Fréttatíminn


Fréttatíminn - 23.03.2012, Blaðsíða 34

Fréttatíminn - 23.03.2012, Blaðsíða 34
... til framtíðar mun sameinaður Landspítali við Hringbraut styrkja miðborgina mikið. Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjóri: Jón Kaldal kaldal@frettatiminn.is Framkvæmdastjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is Fréttastjóri: Óskar Hrafn Þorvaldsson oskar@frettatiminn.is Ritstjórnarfulltrúi: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is. Auglýsinga- stjóri: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti. S Sjálfstæðismenn í borginni hafa ákveðið að gera andstöðuna við byggingu nýs Land- spítala við Hringbraut að sínu hjartans máli. Að ala á ótta við breytingar í skipulagi hefur enda löngum reynst freistandi vopn í stjórnmálaátökum. Davíð Oddsson rak til dæmis mjög vel heppnaða kosningabaráttu 1982 þegar hann sigldi í stól borgarstjóra undir seglum þess að byggð við Rauðavatn, í Selási, á Ártúns- holti og í Norðlingaholti væri óðs manns æði: Þar væri stórhættu- legt sprungusvæði og því ætti frekar að byggja við Grafarvog og áfram í átt að Mosfellsbæ. Eins og varð raunin. Seinna var svo, fyrir rest, líka byggt á hinum stöðunum. Og sjálfur sækir nú borgarstjórinn fyrrverandi vinnu á hið háskalega sprungusvæði. Eftir nokkur ár sem borgarstjóri lenti Davíð í öðrum skipulagsátökum nema hvað hlutverkunum hafði verið snúið við; nú var það minnihlutinn sem fann fyrirætlunum hans allt til foráttu. Davíð vildi sem sagt byggja ráðhús við Tjörnina. Og hafði sitt fram; ráðhúsið hefur staðið stásslega við Tjörnina í tuttugu ár. Þegar baráttan gegn byggingu ráðhús- ins er skoðuð öllum þessum árum síðar er erfitt annað en að undrast þann mikla til- finningahita sem þá gaus upp. Meðal þess sem var teflt fram gegn byggingunni var að fuglalíf við Tjörnina – og reyndar gjörvallt lífríki hennar – átti að verða gereyðingu að bráð. Og svo er auðvitað spá eins borgarfull- trúa minnihlutans um að ekki væri hægt að byggja ráðhús á þessum stað því það myndi annað hvort sökkva eða fljóta upp, sérstak- lega minnisstæð. Flest önnur rök gegn húsinu voru á hinn bóginn þekkt leiðarstef í andófi gegn nýjum byggingum og forvitnilegt að rifja upp þau helstu og máta forspárgildi þeirra við raunveruleikann: Húsið er alltof stórt. Það mun yfirskyggja aðrar byggingar. Ráðhúsið mun auka mjög umferðarvanda á svæðinu. Framtíðarsýn skorti þegar lóðin var valin, hún liggur í útjaðri Reykjavíkur og verður á komandi tímum þeim mun afskekktari, sem uppbyggingu borgarinnar miðar meir áfram. Ráðhús á að byggja annars staðar. Ljótast af öllu þótti svo málsmeðferðin, hvernig átti að ryðja á málinu í gegn. Sömu athugasemdir eru nú settar fram til höfuðs stækkun Landspítala við Hring- braut. Vel kann að vera að þær eigi betur við heldur en þegar þeim var beitt gegn ráðhús- inu á sínum tíma. Rétt eins og þá segja hins vegar þeir sem höndla með skipulagið að þetta sé ástæðulaus ótti. Í þessum efnum ætti að róa þá sem hafa áhyggjur að stækkun Landspítalans við Hringbraut á sér mjög langan aðdraganda. Deiliskipulag fyrir nýjum spítala á þessum slóðum hefur verið í gildi frá 1976, eða í næstum því fjóra áratugi, og í aðalskipulagi Reykjavíkur hefur hann verið við Hring- brautina frá 1984. Stærð og umfang nýbygginganna falla líka vel við vinningstillögu alþjóðlegu hug- myndasamkeppninnar um skipulag Vatns- mýrarinnar frá 2008. Þar er gert ráð fyrir húsum af svipaðri hæð, fjórar til sex hæðir eða sömu hæðar og eru nú þegar víða í gamla miðbænum. Það er mikil synd ef stjórnmálamennirnir í borginni geta ekki sameinast um að nýr spítali rísi við Hringbrautina því til fram- tíðar mun sameinaður Landspítali styrkja miðborgina mikið. Nýr Landspítali við Hringbraut Kunnugleg leiðarstef í andófi gegn byggingum Jón Kaldal kaldal@frettatiminn.is Landsnet býður til opins kynningarfundar um rekstrarumhverfi fyrirtækisins og framtíðarþróun raforkuflutningskerfisins á Hilton Reykjavík Nordica, 2. hæð (salur H-I), fimmtudaginn 29. mars kl. 9:00 - 12:00. Starfsumhverfi Landsnets: Tekjurammi og hlutverk Landsnets í framtíðarskipan orkumála. Geir A. Gunnlaugsson, stjórnarformaður Landsnets. Rekstrarumhverfi Landsnets: Þróun gjaldskrár og framkvæmdir. Þórður Guðmundsson, forstjóri Landsnets. Þróun flutningskerfis Landsnets: Þjóðhagslegur ávinningur. Guðmundur Ingi Ásmundsson, aðstoðarforstjóri Landsnets. Flutningskerfið og umhverfið: Háspennulínur og strengir. Íris Baldursdóttir, deildarstjóri kerfisstjórnar Landsnets. Fundarstjóri: Þorgeir J. Andrésson, skrifstofustjóri Landsnets. Skráning á kynningarfundinn fer fram á heimasíðu Landsnets, www.landsnet.is. Boðið verður upp á morgunhressingu frá kl. 8:30. Allir velkomnir! Opinn kynningarfundur Landsnets Dagskrá: www.landsnet.is Í síðasta tölublaði Fréttatímans, sem kom út föstudaginn 16. mars, skrifar Kristín Cecilsdóttir undir grein um aðalfund Dýraverndunarsambands Ís- lands þar sem dregin er mjög einkennileg mynd af mínum þætti í fundarstörfunum. Í fyrstu ætlaði ég ekki að svara greininni því að þessi innansveitarkróníka um for- mannsslag í DÍ á ekkert erindi í fjölmiðla nema þá kannski helst til að koma við- horfum frambjóðendanna á framfæri. Þar sem Kristín skellir skuldinni á mig um hvernig fór, sem sagt að Árni St. Árnason fékk einungis 29 ákvæði (þar af hans eig- ið) og Sif Traustadóttir 105, verð ég þó að leiðrétta rangfærslur og fyrst og fremst benda á að það skiptir kannski ekki öllu máli hver er formaður DÍ, heldur að mál- efnið, sem sagt velferð dýra (gæludýra og búfjár), sé á höndum allra sem geta lagt málinu lið. Við þurfum að standa öll saman og horfa í sömu átt í staðinn fyrir að ýta undir deilur manna á milli. Hver hefur svo sínar aðferðir til að ná markmiðinu. Ég er formaður Slow Food í Reykjavík og meðlimur í framkvæmdanefnd Samtaka lífrænna neytenda, í hvorum tveggja samtökunum hef ég verið frá stofnun og er því þar stofnmeðlimur. Aftur á móti er ég algjör- lega óbreyttur meðlimur í DÍ og hljóp í skarðið kvöldið fyrir aðalfund sem fundarstjóri, þar sem ég er vön fundarstjórn. Það er rangt sem Kristín staðhæfir að stuðningsmenn Árna hafi ekki fengið orðið á fundin- um, Kristín sjálf fékk 5 mínútur í pontu (allir hinir voru með innlegg sem tók innan við mínútu) og á mælenda- skrá voru fleiri stuðningsmenn Árna en Sifjar. Aftur á móti voru teknar fyrir persónulegar árásir á fráfarandi formann DÍ, Ólaf Dýr- mundsson, enda sáu tveir fundarmenn sig knúna til að taka til máls til að biðja fundargesti um að hætta slíkum árásum. Svo er manni spurn: Hefur fundarstjóri virkilega þau áhrif að einungis 28 af stuðningsmönnum Árna mættu á fund- inn? Sömuleiðis settur Kristín út á það að ég hafi skrifað undir eigin nafni færslu á Fa- cebook-síðu Samtaka lífrænna neytenda til stuðnings Sif – stuðningsmenn Árna voru með margar síður á netinu, meðal annars á Facebook, og það er ekki að sjá að þessi eina færsla hafi haft mikil áhrif nema til að æsa upp stuðningsmenn Árna og þess vegna var hún fjarlægð. Þeir sem segja að ég hafi neitað því að ég þekkti Ólaf Dýrmunds- son fara með fleipur. Mér dytti aldrei í hug að fara með þannig ósannindi enda hefur Ólafur verið meðlimur í Slow Food frá upphafi og setið í ráðgjafarnefnd Sam- taka lífrænna neytenda frá stofnun samtakanna þannig að við höfum starfað náið saman á þeim vettvangi í mörg ár eins og allir vita sem til þekkja. Ég hef engar áætlanir um að sækjast eftir ábyrgðar- stöðu í DÍ en vil styrkja sambandið í þeim málefnum sem eru sameiginleg (meðal annars velferð búfjár) með þeim samtökum sem ég er í forsvari fyrir. Það eina sem ég gerist sek um hér er að hafa kosið ákveðna manneskju með mínu atkvæði. Þeir sem töpuðu í þessari kosningu ættu að líta í eigin barm frekar en að kenna öllum öðrum um og muna að við erum að vinna að sama málefni, sem er verðugt og þarft. Aðalfundur Dýraverndunarsambands Íslands Innansveitarkróníka Dominique Plédel Jónsson, formaður Slow Food í Reykjavík. 34 viðhorf Helgin 23.-25. mars 2012
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.