Fréttatíminn


Fréttatíminn - 23.03.2012, Blaðsíða 4

Fréttatíminn - 23.03.2012, Blaðsíða 4
Þ rátt fyrir þyngdaraukningu í gegnum árin eru fleiri ís-lenskir unglingar ánægðari með útlit sitt og líkama nú en áður. Þetta sýnir íslensk rannsókn á nærri 32.400 fjórtán til fimmtán ára unglingum á árunum 1997 til 2010, sem Rannsókn og greining gerði. Niðurstaðan er birt í nýútkominni grein í virtu sérfræðitímariti; Body Image. „Þessi jákvæða þróun er meiri hjá stelpum en strákum og bilið milli kynjanna er því að minnka. En á öllum þessum árum, bæði hér og erlendis, hafa rannsóknir sýnt að stúlkur eru með neikvæðari líkamsímynd en strákar,“ segir Bryndís Björk Ásgeirsdóttir, lektor í sálfræði við Háskólann í Reykjavík sem ritaði greinina með Ingu Dóru Sigfúsdóttur prófessor í HR og Guðrúnu Ingólfsdóttur, sem vann að rannsókninni fyrir meistararit- gerð sína við skólann. „Þessar niðurstöður sýna ekki aðeins að kynjamunurinn minnkar heldur einnig að líkamsímynd bæði stráka og stúlkna er að breytast til hins betra.“ Bryndís segir gleðilegt að ung- lingar geti verið sáttir við sig þótt þeir falli ekki inn í staðlaðan útlits- ramma. „Við getum verið ánægð með það. En hvernig við skýrum það er ekki ljóst. Líklega spilar þar inn í heilbrigðari lífsstíll unglinga, meiri samvera og samræður þeirra við foreldra sína, sem og aukið um- burðarlyndi í samfélaginu.“ Meðal niðurstaðna rannsóknar- innar var að aldur skiptir máli. Þannig reyndust unglingar í tíunda bekk almennt hafa neikvæðri lík- amsímynd en þeir í níunda. Yngri drengir voru líklegastir til að líta líkama sinn jákvæðum augum. Niðurstöðurnar eru í samræmi við erlendar rannsóknir sem gefa til kynna að sum ungmenni á þessum aldri þrói með sér neikvæðari lík- amsímynd, sem getur haft afdrifa- rík áhrif á líðan þeirra og heilsu. Bryndís segir niðurstöðurnar um þessa jákvæðu þróun mjög ánægju- legar þegar horft sé til þess að æ oftar í umræðunni sé vitnað til þess að unglingar verði sífellt óánægðari með líkama sinn. „Þessi umræða virðist sjaldan vera byggð á áreiðan- legum gögnum. Í það minnsta sýnir þessi rannsókn hið gagnstæða.“ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir gag@frettatiminn.is Nóatúni 4 · Sími 520 3000 www.sminor.is HB23AB220S Bakstursofn 124.900 kr. stgr. (fullt verð: 159.900 kr.) Einnig fáanlegur í stáli. ET645EN11 Keramíkhelluborð 99.900 kr. stgr. (fullt verð: 119.900 kr.) Tækifærisverð A T A R N A Ódýrasti fiskurinn í Hafnarfirði 15 tilvik af 25 lægsta verð hjá litlu fisk- búðinni 19. mars 2012 Verðlagseftirlit ASÍ Drykkir færri í kerrum hlutfall drykkjarvara í innkaupum landans í stórverslunarkeðjunni krónunni hefur dregist saman. jafnvel mjólk selst í minna mæli en áður, segir eysteinn helgason, framkvæmdastjóri kaupáss. hann segir þetta hefðbundin krepputíðindi. „fólk er almennt að draga úr kaupum á drykkjar- vörum: Gos, djús, kaffi og mjólk selst nú síður en áður.“ hann segir þó samsetningu matarkörfu landans hafa breyst til hins betra. heilsufæði fái nú meira vægi en áður, fólk kjósi oftar lífrænt en áður og ávextir hafi sótt á eftir að verslunarkeðjan fór að bjóða tíu stykki á 390 krónur. „Þetta hefur slegið í gegn,“ segir eysteinn. Verðlækkunin hafi fengist með því að kaupa beint að utan. - gag fækka á sýslumönnum innanríkisráðuneytið leggur til að sýslu- mannsembættum verði fækkað úr 24 í 8, að löggæsla verði skilin frá starfsemi sýslumanna og að stofnuð verði sex ný lögregluembætti. gert er ráð fyrir að stjórnsýsluumdæmin verði vesturland, Vestfirðir, Norðurland vestra, Norðurland eystra, austurland, suðurland, suður- nes og höfuðborgarsvæðið. frumvarpið kveður á um að hið nýja skipulag taki gildi árið 2015. gert er ráð fyrir að starfsmönn- um verði boðið starf hjá nýjum embættum, sem taka við öllum réttindum og skyldum hinna gömlu embætta. sýslumenn hinna nýju embætta verða valdir úr hópi starf- andi sýslumanna, öðrum verða boðin störf við hin nýju embætti. - jh Verðlagseftirlit ASÍ gerði verðsamanburð á ferskum fiski í 23 verslunum víða um land á mánudag. kannað var verð á 25 al- gengum tegundum af fiskmeti. Munur á hæsta og lægsta verði var oftast 25-75 prósent. Lægsta verðið var oftast að finna hjá Litlu Fiskbúðinni Miðvangi í Hafnarfirði eða í 15 tilvikum af 25. fiskbúðin trönuhrauni var næst oftast með lægsta verðið eða í 5 tilvikum. Keisarinn, fiskbúð og veitingastaður Grandagarði, var með lægsta verðið í 3 tilvikum. Mikil dreifing var á hæsta verði en það hæsta var oftast hjá Melabúðinni Hagamel og Gall- erý fiski Nethyl eða í 5 tilvikum af 25. Allar 25 tegundirnar sem skoðaðar voru í könnuninni voru til hjá Fiskbúðinni Mosfellsbæ en næst mest úrval var hjá fiskbúðinni sundlaugavegi, fisk- búðinni Sjávarhöllin Háaleitisbraut og hjá Litlu Fiskbúðinni Mið- vangi eða 24 af 25. Fæstar tegundirnar voru til hjá Fylgifiskum suðurlandbraut eða 8 af 25 og hjá hagkaupum kringlunni 11 af 25. fiskbúðin bryggjuhúsið neitaði þátttöku í könnuninni. - jh veður Föstudagur laugardagur sunnudagur S-átt og Hlýindi. Víða Væta, einkum framan af degi. HöfuðborgarSVæðið: RiGNiNG uM MoRGuN- iNN, eN SÍðAN Að MeStu þuRRt. lítur út fyrir Hið beSta Verður, SÓl og Hiti 8-10 Stig. HöfuðborgarSVæðið: SóL oG Létt GoLA. Hiti uM 10 StiG yFiR dAGiNN. rigning um miðjan daginn VíðaSt á land- inu, Síður þÓ norðauStan og auStan- landS. áfram Hlýtt. HöfuðborgarSVæðið: sunnan slagveður oG RiGNiNG, eN StyttiR upp SÍðdeGiS. algjör umskipti Það er ekki oft sem maður verður vitni að því- líkum umskiptum í veðrinu sem virðast vera handan við hornið. frá útsynningsveðráttu með krapa- og éljum yfir í sannkallaðan vorþey. væta framan af í dag, en síðan styttir upp. á morgun laugardag er hins vegar spáð bjartara veðri og sólin mun skína á flesta landsmenn. hitatölur sem minna frekar á síðari hluta maí en mars. á sunnudag verða skil með rign- ingu um mest allt land, en áfram milt í veðri. Þessi vorveðrátta gæti haldist í 4 til 5 daga áður en aftur kólnar. 6 5 7 7 5 10 7 10 9 7 8 7 11 12 8 einar Sveinbjörnsson vedurvaktin@vedurvaktin.is Michelsen_255x50_K_1110.indd 1 02.11.10 10:09 líkamsímynd íslensk rannsókn sýnir jákvæða Þróun Unglingum fjölgar sem eru sáttir við líkama sinn Íslenskir unglingspiltar eru þeir fyrstu til að sýna að þeir séu nú með jákvæðari líkamsímynd en var fyrir þrettán árum. Rannsókn á 32.400 íslenskum fjórtán til fimmtán ára unglingum sýnir að það dregur úr bilinu milli kynjanna þótt bæði séu þau jákvæðari en áður gagnvart líkama sínum, og það þrátt fyrir þyngdaraukningu. Hver er ástæða þess að ungling- arnir eru ánægðari með útlit sitt en áður? „Þetta eru krakkarnir sem eru meira með foreldrum sínum og upplifa meiri stuðn- ing frá þeim en áður var,“ segir Bryndís Björk Ásgeirsdóttir, lekt- or í sálfræði. Hún segir þó skýr- inguna líklegast fleiri en eina. „Menningunni [í kringum unglinga] hefur verið breytt á Íslandi á síðasta áratug,“ segir hún. „Þetta hefur gerst samhliða öflugu forvarnarstarfi frá 1998, þar sem lagt er mikil áherslu á fleiri samverustundir foreldra og barna, eftirliti foreldra með börnum sínum og breyttum úti- vistartíma. Við sjáum í kjölfarið að vímuefnaneysla hefur dregist mikið saman í níunda og tíunda bekk og að samverustundum fjöl- skyldna hefur fjölgað. Tekist hef- ur að skapa heilbrigðari lífsstíl, meiri stuðning og tengsl milli kynslóða.“ Íslenskir unglingar eru með jákvæðari líkamsímynd nú en fyrir þrettán árum. hér eru nokkrir 9. og 10. bekkingar í grunnskólanum á hólmavík, hressir og sáttir. breytt menning unglinga á íslandi 4 fréttir helgin 23.-25. mars 2012
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.