Fréttatíminn - 23.03.2012, Qupperneq 16
COSTA TUNGUSÓFI !
betrabak@betrabak.is • www.betrabak.is
Faxafeni 5, Reykjavík og Skeiði 1, Ísafirði
Opi› virka daga frá kl. 10-18
Laugardaga frá kl. 11-16
Kominn aftur
á 20% afslætti
Til í svörtu og hvítu
með hægri eða vinstri tungu
einnig til í taui.
Sjá tilboð
á betrabak.is
Olíuleit á Drekasvæðinu
Hafdýpi allt að tveimur
kílómetrum
Jarðfræði norðurhluta Drekasvæðisins
svipar til vel þekktrar jarðfræði beggja
vegna Atlantshafsins.
Aldursgreining á sýnum bendir til þess
að jarðlög frá því fyrir tíma opnunar
Norður-Atlantshafsins séu fyrir hendi –
geymisberg, móðurberg.
Hafdýpi er 800-2000 metrar.
Fjarlægð frá landi er nálægt ystu
mörkum fyrir stórar þyrlur með
varatank fyrir eldsneyti.
Allt að eins sólarhrings sigling frá
næstu þjónustuhöfn.
Tæknilega krefjandi að á Drekasvæð-
inu fer saman mikið hafdýpi og mikil
fjarlægð frá landi.
Hafdýpi og fjarlægð frá landi er hvort
um sig innan tæknilegra marka fyrir
olíuiðnaðinn.
Veðurfar og hafís
Kalt úthafsloftslag – meðalhiti undir
10° C allt árið – um 5 til 8° C á sumrin
og -2 til 0° C á veturna. Hitasveifla frá
-15° C í 13° C.
Meðalvindhraði um 10 m/s á veturna
en 6 m/s á sumrin.
Hafísröndin hefur legið norður og
vestur af svæðinu síðan á hafísárunum
1965-71.
Hafís eykur mjög ísingarhættu.
Veðurfar er innan tæknilegra marka
fyrir olíuiðnaðinn.
Litið er til Noregs og annarra
nágrannaríkja með öryggiskröfur.
Útboð sérleyfa
Annað útboð sérleyfa hófst 3. október
2011 en umsóknarfrestur er til 2. apríl
2012.
Noregur á rétt á 25% þátttöku í
olíustarfsemi innan íslenska hlutans
og Ísland á rétt á 25% þátttöku í olíu-
starfsemi á svæði þar norður af innan
norskra lögsögu.
Ef umsóknir berast er metið hvort
umsækjendur uppfylla kröfur sem
gerðar eru til leyfishafa.
Engin skuldbinding er til að veita leyfi í
útboði þótt umsóknir berist.
Norðmenn hafa mánuð til að taka
ákvörðun um þátttöku frá því að
Orkustofnun hefur tilkynnt þeim um
áætlaða leyfisveitingu.
Stefnt er að leyfisveitingu fyrir lok
nóvember 2012.
Sérleyfi til rannsóknar kolvetnis er
veitt til 12 ára, framlengjanlegt til
tveggja ára í senn að hámarki til 16
ára.
Ef til vinnslu kemur er vinnsluleyfi
veitt til 30 ára, að uppfylltum öllum
skilyrðum.
Heimild: Staða olíuleitar á Drekasvæðinu –
Þórarinn Sv. Arnarson Orkustofnun.
sér það svæði til að vinna og halda
áfram með.“
Þórarinn segir að í vændum sé
langt ferli á Drekasvæðinu enda
um jaðarsvæði að ræða og á byrj-
unarstigi leitar. „Leyfi eru veitt til
12 ára og hægt er að framlengja
þau til 16 ára. Fyrirtækin geta því
sett fram rannsóknaráætlun til 12
ára. Áætlunin er kaflaskipt. Fyrstu
þrjú árin geta menn til dæmis stefnt
að endurkastsmælingum fyrir allt
svæðið. Að þeim þremur árum þarf
að taka ákvörðun um hvort halda
á áfram eða ekki. Á öðru tímabili
gætu menn farið í þrívíðar endur-
kastsmælingar og þá er hugsanlega
til skoðunar lítill blettur sem áhugi
gæti verið á bora í. Á þriðja þriggja
ára tímabilinu gæti síðan komið að
borun. Á þessum tíma kemur alltaf
að þessum ákvörðunarpunktum þar
sem tekin er ákvörðun um það hvort
fyrirtækið ætlar að halda áfram
með leyfið eða gefa það eftir.“
Þessar rannsóknir eru, að sögn
Þórarins, algerlega fjármagnaðar af
því fyrirtæki eða þeim fyrirtækjum
sem fengið hafa rannsóknarleyfi.
Þau leggja í kostnaðinn í þeirri von
að hagnast síðar. Sá hagnaður getur
orðið gífurlegur enda hefur þróun á
olíuverði sífellt verið á uppleið – sem
réttlætir kostnað við rannsóknir á
ónumdum svæðum sem þessu út-
hafssvæði.
„Á rannsóknartímabilinu fá Ís-
lendingar þau gögn sem verða til
við rannsóknirnar,“ segir Þórarinn
aðspurður um hag íslensku þjóðar-
innar, „og meðan á rannsóknum
stendur gætu rannsóknarskip kom-
ið til hafnar og fengið þjónustu, olíu
og vistir. Við endurkastsmæling-
arnar koma skip á svæðið. Hugsan-
leg þjónusta við þau gæti farið eftir
lengd úthaldsins. Komið gæti til
áhafnaskipta, þyrluflugs og annars
sem slíku fylgir. Menn gætu því
haft ákveðinn hag af þessu á Norð-
ur- og Austurlandi, þar sem styst er
í land frá rannsóknarsvæðinu.“
Sérstök lög um skattlagningu
á olíuvinnslu
Komi hins vegar til olíuvinnslu og
að hið svarta gull flæði úr iðrum
jarðar á íslenskum hafsbotni er allt
annað og meira undir. „Það voru
sett sérstök lög um skattlagningu
á olíuvinnslu í september síðast-
liðnum, það er að segja skattlagn-
ing kolefnisvinnslu. Þetta er sérstök
auðlind í eigu þjóðarinnar og óvenju
verðmæt. Því er hún skattlögð ofan
á venjulegan fyrirtækjaskatt, það
er að olíufyrirtækin greiða fyrir-
tækjaskatt og síðan bætist við hann
sérstakt framleiðslugjald sem er 5
prósent af öllu söluandvirði, óháð
afkomu fyrirtækisins. Þó fyrirtæk-
in sem dæla upp olíunni sýni ekki
neinn hagnað þá greiða þau samt
þetta framleiðslugjald,“ segir Þór-
arinn. Taka má sem dæmi að fáist
100 dollarar fyrir hverja olíutunnu
ganga alltaf 5 dollarar beint í ríkis-
sjóð Íslands, óháð því hvort fyrir-
tækið skilar hagnaði eða ekki.
Þórarinn segir að mikill upp-
safnaður rannsóknarkostnaður
muni hvíla á fyrirtækjunum í upp-
hafi vinnslu. Sá kostnaður sé frá-
dráttarbær frá skatti. „En um leið
og fyrirtækin fara að skila hagnaði
kemur sérstakur kolvetnisskattur
sem bætist við almennan 20 pró-
senta fyrirtækjaskatt. Þetta er
skattur sem er línulegt fall af hlut-
falli gróðans sem er 0,45 sinnum
gróðahlutfallið. Þegar gróðahlut-
fallið eykst, að 100 prósentum, ef
hagnaðurinn er gífurlegur og all-
ur kostnaður orðinn lítill þá væri
þessi tala að hámarki 45 prósent
af hagnaði. Skattlagningin næmi
þá 20 prósentum til viðbótar við
45 prósent, það er að segja 65 pró-
senta skattur.“ Þórarinn tekur þó
fram að þrátt fyrir gríðarlegan
hagnað olíudælingarfélaga, þegar
best gengur, nái hann aldrei 100
prósentum. Skattprósentan verður
því, gangi allt að óskum, eitthvað
lægri en þessu nemur.
Það fer síðan eftir stærð olíu-
lindar og hversu mikill rannsókn-
arkostnaðurinn er hve langan tíma
tekur að borga þann kostnað upp
en Þórarinn segir að miðað við
verðmæti framleiðslunnar ættu
það ekki að vera mörg ár, þótt auð-
vitað sé um mjög háar upphæðir að
ræða. „Rannsóknirnar eru dýrar
og það er dýrt að hefja framleiðslu
vegna allra þeirra mannvirkja sem
þarf, meðal annars á hafsbotni,“
segir hann.
Fjárhagsleg áhætta er fyrir-
tækjanna
„Fyrirtækin taka alla fjárhagslega
áhættu, ekki Íslendingar,“ segir
Þórarinn. „Hluti af okkar kröfum
er að þau séu með fullnægjandi
tryggingar gagnvart til dæmis um-
hverfisslysum. Öryggismálin eru
á ábyrgð fyrirtækjanna. Þau þurfa
að sýna fram á tæknilega getu og
öryggiskerfi. Það er hluti af mati
á umsóknum þeirra að þessir hlut-
ir séu í lagi. Á þetta er lögð mikil
áhersla.
Við erum í mjög góðu samstarfi
við norsk yfirvöld að þessu leyti
sem öðru enda ætlum við að skipu-
leggja okkar mál út frá reynslu
þeirra. Norðmenn hafa lengi verið
í þessu en reynslan er ekki mikil á
Íslandi. Við fáum því að nýta okk-
ur þeirra reynslu. Leitarsvæðið er
á mörkum lögsögu þjóðanna en
samningur þar um frá árinu 1981 er
í gildi. Þeir eiga rétt á hluta svæðis-
ins okkar megin og við þeirra meg-
in sem nemur 25 prósent. Félög
sem fá rannsóknarleyfi dreifa oft
áhættunni, eru kannski tvö til þrjú
um leyfið. Þá kæmi Noregur inn
sem 25 prósenta aðili. Ef til dæmis
einhver einn aðili myndi sækja um
100 prósent leyfi þá myndi sá hlutur
minnka í 75 prósent. Noregur kæmi
inn með 25 prósenta hlut en bæri þá
hlutfallslega sama kostnað af rann-
sóknunum.“
Örnefni á Drekasvæðinu eru ný
en með sögulega skýrskotun. Sýnin
sem staðfestu olíufund voru tekin
úr hlíðum neðansjávarfjalls sem
nefnt er eftir Sigurði Fáfnisbana.
Fjallið veit að Hlésundi sem er á
milli Völsungahryggs og Niflunga-
hryggs.
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Upphafsstafir og dagsetning Dokkan, 8. des. 2011 ÞSA
Myndun og varðveisla olíu eða gass
Þakberg
Upphafsstafir og dagsetning Dokkan, 8. des. 2011 ÞSA
Lykil endurkastsmælingar á Drekasvæðinu
Gögn í ríkiseigu Gögn einkaaðlia
TGS
Endurkastsmæling-
ar á Drekasvæðinu.
Mynd Orkustofnun
Myndun og varðveisla olíu eða gass. Aldursgreining sýna bendir til þess
að jarðlög frá því fyrir tíma opnunar Norður-Atlantshafsins séu fyrir
hendi. Mynd Orkustofnun
16 fréttaskýring Helgin 23.-25. mars 2012