Fréttatíminn


Fréttatíminn - 23.03.2012, Blaðsíða 36

Fréttatíminn - 23.03.2012, Blaðsíða 36
Rökrétt ályktun Jónas Haraldsson jonas@ frettatiminn.is HELGARPISTILL E Te ik ni ng /H ar i Sjónvarpið og alls konar myndir í mynd- tækjum, tölvum og símum eru barnapíur samtímans. Það sé ég á eigin barnabörn- um og raunar öðrum börnum sem ég veit af. Einhver kann að hneykslast á þessu en varla er ástæða til þess. Langlúnir foreldr- ar þurfa örlítinn frið þar sem báðir vinna langan vinnudag. Sama gildir um morgna um helgar. Það er óneitanlega blessun fyrir sömu foreldra að vita af barnaefni sjónvarpsstöðvanna sem hefst snemma. Þá má lúra svolítið lengur. Allir þeir foreldrar ungra barna sem ég þekki lesa líka fyrir börnin áður en þau fara að sofa. Þau fara því ekki á mis við þær ljúfu stundir rétt áður en Óli lokbrá vitjar þeirra. Myndefnið í sjónvarpinu, tölvunum og símunum er því aðeins viðbót við það sem tíðkaðist þegar við hjónakorn- in ólum upp okkar börn, foreldra ungra barna í dag. Bækur eru því enn yndi þótt tölur um lestrarkunnáttu barna, einkum drengja, sýni að betur má gera. Í bókunum býr undraheimur sem gott er að halla sér að hvenær sem er ævinnar. En slíkur heimur er líka í kvik- og teiknimynd- um fyrir unga og gamla. Barnabörnin taka ömmu og afa, einkum af- anum, langt fram í tækniþekkingu og með- ferð þeirra tóla sem til þarf, hvort heldur er afspilunartæki, sjónvarp, tölva eða sími. Þetta á ekki síst við um símana sem eru hrein undratól og fjarri gamla afasímanum sem aðeins er notaður til að hringja og svara og senda og lesa stöku skilaboð. Þannig syngur afadrengur á öðru ári og dansar fugladansinn í takt við mynd og hljóð símans og önnur barnabörn, litlu eldri, finna sér leiki og annað skemmtilegt. Börnin eru alin upp í tækniheimi og því er þessi búnaður sem framlenging handa þeirra þar sem þau rata vandræðalaust um óravegu. Þótt afar og ömmur eigi kannski að vera árrisulli en foreldrar lítilla barna geta hin fyrrnefndu líka hugsað sér að sofa út um helgar – einnig þegar barnabörnin fá að gista. Þá er gott að vita af barnaefninu m/ost i, gúrk u, lauk,p apríku , iceber g, smok ey BB Q sós u og gri ll “fla vour” marin eringu MÁLT ÍÐ MÁNA ÐARIN S 1095.- M/FRÖNSKUM & COKE Er lesblinda hindrun á vegi þínum eða barnsins þíns? Viltu ná árangri í námi? Viltu betri einbeitingu? Viltu skrifa af meiri leikni? Viltu fá ánægju af lestri? Nýtt! Lestrarhjálpin. Styttri námskeið ætluð 7 til 10 ára. Nýtt! Hugarkort. Einföld og árangursrík glósutækni, frá 9 ára. Davis® lesblinduráðgjafar Lesblindulistar eru: Áslaug - Hugrún - Ingibjörg - Sigrún - Sigurborg Við höfum 8 ára frábæra reynslu af Davis® aðferðinni Erum á kyrrlátum stað í Mosfellsbænum að Völuteigi 8. NÁÐARGÁFAN LESBLINDA www.lesblindulist.is Helgin 23.-25. mars 2012
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.