Fréttatíminn - 23.03.2012, Blaðsíða 62
ElEttra WiEdEmann Féll Fyrir Íslandi
Glæpamyndin Svartur á leik hefur gengið fyrir
fullum bíósölum frá frumsýningu og nú hafa
rúmlega 40.000 manns séð þennan harða
krimma sem byggir á samnefndri skáldsögu
Stefáns Mána. Gagnrýnendur hafa ausið
myndina lofi og stjörnum og hún hefur spurst
gríðarlega vel út. Myndin fékk síðan stuðning
úr óvæntri átt þegar Stefán Eiríksson, lög-
reglustjóri, mætti í Kastljós í vikunni og sagði
myndina afar góða og bókina enn betri. Þá
sagði lögreglustjóri myndina veita fólki mikil-
væga innsýn í það sem lögreglan er að glíma
við og ætti að auka skilning fólks á beiðnum lög-
reglunnar á auknum rannsóknarheimildum og
banni við skipulögðum glæpahópum.
Svartur leikur í kröfugerð lögreglu
Einar hættur
á Kananum
Skjárinn keypti Kanann, útvarpsstöð Einars
Bárðarsonar, í janúar og Einar fylgdi með
í kaupunum. Honum var þá ætlað að leiða
útvarpssvið Skjásins eins og Friðrik Frið-
riksson, framkvæmdastjóri, orðaði það þá.
Nú hafa hins vegar leiðir skilið og Einar er
hættur á Kananum. Friðrik segir í samtali við
Fréttatímann að allt sé þetta í góðu og litið
hafi verið svo á að frumkvöðlahlutverki Einars
væri lokið og framtíðarstefnumótun útvarps-
stöðvarinnar væri nú í höndum nýráðins dag-
skrárstjóra: Sigvalda Kaldalóns. Friðrik á þó
ekki von á öðru en að Einar muni dúkka upp í
einhvers konar samstarfi við Skjáinn.
Nýjar bækur frá
Nesbö og Läckberg
Út eru komnar hjá Upp-
heimum bækur eftir skandinavísku
glæpasagna- og metsöluhöfundana
Jo Nesbö og Camillu Läckberg.
Bókin Snjókarlinn eftir Norðmann-
inn Nesbö er fimmta bók hans
sem er þýdd á íslensku en hinar
fjórar, Rauðbrystingur, Nemesis,
Djöflastjarnan og Frelsarinn, hafa
allar slegið í gegn. Englasmiðurinn
er áttunda bókin sem þýdd er á ís-
lensku eftir hina sænsku Läckberg.
Bækur hennar um hjónin Patrick og
Eriku í Fjällbacka hafa slegið í gegn
á Íslandi sem og annars staðar.
Nesbö og Läckberg eru á meðal
mest seldu glæpasagnahöfunda í
heiminum í dag og hafa hvort um
sig selt hátt í tíu milljónir eintaka af
bókum sínum. -óhþ
Fyrir mér eru
þær [Ingrid
Bergmann og
Isabella Ros-
sellini] bara
mamma mín
og amma.
Fyrirsætan og
lífeindafræð-
ingurinn Elettra
Wiedemann er
28 ára gömul.
Hún verður andlit
komandi haustlínu
Lancome og hefur
vakið mikla lukku
með GOODNESS
veitingastaðnum.
Ljósmynd/Hari
Skýtur upp kollin-
um með gæðafæði
Lancome-fyrirsætan Elettra Wiedenmann kynnti veitingastað sinn, GOODNESS, til sögunnar á
tískuvikunni í New York í fyrra. Um er að ræða hreyfanlegan veitingastað, svokallaðan „pop-
up“ sem skýtur upp kollinum í stuttan tíma og býður upp á hollan og bragðgóðan mat sem
unninn er úr nærumhverfinu hverju sinni. Ellettra er dóttir Isabellu Rossellini og því barnabarn
sjálfrar Ingrid Bergman.
F ólkið sem lifir og hrærist í tískuheim-inum tók GOODNESS fagnandi í fyrra og leikurinn var endurtekinn
í New York í fyrra og nú ætlar Elettra að
koma með GOODNESS til Reykjavíkur í
fjóra daga, frá 22. til 25. mars, í tengslum
við HönnunarMars.
„Ég dvaldi í tvær vikur á Íslandi með bestu
vinum mínum og fjölskyldu og kolféll fyrir
landinu,“ segir Elettra í samtali við Frétta-
tímann. „Þannig að ég er að sjálfsögðu mjög
ánægð með að GOODNESS opni á Íslandi í
tengslum við HönnunarMars.“
Elettra hefur verið fyrirsæta hjá Lancome
frá árinu 2006 og fetar þannig í fótspor móð-
ur sinnar, leikkonunnar og fyrirsætunnar
Isabellu Rossellini, sem var andlit Lancome
á árum áður. „GOODNESS spratt að hluta til
upp úr reynslu minni af fyrirsætustörfum.
Ég ferðaðist mikið til dásamlegra borga en
hafði aldrei tíma til að prufa alla þá frábæru
veitingastaði sem voru á þessum stöðum.
Síðan gefur augaleið að starfs míns vegna
verð ég að borða heilsusamlega þannig að
á matseðlum GOODNESS eru aðeins hollir
réttir sem næra sál og líkama.“
Elettra er ekki kona einhöm því hún er
samhliða þessum afrekum með meistara-
gráður í lífeindafræði frá London School of
Economics. „Segja má að veitingastaðurinn
sé framhald af námi mínu og fræðiritgerð
minni sem fjallaði um framtíð fæðuöflunnar
fyrir fólk í þéttbýli.“
Elettra segir módelstörf og fræðilegt nám
ekki beinlínis fara vel saman en ... „ég hef
alltaf haft áhuga á vísindum og módelstörf
mín eru sveigjanleg að því leyti að þar er
ekki um níu til fimm vinnu að ræða. Það var
dálítið erfitt að sinna starfinu og náminu á
sama tíma en ég komst í gegnum þetta og er
mjög ánægð að hafa farið í námið.“
Isabella, móðir Elettru, er ekki síður
þekkt sem leikkona en hún var í slagtogi
við leikstjórann David Lynch á níunda ára-
tugnum og lék í myndum hans Blue Velvet
og Wild at Heart. Isabella er dóttir leikkon-
unnar goðsagnakenndu Ingrid Bergman og
ítalska leikstjórans Roberto Rossellini þann-
ig að frændgarður fyrirsætunnar er ekki af
verri endanum. En hafa móðir hennar og
amma haft einhver áhrif á sýn hennar á lífið
og tilveruna? „Nei. Það held ég ekki. Fyrir
mér eru þær bara mamma mín og amma.“
toti@frettatiminn.is
Þ ýski barinn, sem stað-settur verður í gamla hús-næði Gauks á Stöng á horni
Tryggvagötu og Hafnarstrætis,
opnar í kvöld, föstudagskvöld, með
pompi og prakt. Eins og nafnið gef-
ur til kynna verður þýskt þema alls-
ráðandi á staðnum. Boðið verður
upp á þýska smárétti og bjór í lítra-
könnum. Barinn verður fótboltabar
en auk þess er stefnt að því að lif-
andi tónlist verði á hverju kvöldi. Á
föstudögum og laugardögum mun
síðan húsband ráða ríkjum en það
er skipað þeim Birgi Ragnarssyni
bassaleikara, Kristjáni Grétarssyni
gítarleikara og Benedikt Brynleifs-
syni trommuleikara. Allir eru þeir
hoknir af reynslu úr tónlistarlífinu
og spilaðu meðal annars saman í
hljómsveitinni Ísafold, sem var hús-
band Idolsins á Stöð 2 árið 2006.
Kristján spilaði með föður sínum
Grétari í Stjórninni og Benedikt er
sjálfsagt þekktastur fyrir að vera
einn af Vinum Sjonna sem fluttu
framlag Íslendinga í Eurovision í
fyrra.
Bassaleikarinn Birgir segir í
samtali við Fréttatímann að hús-
bandið muni rótera söngvurum.
„Þetta byrjar með Magna á föstu-
daginn og síðan verður Svenni Þór
úr Lúxor á laugardaginn. Fleiri ball-
haukar á borð við Hreim og Matta
Matt munu dúkka upp. Þetta eru
allt vinir okkar. Við verðum ekki
alltaf með sama lagalistann. Það
fer eftir söngvurum hverju sinni.
Hver þeirra hefur sitt sérsvið og
sinn lagapott en þetta gerir það að
verkum að kvöldin verða fjölbreytt
og vonandi skemmtileg,“ segir Birg-
ir. -óhþ
Húsbandið er skipað Benedikti Bryn-
leifssyni, Kristjáni Grétarssyni og Birgi
Ragnarssyni. Ljósmynd/Hype
skEmmtanalÍFið Þýski barinn opnar
Húsband um helgar og þýskt þema
Ómissandi á pizzuna,
í ofn- og pastaréttina,
á tortillurnar og salatið.
Heimilis
RIFINN OSTUR
NÝJUNG
ÍSLENSKUR OSTUR
100%
62 dægurmál Helgin 23.-25. mars 2012