Fréttatíminn - 23.03.2012, Síða 10
Ögn fleiri stúlkur en strákar í
fimmta bekk segjast eiga gsm-síma.
S jónvarpsáskrift í dag byggir æ meira á þjónustu sem krefst móttökubún-aðar. Það sem drífur hana áfram eru
möguleikar áskrifenda til að geta valið það
sjónvarpsefni sem þeir vilja sjá á þeim tíma
sem hentar. Þeir vilja geta horft á sjónvarps-
þætti á öðrum tíma en þegar þeir eru sendir
út. Það er þessi þörf sem Síminn er að upp-
fylla og til þess þarf áskrifandinn að hafa
móttökutæki og gagnvirka sjónvarpsteng-
ingu,“ segir Tryggvi G. Guðmundsson hjá
Sjónvarpi Símans – heildsölu, þar sem hann
svarar Ásbirni R. Jóhannessyni, forstöðu-
manni rafiðnaðarsviðs Samtaka iðnaðarins,
sem hann segir hafa gefið í skyn í síðasta
tölublaði Fréttatímans að ekki þyrfti mót-
tökutæki nema fyrir útsendingar gegnum
fjarskiptalagnir.
Ásbjörn sagði það algengan misskilning
að ekki væri hægt að taka á móti stafrænni
sendingu gegnum loftnet auk þess sem
greint var frá umsögn Samtaka iðnaðarins,
Samtaka atvinnulífsins og Landssambands
útvegsmanna til Alþingis þar sem hvatt
var til þess að hagkvæmasti kosturinn til
móttöku hljóðvarps- og sjónvarps yrði ekki
fyrir borð borinn.
Tryggvi mótmælir ýmsu því sem haft var
eftir Ásbirni, meðal annars því að Síminn
hafi lokað Breiðbandinu. „Síminn lokaði
ekki Breiðbandinu,“ segir hann, „heldur var
það uppfært í gagnvirkt IP flutningskerfi.
Það eina sem lokaðist var hliðræn útsending
RÚV. Öll önnur þjónusta var áfram í boði
og mikið af nýrri þjónustu bættist við án
aukakostnaðar.“ Þá andmælir Tryggvi því
að aukakostnaður vegna sendinga um síma-
lagnir sé mannréttindabrot. „Það er sami
kostnaður fyrir áskrifendur hvort þeir eru
með Breiðbandslykil eða IPTV myndlykil,“
segir Tryggvi og bætir því við að skipulags-
yfirvöld í Hafnarfirði hafi ekki bannað loft-
net á húsum vegna Breiðbandsins. Þau hafi
bannað loftnet á þeim húsum sem tengdust
kapalkerfi sem sveitarfélagið stóð sjálft að.
Það bann hafi verið sett á 15 árum áður en
Síminn lagði sínar fyrstu Breiðbandslagnir.
Tryggvi vísar einnig til þess sem sagði
í fréttinni að betur sé staðið að málum hjá
365, sem hann segir hvorki reka né setja
upp senda fyrir. „365 rekur sjónvarpsstöðv-
ar sem dreift er á kerfum Símans og Voda-
fone. Vodafone rekur umtalað sendakerfi en
það streyma áskrifendur frá loftnetakerfum
yfir í IP kerfin vegna þeirrar þjónustu sem
gagnvirkt sjónvarp yfir fjarskiptalagnir býð-
ur upp á. Ástæðan er augljós því kostnaður-
inn er sá sami en þjónustan mun meiri.“
„Það efast enginn um,“ bætir Tryggvi við,
„að hægt sé að taka við stafrænu sjónvarps-
merki með loftneti. En það er hins vegar erf-
iðara að veita gagnvirka þjónustu gegnum
loftnet þar sem fólk getur til dæmis pantað
sjónvarpsefni utan útsendingartíma. Þess
vegna eru loftnetin að fara halloka á þeim
svæðum sem fólk getur valið milli lotnets og
fjarskiptalagna.“
Tryggvi segir enn fremur að sjófarendur
geti ekki reitt sig á loftnet enda sé þar notuð
gervihnattadreifing. Ágæt lausn sé hins
vegar að reka loftdreifingu á strjálbýlum
svæðum en það stöðvi ekki þróunina í þétt-
býli.
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
86,3
90,6
Síminn
lokaði
ekki
Breið-
bandinu.
FjarSkipti LoFtnet og Lagnir
Áskrifendur
vilja geta horft
á sjónvarps-
þætti á öðrum
tíma en þegar
þeir eru sendir
út. Til þess,
segir Tryggvi G.
Guðmundsson
hjá Sjónvarpi
Símans, þarf
móttökutæki
og gagnvirka
tengingu.
Erfiðara að veita gagnvirka
þjónustu gegnum loftnet
Erfiðara er að veita gagnvirka þjónustu gegnum loftnet þar sem fólk getur til dæmis pantað sjónvarpsefni utan útsendingar-
tíma. Ljósmynd Hari
Hugmyndarík
hársnyrting
Vilji fólk sjá hárgreiðslu með stíl og jafnvel
ævintýralega hársnyrtingu gefst tækifæri
til þess í dag, föstudaginn 23. mars klukkan
20. Hársnyrtiskólinn verður með útskriftar-
sýningu í Súlnasal Hótels Sögu. Sýningin er
hugsuð sem lokakafli og uppskera námsins
þar sem hugmyndaflugið fær að njóta sín
og leika lausum hala. Sýningin er unnin af
nemendum undir leiðsögn kennara Hár-
snyrtiskólans.- jh
Stýrivextir hækkaðir
Peningastefnunefnd Seðlabanka Ís-
lands ákvað á miðvikudaginn að hækka
vexti bankans um 0,25 prósentustig. Í
umsögn nefndarinnar segir að horfur
um efnahagsumsvif séu í meginatriðum
eins og í febrúarspá bankans en gengi
krónunnar sé hins vegar veikara en í
febrúar og verðbólguhorfur til skamms
tíma hafi versnað nokkuð frá því sem var
gert ráð fyrir í spánni. „Litið lengra fram
á veginn er hætta á að verðbólga verði
lengur fyrir ofan verðbólgumarkmið en
spáð var, styrkist krónan ekki á komandi
mánuðum. Í hvaða mæli þétting á glufum
í gjaldeyrislögum mun hafa áhrif á gengi
krónunnar kemur í ljós á næstunni,“ segir í
tilkynningu Seðlabankans. Þar kemur enn
fremur fram að batni verðbólguhorfur ekki
sé líklegt að hækka þurfi nafnvexti frekar á
næstunni. - jh
Stærsta
útflutningsverkefni
Odda í bókum
Prentsmiðjan Oddi lauk nú nýverið prentun
á bókinni „Norges Nasjonalretter“ fyrir
norska bókaforlagið Norsk Fakta Forlag
sem hefur aðsetur í Osló. Um er að ræða
stærsta einstaka upplag á harðspjaldabók
sem prentað hefur verið á Íslandi, en
upplagið var 60 þúsund eintök. Þetta er
stærsta útflutningsverkefni Odda í bókum
og til marks um umfangið voru fjórir 40
feta gámar eða um 100 tonn af bókum
sendir til Noregs, að því er fram kemur í
tilkynningu Odda. Bókin er hluti af ritröð
vinsælustu matreiðslubóka Norðmanna
og er sú sextánda í röðinni. Norges Na-
sjonalretter er alls 352 blaðsíður og er ríku-
lega myndskreytt og inniheldur uppskriftir
flokkaðar eftir svæðum í Noregi. - jh
Íbúðaverð lækkar lítillega
Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um 0,2 prósent í
febrúar, samkvæmt vísitölu íbúðaverðs sem Þjóðskrá Íslands
birti. Sérbýli lækkaði í verði um 1 prósent frá fyrri mánuði en
verð íbúða í fjölbýli stóð í stað. Fyrstu tvo mánuði ársins hefur
íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu nánast staðið í stað. Sérbýli
hefur lækkað um 0,3 prósent og verð íbúða í fjölbýli er óbreytt.
Undanfarna 12 mánuði hefur íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu
hins vegar hækkað um 7,8 prósent, sérbýli um 7,6 prósent og
íbúðir í fjölbýli um 7,9 prósent. Að teknu tilliti til verðbólgu nem-
ur hækkunin á íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu, að því
er fram kemur hjá Greiningu Íslandsbanka, 1,7 prósentustigum
að raunvirði. Greiningin spáir því að íbúðaverð fari hækkandi á
næstu misserum. - jh
0,2%
LækkUN
ÍBúðArVErðS
Febrúar 2012
Þjóðskrá
Íslands
Heimild: Skýrsla rannsókna og greininga ehf um ungt fólk 2011
10 fréttir Helgin 23.-25. mars 2012