Fréttatíminn


Fréttatíminn - 23.03.2012, Side 28

Fréttatíminn - 23.03.2012, Side 28
F yrr á tímum þótti það ekk- ert merkilegt að eiga átta, tíu, tólf eða fleiri börn, en í dag finnst flestum þrjú, fjögur börn í meira lagi. „Ég held að galdurinn við að eignast svona mörg börn sé mjög einfaldur,“ segir Ýr Sigurðardóttir barnalæknir stríðnislega sem sjálf á átta börn. Við bíðum eftir algengri útskýringu. En nei, hún kemur ekki, heldur: „Hann er sá að byrja snemma, halda áfram og hætta seint. Þá kemur þetta smátt og smátt.“ Mikil vinkona Ýrar allt frá mennta- skólaárunum í MR er Soffía Guðrún Jónasdóttir en hún á ekki aðeins sam- eiginlegt með Ýr að vera barnalæknir heldur fagnar hún sama barnaláni – með átta börn. Aðspurðar hvort þær hafi ákveðið snemma að eignast mörg börn segir Ýr brosandi að hún hafi nú eiginlega aldrei ætlað að hætta. „En ég ætlaði mér svo sem aldrei að eiga einhvern tiltekinn fjölda af börnum. Ég var hraust meðan á meðgöngu stóð, mér fannst fæðingarnar alltaf alveg sér- staklega sársaukafullar og brjósta- gjöfin gekk ekkert sérstaklega vel hjá mér. Þau hafa öll vaknað svolítið á nóttunni svo þetta ungbarnaupp- eldi var ekkert eins og að drekka vatn – en þetta er gaman og gefandi. Það er hvert barn ólíkt og ég hef alveg þurft að hafa fyrir þeim. Enda var ég ekkert að eignast börn til að sleppa við það.“ „Ég held að eg sé búin að vera með börn á brjósti í sjö eða átta ár sam- fellt,“ segir Soffía. „Það er svona eins og meðal belja í fjósi,“ segir hún og skellihlær. „En ég held að hvorug okkar hafi ákveðið að eignast átta börn. Ég man hins vegar eftir því þegar við byrjuðum að slá okkur upp ég og maðurinn minn að þá barst í tal að við myndum nú kannski eignast sex börn. Og við hlógum eins og vitleysingar, mér fannst þetta svo ótrúlegt að fólk myndi eignast sex börn! Ég endaði nú reyndar á því að eignast tvíbura og í byrjun maí verð ég amma í fyrsta sinn. Það er næst elsti sonur minn, Kjartan Logi, sem var að verða 22 ára og að ljúka öðru ári í læknisfræði, sem ætlar að gera mig að ömmu. Þau eru hörkudugleg bæði, hann og Þórhildur, kærastan hans sem er í verkfræði.“ Ýr og Soffía voru báðar 21 árs þegar þær eignuðust sitt fyrsta barn og yngstu börn þeirra eru þriggja og fjögurra ára. Í framhaldsnám með fjögur börn í farteskinu Eftir stúdentspróf frá MR hafði Ýr hug á að fara í dýralæknisnám en var þá komin í samband með manni sínum, Jóni Sæmundssyni, svo hún ákvað að innritast í læknadeild Há- skóla Íslands: „Og hef aldrei séð eftir því,“ segir hún. „Þetta er yndislegt starf, þótt vissulega hafi oft verið erfitt að vera í sérnáminu, fyrst með fjögur börn og svo með fimm.“ „Ég ákvað 12 ára að verða barna- læknir, og eiginlega kom aldrei neitt annað til greina,“ segir Soffía. Eftir að læknanámi hér heima lauk, héldu þær báðar til Bandaríkjanna í framhaldsnám í barnalækningum: „Ég byrjaði í Wisconsin og hélt þaðan til Kaliforníu, þar sem við Ágúst höfum verið með annan fótinn í næstum tuttugu ár,“ segir Soffía. Ýr fór hins vegar fyrst til Connecti- cut og þaðan til Fíladelfíu í Pennsylv- Vinkonur, barnalæknar og mæður átta barna hvor aníu. Framhaldsnám í barnalækningum tekur sex ár. Þær voru ekki einar á ferð þegar þær fluttu tímabundið frá Íslandi. Með Soffíu í för var eiginmaður hennar og fjögur börn á aldrinum 11 mánaða til átta ára, en Ýr fór ein með fjögur börn, það yngsta fjögurra vikna og það elsta átta ára: „Maðurinn minn varð eftir heima að vinna fyrir fjölskyldunni þegar ég fór út,“ segir Ýr. „Ári eftir að ég flutti út eignað- ist ég Þórunni,“ segir hún, en Þórunn er með þeim stöllum í viðtalinu, 14 að verða 15 ára og með bandarískan ríkisborgara- rétt. „Ég á einmitt fjóra Ameríkana og fjóra Íslendinga,“ segir Soffía kankvís, „svo ég get valið í hvora röðina ég fer á flugvöllum! Ég var yfirleitt með au-pair þó maðurinn minn væri með okkur, því hann vann fulla vinnu. Allt í allt var ég með fjórtán au-pair og það er einmitt ein af bókunum sem ég ætla að skrifa þegar ég hef lausa stund: „How to pick a nanny.“ Þær voru allar yndislegar en það fer alveg eftir aldri stúlkunnar, umhverf- inu sem hún kemur úr og ýmsum öðrum Anna Kristine ritstjorn@frettatiminn.is Framhald á næstu opnu Galdurinn er að byrja snemma, halda áfram og hætta seint, segir Ýr Sigurðardóttir barnalæknir sem á átta börn. Vinkona Ýrar, Soffía Guðrún Jónasdóttir er einnig barnalæknir og á átta börn. Anna Kristine Magnúsdóttir ræddi við þær um námið, starfið en ekki síst barnalánið. „Ég held að ég sé búin að vera með börn á brjósti í sjö eða átta ár sam- fellt,“ segir Soffía. „Það er svona eins og meðal belja í fjósi,“ segir hún og skellihlær. Ýr Sigurðardóttir og maður hennar Jón Sæmundsson ásamt börnunum sínum átta: Tindi (24), Gunnhildi Yrsu (23), Urði (19), Ilmi (16), Þórunni (15), Sigurði Tuma (9), Sæmundi Tóka (6) og Elfu Fríðu (3). Á næstu opnu er mynd af Soffíu og fjölskyldu. Ljósmynd/Hari 28 viðtal Helgin 23.-25. mars 2012

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.