Fréttatíminn - 23.03.2012, Blaðsíða 50
50 bíó Helgin 23.-25. mars 2012
The hunger games BaráTTa upp á líf og dauða
Spennumyndin The Hunger Games byggir á gríðarvinsælum skáldsagnaþríleik Suzanne Collins um
harða lífsbaráttu ungs fólks í framtíðinni þar sem Bandaríkin eins og við þekkjum þau í dag heyra
sögunni til. Myndin hefur fengið prýðilega dóma ytra og er líklega magnaðasta spennumyndin
sem ratar í bíó það sem af er þessu ári.
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
bíó
Hringleikahús
framtíðarinnar
Þ urrkar, eldsvoðar, hungursneyð og stríð hafa rústað Bandaríkjunum. Upp úr rústum hins fallna veldis
reis landið Panem sem skiptist í höfuð-
borg og tólf svæði. Landinu er stjórnað frá
höfuðborginni og til þess að refsa íbúum
svæðanna tólf fyrir að hafa reynt að gera
uppreisn sjötíu árum áður er slegið upp svo-
kölluðum Hungurleikum ár hvert.
Þá eru stúlka og drengur á aldrinum
tólf til átján ára á hverju svæði dregin út í
ákaflega ógeðfelldu lottói. Þeim útvöldu er
síðan stefnt saman úti í náttúrunni og gert
að berjast innbyrðis upp á líf og dauða þar til
aðeins einn stendur eftir sem sigurvegari.
Sigurlaunin eru þó ekki af verri endanum
enda kostar blóð, svita, tár og ófá mannslíf
að öðlast þau en sigurvegarinn er sendur
heim í dýrðarljóma, hlaðin gjöfum og slík-
um ógrynni af mat og öðrum nauðsynjum
að hann þarf aldrei að hafa áhyggjur af slíku
framar.
Hungurleikarnir eru einnig villimannleg
afþreying þar sem öllu sem fram fer eftir að
leikar hefjast er sjónvarpað og keppendur
verða stjörnur í hugum þeirra sem á horfa,
ekki ósvipað skylmingarþrælum Rómar-
borgar fyrir margt löngu. Keppendur æfa
sig fyrir baráttuna og njóta aðstoðar stílista
sem reyna að gera þá eins heillandi í augum
kostunaraðila og mögulegt er.
The Hunger Games er nokkuð skýrt
bergmál af japönsku myndinni Battle Ro-
yale frá árinu 2000 sem fjallaði um krakka
sem stjórnvöld smöluðu saman og létu berj-
ast til síðasta manns. Og svo auðvitað The
Running Man þar sem Arnold Schwarze-
negger reyndi að halda lífi, hundeltur af
morðingjum, í vinsælum raunveruleikasjón-
varpsþætti. Sú mynd var gerð eftir nóvellu
Stephen King og kom í bíó árið 1987, löngu
áður en raunveruleikasjónvarpið komst
langt með að heiladrepa sjónvarpsglápara
endanlega.
Jennifer Lawrence (Winter’s Bone, X-
Men: First Class) leikur hina sextán ára
gömlu Katniss Everdeen. Nafn hennar hefur
verið í lottópotti dauðans frá því hún var tólf
ára gömul en hún hefur hingað til sloppið
við Hungurleikana. Nú er litla systir hennar
orðin tólf ára og fer í pottinn í fyrsta sinn –
og er dregin út. Katniss býðst þá til þess að
fara í stað systur sinnar og þarf heldur betur
að taka á honum stóra sínum ásamt strákn-
um sem fylgir henni frá svæði 12.
Hún aflar sér bæði bandamanna og svar-
inna óvina í keppninni en lið úr þeim hópi,
sem sérhæfir sig í keppninni með ólög-
legum æfingum, leggja fæð á hana vegna
þess að hún verður strax mjög vinsæl meðal
áhorfenda. Katniss leynir þó á sér enda
veiðiþjófur með meiru og er sýnd veiði en
ekki gefin.
Aðrir miðlar. Imdb: -, Rotten Tomatoes: 91%,
Metacritic: 73%
Sigur-
launin eru
þó ekki af
verri end-
anum enda
kostar
blóð, svita,
tár og ófá
mannslíf
að öðlast
þau.
Katniss nýtur veiðireynslu sinnar og bogfimi þegar hún þarf að berjast fyrir lífi sínu gegn krökkum á hennar reki í Hungur
leikunum.
Örkin hans Crowe
Gengið hefur verið frá ráðningu Russell
Crowe í hlutverk sjálfs Nóa í Biblíumynd
Darrens Aronofsky, Noah, sem fjallar,
eins og nafnið bendir til, um syndaflóðið.
Talið er líklegt að myndin verði tekin upp á
Íslandi en Aronofsky hefur sótt landið heim
tvisvar á síðustu tveimur árum.
Upphaflega átti Christian Bale að fara
með titilhlutverkið en hann kom því ekki
við vegna vinnu við næstu mynd Terrence
Malick. Aronofsky er einnig sagður vera
á höttunum eftir Liam Neeson í hlutverk
í myndinni.
Frá París til Rómar
Ákveðið hefur verið að breyta titli næstu
myndar meistara Woody Allen úr Nero
Fiddled í To Rome With Love þar sem Sony
Pictures taldi þann titil höfða til breiðari
hóps áhorfenda.
Rétt eins og í fyrri myndum Allens mætir
til leiks vel valinn hópur leikara úr öllum
áttum, meðal annarra Alec Baldwin,
Roberto Benigni, Penélope Cruz, Judy
Davis, Jesse Eisenberg og Ellen Page.
Þá fer Allen sjálfur með stórt hlutverk í
myndinni. Allen fékk ekki alls fyrir löngu
Óskarinn fyrir besta frumsamda handrit
sem er Midnight in Paris. Hún er jafnframt
hans vinsældasta mynd til þessa og hefur
smalað 150 milljónum dala í kassann.
frumsýndar
Friends with Kids er rómantísk
gamanmynd um tvo vini sem
ákveða að eignast saman barn
en sleppa ástinni og hjóna-
bandinu sem oft er undanfari
getnaðar. Spurningin er auð-
vitað hvort svona nokkuð geti
gengið upp?
Jason og Julie eru hluti
af stórum og samhentum
vinahópi sem samanstendur af
pörum í samböndum að þeim
tveimur frátöldum. Þau eru
bara vinir og eru því dálítið
utanveltu í hópnum. Þau eiga þó sameiginlegt að vilja eignast barn og koma
hinum í hópnum verulega á óvart þegar þau ákveða að eignast barn saman án
nokkurra annarra skuldbindinga.
Þegar barnið kemur í heiminn er ekki annað að sjá en að þau séu bæði afar
ánægð með þetta sérstaka fyrirkomulag en babb kemur í bátinn þegar þau
hitta bæði, nánast á sama tíma, fólk sem þau verða ástfangin af.
Aðrir miðlar: Imdb: 6.3, Rotten Tomatoes: 63%, Metacritic: 55%
Barn ástlausra vina
TILBOÐ
á 1 lítra
Kókómjólk
VonBrigði disney missTeig sig
Stórtap á John Carter
Risamyndin um ævintýri hermannsins John Carter
á Mars ætlar að reynast Disney stór biti að kyngja.
Aðsóknin á myndina fyrstu sýningarhelgina olli
framleiðandanum miklum vonbrigðum enda myndin
fokdýr í framleiðslu og hefði þurft að fara miklu
betur af stað.
Disney brást snarlega við áfallinu og sendi frá sér
aðkomuviðvörun um að fyrirsjáanlegt tap af John
Carter myndi nema 200 milljónum dollara og dælda
árshlutauppgjörið hressilega. Höggið virtist þó ekki
ætla að hafa mikil áhrif á gengi bréfa í Disney á
Wall Street og á þeim bænum horfa menn björtum
augum til sumarsins og ofurhetjumyndarinnar The
Avengers og Pixar-myndarinnar Brave.
John Carter virðist ekki ætla að ná upp í
kostnað.
K vikmynd leikstjórans Rus-sell Mulcahy naut umtals-verðra vinsælda þegar hún
kom í bíó árið 1986. þar fóru þeir
Christopher Lambert og Sean
Connery hamförum með sverð sín
á lofti sem tveir öflugir vígamenn
úr hópi ódaulegra manna sem ætlað
var að berjast þar til einn stæði eftir.
Þeir voru nefnilega ekki ódauðlegri
en svo að ef höfuð þeirra var skilið
frá búknum þá var ballið búið.
Leikst jórinn Juan Carlos
Fresnadillo (28 Weeks Later) hef-
ur viðrað draum sinn um að endur-
gera Hálendinginn og leggja þá enn
meiri áherslu á hversu mikil bölv-
un eilífðin er vegna þess að sá sem
aldrei deyr þarf að horfa á eftir öllu
sem hann elskar visna og deyja.
Fresnadillo segist vilja gefa þess-
um þætti ódauðleikans aukið vægi
en tengja tilvist Hálendingsins um
leið heimi sögunnar með spurn-
ingunum: „Af hverju er ég ódauð-
legur?“ og „af hverju er ég sá út-
valdi?“
Frakkinn Christopher Lambert
í hlutverki skoska hálendingsins
Connor McLeod.
TaKa TVö Ódauðlegir rísa
Hálendingurinn vaknar til lífsins