Fréttatíminn


Fréttatíminn - 23.03.2012, Side 12

Fréttatíminn - 23.03.2012, Side 12
PÁSKATILBOÐ Hlíðasmára 13, Kóp - S. 554 0400 YFIR 30 GERÐIR GASGRILLA Á PÁSKATILBOÐI Er frá Þýskalandi FULLT VERÐ 54.900 44.900 viðargrind Mjög öflugt Opið laugardag til kl. 14 Emaleraðar grillgrindur 3 kraftmiklir brennarar Nr.00553 Sterk viðargrind Stærð: 145 x 106 x 62cm Emaleraðar grillgrindur 3 kraftmiklir brennarar Sterk viðargrind Stærð: 136 x 106 x 62 grill Skoðið úrvalið á www.grillbudin.is F átt hefur verið meira talað um í íþróttaheiminum undanfarna daga en atvikið þar sem Fa- brice Muamba, hinn 23 ára leikmað- ur Bolton, hneig niður í miðjum leik gegn Tottenham, um síðustu helgi og fór í hjartastopp. Muamba var haldið sofandi í öndunarvél fram á mánudag en hefur tekið stórstígum framförum þótt ástand hans sé enn alvarlegt. Muamba er ekki fyrsti knatt- spyrnumaðurinn sem fær fyrir hjart- að í knattspyrnuleik á undanförnum árum. Skemmst er að minnast þess að Kamerúninn Marc Vivian Foe lést í leik Kamerún og Kólombíu árið 2003 vegna hjartabilunar. Guðmundur Þorgeirsson, yfir- læknir á hjartadeild Landspítalans, segir að það sé ekki hans tilfinning að hjartabilanir knattspyrnumanna séu fleiri nú til dags en áður. Það sé hins vegar meira áberandi í dag og oft í beinni útsendingu. Varðandi mál Muamba segir Guðmundur að sjúkdómsgreining hafi ekki verið gefin út og því viti hann ekki nákvæmlega hvað hafi hrjáð. „Margir hjartasjúkdómar geta legið til grundvallar atviki sem þessu. Algengasta orsökin hjá ungum íþrótta- mönnum og keppnis- fólki sem er undir miklu álagi er tiltekinn hjartavöðvasjúkdómur sem er arfgengur. Hann kallast ofþykktar- hjartasjúkdómur og lýsir sér í því að hjartavöðvinn er óeðlilega þykkur. Íþróttafólk með þennan sjúkdóm hefur tilhneigingu til að fá takttruflanir sem geta reynst banvænar. Þetta fólk er undir gríðarlegu álagi og þótt slík þjálfun sé heilsuvæn í aðalatrið- um þá getur veikleiki í kerfinu afhjúpast með miklum hvelli við slíkar aðstæður,“ segir Guðmundur. Þegar hjartavöðvinn er óeðlilega þykkur getur fólk fengið svo- kallaðan sleglahrað- takt, runu af aukaslögum, sem eiga upptök sín í sleglunum, pumpuhólf- um hjartans, en ekki í gangráðnum sem á að stjórna hjartslættinum. „Í kjölfar sleglahraðtakts getur komið svokallað sleglatif, kaótískur taktur, sem leiðir til þess að afköst hjartans snarminnka og verða jafnvel engin. Hjartað hættir að pumpa, blóðþrýst- ingurinn lækkar skyndilega og ekk- ert blóð berst til heilans né annarra líffæra. Ef ekki er brugðist við leiðir þetta á stuttum tíma til dauða,“ segir Guðmundur. Hann segir að farið sé að mæla með því í mjög auknum mæli að íþróttafólk fari í hjartaskoðun. „Það má yfirleitt greina þennan ofþykktar- hjartasjúkdóm með hjartaómskoðun en við fáum ekki fólk kerfisbundið til okkar. Ef fólk sem er í hörðum keppnisíþróttum fær svima eða brjóstverki við áreynslu þá er það ótvírætt tilefni til að láta skoða hjart- að í sér,“ segir Guðmundur. Óskar Hrafn Þorvaldsson oskar@frettatiminn.is Fjórir sem hafa látist eftir hjartastopp á fótboltavelli 2003 Marc Vivien Foe Foe var 28 ára gamall ka- merúnskur landsliðsmaður sem lést eftir hjartastopp í landsleik Kamerún og Kólombíu í Lyon í Frakk- landi. Hann var með ofþykktarhjartasjúkdóm 2004 Miklós Feher Feher var 24 ára gamall leikmaður Benfica sem lést eftir hjartastopp í leik gegn Vittoria í portúgölsku deildinni. Hann var með ofþykktarhjartasjúkdóm. 2006 Rasmus Green Green var 26 ára gamall leikmaður danska liðsins Næstved sem hneig niður á æfingu eftir hjartaáfall og var úrskurðaður látinn við komu á sjúkrahús. 2007 Antonio Puerta Puerta var 22 ára gamall leikmaður Sevilla sem hneig niður í leik gegn Getafe í spænsku úrvals- deildinni. Puerta þjáðist af hjartasjúkdómi sem lýsir sér þannig að vöðvafrumur hægra megin í hjartanu mynda sinn eigin hjart- slátt, óháð taugakerfinu. Hann kallast í daglegu tali ARVC. Þórir Hákonarson, framkvæmda- stjóri Knattspyrnusambands Ís- lands, segir í samtali við Frétta- tímann að sambandið taki atburði sem þessa mjög alvarlega. „Við sendum til að mynda nú í byrjun vikunnar bréf til allra félaga í efstu deild karla og kvenna sem og fyrstu deild karla með fyrir- spurn um hvort hjartastuðtæki sé til staðar á völlunum og hvort einhver kunni á tækið. Við bíðum eftir svörum frá félögunum og skoðum hver staðan er í fram- haldinu,“ segir Þórir. Aðspurður segir Þórir að gerð sé krafa um læknisskoðun í Leyfiskerfi KSÍ en það sé ekki tæmandi læknisskoðun. „Þetta er ekki eins stíft og hjá Knatt- spyrnusambandi Evrópu en liðin í Evrópukeppninni þurfa að gangast undir mjög stífa læknis- skoðun. Mér telst til að á síðustu þremur árum hafi leikmenn sjö liða í efstu deildinni hér heima gengist undir líka læknisskoðun sem felur meðal annars í sér hjartaómskoðun,“ segir Þórir og bætir við að í kjölfarið á atvikinu þegar Fabrice Muamba hneig niður um síðustu helgi hafi for- ráðamenn KSÍ ákveðið að taka með hjartastuðtæki í allar keppn- isferðir erlendis. Knattspyrnu- heimurinn stóð á öndinni þegar Muamba hneig niður á White Hart Lane um helgina. Nordic Photos/Getty Images Yfirlæknir á hjartadeild Landspítalans segir að margir hjartasjúkdómar geti orsakað það sem kom fyrir Fabrice Muamba, leikmann Bolton, í bikarleik gegn Tottenham um liðna helgi. Muamba hneig niður undir lok fyrri hálfleiks og fór í hjartastopp. Læknirinn telur líklegast að um ofþykktarhjartasjúkdóm sé að ræða sem er algengasta orsökin fyrir alvarlegri hjartsláttaróreglu hjá ungum íþróttamönnum. Veikleiki í kerfinu getur afhjúpast með miklum hvelli Hafa sent fyrirspurnir um hjartastuðtæki á völlum Þórir Hákonarson, framkvæmda- stjóri Knattspyrnusambands Íslands. Guðmundur Þorgeirsson, yfirlæknir á Landspítalanum. 12 fréttaskýring Helgin 23.-25. mars 2012

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.