Fréttatíminn


Fréttatíminn - 23.03.2012, Blaðsíða 18

Fréttatíminn - 23.03.2012, Blaðsíða 18
Léttöl Léttöl í Evrópukeppnina 2012 77 dagar efnilegir á EM í sumar Evrópumótið í knattspyrnu er leiksvið þeirra allra bestu. Oft á tíðum skjótast ungir leikmenn upp á stjörnuhimininn á þessum mótum. Fréttatíminn skoðar hér tíu leikmenn í tíu liðum sem líklegir til að láta að sér kveða á mótinu í sumar. Alan Dzagoev Rússlandi Aldur: 21 árs Félag: CSKA Moskva (Rússlandi) Landsleikir/mörk: 18/4 Dzageov er yngsti útispilarinn sem hefur spilað með A-landsliði Rússlands frá upphafi en hann var 18 ára og 116 daga gamall þegar hann lék sinn fyrsta landsleik. Hann er framliggjandi miðjumaður sem Guus Hiddink, fyrrverandi landsliðsþjálfari Rússlands, lýsti sem snjöllum leikmanni sem getur gefið frábærar sendingar og opnað glufur í vörnum. Dzageov var orðaður við Real Madrid árið 2008 en hefur lýst því yfir að hann vilji frekar fara til Englands þegar hann yfirgefur heimalandið. Christian Eriksen Danmörku Aldur: 20 ára Félag: Ajax (Hollandi) Landsleikir/mörk: 21/2 Eriksen þykir vera einn efnilegasti leikmaður Evrópu. Hann spilar sem framliggjandi miðjumaður og tækni hans og útsjónarsemi hefur komið mörgum andstæðingum hans í vanda. Hann er, þrátt fyrir ungan aldur, lykilmaður í Ajax og danska landsliðinu og horfa Danir til þess að hann muni verða stjarna liðsins næstu árin. Eriksen hefur verið undir smásjá flestra stórliða Evrópu og goðsögnin Johan Cruyff er í aðdáendahópi hans; telur hann jafnvel geta náð lengra en Laudrup- bræðurnir Michael og Brian – bestu knattspyrnumenn í sögu Danmerkur. Iker Muniain Spáni Aldur: 19 ára Félag: Athletic Bilbao (Spáni) Landsleikir/mörk: 1/0 Muniain er Baski og lykilmaður í frábæru liði Athletic Bilbao sem hefur slegið í gegn í Evrópudeild- inni. Spænskir fjölmiðlar hafa gefið honum viðurnefnið „hinn spænski Messi“ sökum leikstíls hans en Muniain er gríðarlega fljótur og leikinn. Hann lék sinn fyrsta landsleik í síðasta mánuði gegn Venesúela og þótt hann sé ekki orðinn lykilmaður í spænska liðinu er Vincente Del Bosque, lands- liðsþjálfari Spánar, ekki svikinn af því að hafa leikmann sem hann til taks. Jack Wilshere Englandi Aldur: 20 ára Félag: Arsenal (Englandi) Landsleikir/mörk: 5/0 Wilshere er helsta vonarstjarna enskrar knattspyrnu og sennilega hæfileikaríkasti miðjumaður enska liðsins frá því að ólíkindatólið Paul Gascoigne var og hét. Wilshere má heita alhliða miðjumaður. Hann hefur góða tækni, mikla hlaupagetu, les leikinn vel og er grjótharður í tæklingum. Hann hefur verið meiddur allt þetta tímabil en allir Englendingar vona að hann verði klár fyrir EM enda hefur Fabio Capello, fyrrverandi landsliðsþjálfari Englands, sagt hann algeran lykilmann í liðinu. John Guidetti Svíþjóð Aldur: 19 ára Félag: Feyenoord (Hollandi) Landsleikir/mörk: 1/0 Hinn sænski Guidetti hefur viðurnefnið „Nashyrningurinn“ sökum vaxtarlagsins. Hann ólst upp í Kenýa og spilaði fótbolta með fílum. Guidetti, sem er á láni frá Manchester City hjá Feyenoord í Hollandi, hefur slegið í gegn á þessu tímabili og skoraði meðal annars þrennu í þremur leikjum í röð. Hann er fljótur, nautsterkur og með gríðarlegt þol – martröð varnarmanna. Hann er mað- urinn sem Svíar horfa til að taki við af Zlatan þegar hann hættir. Kyriakos Papadopoulos Grikklandi Aldur: 20 ára Félag: Schalke (Þýskalandi) Landsleikir/mörk: 7/2 Þrátt fyrir ungan aldur er Pa- padopoulos lykilmaður í vörn þýska liðsins Schalke. Hann þykir vera gríðarlega öflugur varnarmaður og mikill leiðtogi sem varð fyrirliði U-21 árs liðs Grikkja einungis sautján ára. Papadopoulos er ekki hár í loftinu en mjög hættulegur í föstum leikatriðum og hefur til að mynda skorað tvö mörk fyrir Grikki í aðeins sjö lands- leikjum. Luuk de Jong Hollandi Aldur: 21 árs Félag: Twente (Hollandi) Landsleikir/mörk: 7/1 Luuk de Jong er hávaxinn framherji og lykilmaður í sterku liði Twente. Hann hefur farið á kostum á þessu tímabili og skorað 19 mörk í 22 leikjum. Samkeppnin um fram- herjastöðurnar í hollenska liðinu er mikil og því óvíst hvort de Jong spili stórt hlutverk á Evrópumótinu. Hann hefur hins vegar sýnt að hann er fullfær um að spila með þeim allra bestu og hefur þegar skorað sitt fyrsta mark fyrir hollenska liðið. Mamado Sakho Frakklandi Aldur: 22 ára Félag: Paris St. Germain (Frakklandi) Landsleikir/mörk Sakho er stór og sterkur miðvörður sem getur líka spilað sem vinstri bak- vörður. Hann varð yngsti leikmaðurinn í sögu efstu deildar í Frakklandi til leiða lið sitt út á völlinn sem fyrirliði Paris St. Germain aðeins sautján ára að aldri. Leiðtogahæfileikar hans eru miklir og þegar þeim er blandað saman við vinnusemi, styrk og hraða er útkoman góð. Sakho er af flestum talinn vera fram- tíðarfyrirliði Frakka. Mario Balotelli Ítalíu Aldur: 21 árs Félag: Manchester City (Eng- landi) Landsleikir/mörk: 7/1 Undrabarnið og ólíkindatólið Mario Balotelli er án nokkurs vafa einn af efnilegustu leik- mönnum heims um þessar mundir. Balotelli er stór, sterkur, fljótur, með góða tækni og frábærar spyrnur með báðum fótum. Þrátt fyrir óteljandi upp- átæki utan vallar sem innan er hann þegar orðinn lykilmaður í stjörnumprýddu liði Manchester City og gæti reynst Ítölum dýr- mætur á EM – ef hann á annað borð nennir því. Mario Götze Þýskalandi Aldur: 19 ára Félag: Borussia Dortmund (Þýskalandi) Landsleikir/mörk: 12/2 Mario Götze er einn eftir- sóttasti leikmaður Evrópu um þessar mundir. Þjóðverjar halda ekki vatni yfir honum og hefur Mathias Sammer, yfirmaður knattspyrnumála hjá þýska landsliðinu og goðsögn í boltanum, lýst Götze sem einum þeim hæfileikaríkasta sem komið hefur fram í Þýskalandi. Götze er eldfljótur, gríðarlega leikinn og hugmyndaríkur og á eftir að leika stórt hlutverk í frábæru þýsku liði á Evrópumótinu. 18 fótbolti Helgin 23.-25. mars 2012
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.