, gítar, píanói, lágstemmdum áslætti og neyðarópi Geirs H. Haarde framreiðir Gunn- laugur tólf lög á ensku og íslensku. Rólegt yfirbragð er á öllu saman og tónlistin er sterklituð þeirri tónlist sem Gunnlaugur er vísast til hvað spenntastur fyrir; dramarokk Diktu og aðeins út í bæði Sigur Rós og ameríska handboltarokkið. Gunnlaugur er greinilega hæfileikamaður og sköpunin er sannfærandi þótt það sé reyndar aðallega litað eftir númerum eins og er. Útgáfan er eingöngu rafræn og má nálgast í gegnum facebook.com/gblondal. með Sinfóníuhljómsveit Íslands  Sigurður Guðmundsson & Sigríður Thorlacius Fágað og flott Bæði Siggi og Sigga höfðu áður endurvakið gullna stemmingu 6. áratugarins í íslenska poppinu þegar þau stigu saman á svið nýopnaðrar Hörpu síðast- liðið sumar og tóku lagið með sjálfri Sinfó. Hér er upptaka frá tónleikunum, íburðarmikil kóverplata þar sem „lögin við vinnuna“ eru hunangspensluð og hægelduð í eigin soði. Í bland við íslensku poppk- lassíkina hafa nokkrir nýir textar runnið af velsmurðu færibandi Braga Baggalúts við erlenda klassík. Söngvararnir standast vel samanburð við goðumlíka söngvara fortíðar eins og heyrist vel þegar þau syngja Þrek og tár. Fáguð og flott plata fyrir ömmu og afa. Blóðugt en ekki bannað börnum Aðstandendur sýningarinnar um Axlar-Björn segja að enginn megi láta auglýsingu með alblóðugum Atla Rafni Sigurðssyni hræða sig um of. Leikritið er öllum leyft, ungum sem öldnum og er ekki hryllilegri en gengur og gerist þegar unnið er með íslensk þjóðsagnaminni og sögu. Sýningin er eftir Björn Hlyn Haraldsson sem jafn framt leikstýrir. Hún segir sögu eins frægasta morðinga sem hér hefur verið, Axlar-Björns sem var upp á 16. öld og myrti átján manns áður en hann var fangaður. Sjálfur lauk hann lífinu á hroðalegan hátt eftir að hafa fengið þann dóm að allir útlimir hans skildi brotnir í mél áður en hann yrði líflátinn. Auk Atla Rafns leikur Helgi Björnsson í verkinu sem verður frumsýnt á litla sviði Borgarleikhússins miðvikudaginn 11. janúar. Um tónlist sér Kjartan Sveinsson úr Sigurrós og búninga Mundi Vondi. Helgi Björnsson situr fyrir við vinnslu á auglýs- ingu fyrir sýninguna. Fanný og Alexander – frumsýnt í kvöld kl 19 Fanný og Alexander (Stóra sviðið) Fös 6/1 kl. 19:00 frums Sun 5/2 kl. 20:00 5.k Fös 2/3 kl. 20:00 12.k Mið 11/1 kl. 20:00 2.k Fim 9/2 kl. 20:00 6.k Fim 8/3 kl. 20:00 Lau 14/1 kl. 19:00 aukas Mið 15/2 kl. 20:00 7.k Fös 9/3 kl. 20:00 Sun 15/1 kl. 20:00 3.k Fim 16/2 kl. 20:00 8.k Lau 17/3 kl. 20:00 Mið 18/1 kl. 20:00 aukas Fös 17/2 kl. 20:00 9.k Fös 23/3 kl. 20:00 Sun 22/1 kl. 20:00 aukas Fim 23/2 kl. 20:00 aukas Lau 31/3 kl. 20:00 Mið 25/1 kl. 20:00 4.k Fös 24/2 kl. 20:00 10.k Fim 26/1 kl. 20:00 aukas Fim 1/3 kl. 20:00 11.k Hin stórbrotna fjölskyldusaga loks á svið Galdrakarlinn í Oz (Stóra sviðið) Lau 7/1 kl. 14:00 30.k Lau 28/1 kl. 14:00 Lau 18/2 kl. 14:00 Sun 8/1 kl. 14:00 31.k Sun 29/1 kl. 14:00 Sun 19/2 kl. 14:00 Lau 14/1 kl. 13:00 Lau 4/2 kl. 14:00 Lau 25/2 kl. 14:00 Sun 15/1 kl. 14:00 Sun 5/2 kl. 14:00 Sun 26/2 kl. 14:00 Lau 21/1 kl. 14:00 Lau 11/2 kl. 14:00 Sun 22/1 kl. 14:00 Sun 12/2 kl. 14:00 Einn vinsælasti fjölskyldusöngleikur allra tíma Kirsuberjagarðurinn (Stóra sviðið) Sun 8/1 kl. 20:00 Fim 19/1 kl. 20:00 Fös 27/1 kl. 19:00 Fim 12/1 kl. 20:00 Fös 20/1 kl. 19:00 Sannkölluð leikhúsperla um ástir, drauma og vonir. Sýningum fer fækkandi NEI, RÁÐHERRA! (Stóra sviðið) Lau 7/1 kl. 19:00 Fös 13/1 kl. 19:00 Lau 21/1 kl. 19:00 Gríman: Áhorfendasýning ársins 2011 Axlar - Björn (Litla sviðið) Mán 9/1 kl. 20:00 fors Sun 22/1 kl. 20:00 4.k Lau 11/2 kl. 20:00 8.k Þri 10/1 kl. 20:00 fors Mið 25/1 kl. 20:00 5.k Sun 12/2 kl. 20:00 aukas Mið 11/1 kl. 20:00 frums Fim 26/1 kl. 20:00 6.k Lau 18/2 kl. 20:00 9.k Sun 15/1 kl. 20:00 2.k Lau 4/2 kl. 20:00 aukas Sun 19/2 kl. 20:00 Mið 18/1 kl. 20:00 3.k Sun 5/2 kl. 20:00 7.k Nýtt verk úr smiðju Vesturports Jesús litli (Litla svið) Sun 8/1 kl. 20:00 aukas Mannbætandi upplifun! Grímusýning ársins 2010. Lokasýning Nýdönsk í nánd (Litla sviðið) Lau 7/1 kl. 22:00 2.k Lau 14/1 kl. 22:00 4.k Lau 21/1 kl. 22:00 aukas Fös 13/1 kl. 22:00 3.k Fös 20/1 kl. 22:00 5.k Aftur á svið - aðeins þessar sýningar K rsuberjagarðurinnKirsuberjagarðurinn Svartur hundur prestsins (Kassinn) Heimsljós (Stóra sviðið) Lau 7.1. Kl. 19:30 4. sýn. Sun 8.1. Kl. 19:30 5. sýn. Lau 14.1. Kl. 19:30 6. sýn. Sun 15.1. Kl. 19:30 7. sýn. Lau 21.1. Kl. 19:30 8. sýn. Sun 22.1. Kl. 19:30 9. sýn. Lau 28.1. Kl. 19:30 10. sýn. Sun 29.1. Kl. 19:30 11. sýn. Lau 4.2. Kl. 19:30 12. sýn. Sun 5.2. Kl. 19:30 13. sýn. Lau 11.2. Kl. 19:30 1. Aukas. Sun 12.2. Kl. 19:30 2. Aukas. Lau 18.2. Kl. 19:30 14. sýn. Sun 19.2. Kl. 19:30 15. sýn. Lau 25.2. Kl. 19:30 16. sýn. Sun 26.2. Kl. 19:30 17. sýn. Hreinsun (Stóra sviðið) Fös 13.1. Kl. 19:30 17. sýn. Sun 8.1. Kl. 13:30 6. sýn. Sun 8.1. Kl. 15:00 7. sýn. Sun 15.1. Kl. 13:30 Sun 15.1. Kl. 15:00 Sun 22.1. Kl. 13:30 Sun 22.1. Kl. 15:00 Sun 29.1. Kl. 13:30 Sun 29.1. Kl. 15:00 Litla skrímslið og stóra skrímslið í leikhúsinu (Kúlan) Ö Ö Ö Ö Ö Ö Ö Ö U U U U U Sun 8.1. Kl. 19:30 33. sýn. Fim 12.1. Kl. 19:30 34. sýn. Fös 20.1. Kl. 19:30 37. sýn. Lau 21.1. Kl. 19:30 38. sýn. Judy Garland (Þjóðleikhúskjallarinn) Lau 7.1. Kl. 16:00 Fös 13.1. Kl. 22:00 Síðasta sýning! Kyrralíf og mannfólk  myndliSt Karen agnete ÞórarinSSon enevoldSen Á sama tíma og Listasafn Reykjavíkur opnar á Kjar-valsstöðum sýningu á verk- um danska listmálarans Karen Agnete Enevoldsen (1903-1992), sem síðar varð Þórarinsson, opnar sýningin Kyrralíf í Hafnar- borg þar sem myndir Karenar eru í stóru hlutverki. Karen var ein af mörgum dönskum konum sem fylgdu ís- lenskum eiginmönnum heim frá Kaupmannahöfn á fyrri hluta 20. aldar, eftir nám beggja við dönsku listaakademíuna. Hún hreifst af landi og þjóð og næstu sex áratug- ina málaði hún og sýndi verk sín víða um land og varð virtur og vel þekktur málari. Hún sýndi jafnan með eiginmanni sínum Sveini Þórarinssyni en þau settust að í Kelduhverfi í Öxarfirði í Norður- Þingeyrasýslu árið 1929 en reistu sér síðar hús í Ásbyrgi. Fyrsta samsýning þeirra á Íslandi var haldin í Oddfellow-húsinu á Akur- eyri 1929. Á sýningunni verður lögð áhersla á að kynna þá mynda- flokka sem hún sem sinnti hvað mest en það voru mannamyndir, aðallega af konum, náttúrustemm- ur, blóm og kyrralíf. Titill sýning- arinnar á Kjarvalsstöðum, Drauma- landið mitt í norðri, er sóttur í ljóð Einars Benediktssonar Bláskógavegur. Sýningarstjóri er Hrafnhildur Schram. Í Hafnarfirði eru verk Karenar í hópi fjölda annarra kyrralífs- mynda eftir íslenska listamenn af breiðu kynslóðabili, sem sumir eru þekktir fyrir verk af annarri gerð. Þeirra á meðal má nefna; Jón Stefánsson, Júlíönu Sveins- dóttur, Kjarval, Finn Jónsson, Gunnlaug Scheving, Louisu Matthíasdóttur og nokkra núlif- andi listamenn eins og Helga Þor- gils Friðjónsson, Magnús Tóm- asson, Húbert Nóa, Guðbjörgu Lind, Pétur Gaut og Áslaugu Thorlacius. Sýningarstjórar eru Ólöf K. Sigurðardóttir og Þor- björg Br. Gunnarsdóttir. Kaffikerlingar, frá sýningunni á Kjarvalsstöðum. Í eldhúsinu, frá sýningunni í Hafnarborg. Báðar myndirnar eru eftir Karen Agnete Þórarinsson. 44 menning Helgin 6.-8. janúar 2012

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.