Fréttatíminn - 23.03.2012, Side 35
Má færa þér
1.000 krónur?
*Gegn
framvís
un mið
ans. Kl
ipptu ú
t miðan
n og ta
ktu han
n með
þér í A
póteka
rann.
Einn m
iði veit
ir 1.00
0 kr. a
fslátt
ef vers
lað er
fyrir 5.
000 kr
. eða m
eira.
Gildir t
i l 31. m
ars 20
12.
gegn f
ramvís
un mið
ans.1.000 kr. a
fsláttur
Afslátturinn gildir jafnt fyrir lyf sem aðrar vörur.
Afslátturinn gildir í öllum apótekum Apótekarans
til 31. mars 2012.
PI
PA
R
\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
20
95
0
Þú færð 1.000 kr. afslátt
í Apótekaranum ef þú verslar
fyrir 5.000 kr. eða meira*
www.apotekarinn.is
Er Apótekarinn nálægt þér?
Bíldshöfði (Húsgagnahöllin)
Mjóddin, Álfabakka
Melhagi, Vesturbæ Reykjavík
Fjarðarkaup, Hafnarfirði
Salavegur, Kópavogi
Smiðjuvegur, Kópavogi
Þverholt, Mosfellsbæ
Hafnarstræti, Akureyri
Helgin 16.-18. mars 2012 viðhorf 35
Í umræðu um fyrir-hugað frumvarp til laga um breytingar
á lyfjalögum, sem miða
að því að leyfa hjúkr-
unarfræðingum og
ljósmæðrum að skrifa
út hormónagetnaðar-
varnarlyf, hefur sér-
staklega verið fjallað
um skólahjúkrunar-
fræðinga sem heppi-
lega aðila til að sjá um
p-pillu lyfjagjafir.
Nútíma skólaheilsu-
gæsla er framhald ung-
barnaheilsuverndar
og fylgist með vexti og
þroska barna, annast
bólusetningar og heilbrigðis-
fræðslu. Með bólusetningum
höfum við fækkað alvarlegum
smitsjúkdómum í umhverfi okkar.
Skólahjúkrunarfræðingar fræða
börn um hvíld, hreyfingu, hollt
matarræði, hreinlæti, hamingju,
slysavarnir, kynheilbrigði og skað-
semi vímuefna. Þeir eru fulltrúi
heilbrigðiskerfisins sem börn og
unglingar þurfa að læra að nota.
Nú á að breyta þessu kerfi. Það
á að senda skólahjúkrunarfræð-
inga á námskeið til að kenna þeim
að skrifa upp á p-pillur fyrir börn
í grunnskóla, skipulögð skóla-
heilsugæsla er ekki til í framhalds-
skólum. Fullyrt er að þetta sé til
að stemma stigu við þungunum
unglingsstúlkna.
Lítum á tölur um tíðni: Á vef
landlæknisembættisins má sjá að
fjöldi fóstureyðinga og þungana hjá
ungum stúlkum hefur
minnkað undanfarin
ár. Fóstureyðingar
hjá stúlkum 15 ára
og yngri hafa verið á
bilinu 0 til 11 á ári á
þessu 30 ára tímabili
og að meðaltali 5 á ári.
Börn sem stunda
kynlíf undir hinum 15
ára lögaldri, eru í ekki
alltaf sjálfráða hvað
kynhegðun varðar.
Sum verða fyrir þrýst-
ingi, ofbeldi eða eru
í annarlegu ástandi
vímugjafa þegar þau
hafa samræði. Verður
þannig athöfnum af-
stýrt með getnaðarvörnum? Væri
ekki nær að styðja við fræðslu
skólaheilsugæslunnar um kynheil-
brigði, siðfræði kynlífs og vímu-
varnir?
Hingað til hafa heimilslæknar og
kvensjúkdómalæknar séð um út-
skriftir á p-pillum. Metið er hvaða
lyf hentar hverjum einstaklingi
miðað við önnur lyf, sjúkdóma og
fjölskyldusögu og læknar sinna
einnig mögulegum aukaverkunum.
Aðgangur að heimilislæknum er
auðveldur og gjaldfrjáls fyrir börn
undir 18 ára. Getnaðarvarnarlyf eru
í ýmsum formum og gerðum. Auka-
verkanir eru fáar en sú alvarleg-
asta er aukin tíðni blóðtappa. Eitt
getnaðarvarnarlyf fæst í lausasölu
í apótekum en það er neyðarpillan
sem hentar mjög vel fyrir konur/
stúlkur sem ekki lifa reglulegu
kynlífi. Smokkurinn er eina getn-
aðarvörnin sem einnig ver gegn
kynsjúkdómum en kynsjúkdómar
eru mun algengari en þunganir hjá
unglingum. Með nýju frumvarpi
velferðarráðherra stendur til að
leggja nýja ábyrgð á herðar hjúkr-
unarfræðinga. Eftirfylgd aukaverk-
ana hormónagetnaðarvarna er hins
vegar lítið rætt.
Skólahjúkrunarfræðingar hafa
mun mikilvægara hlutverk í lífi
stúlkna sem lifa kynlífi á ungum
unglingsaldri en að deila út p-
pillum til þeirra. Skólahjúkrunar-
fræðingurinn er í sumum tilfellum
einn af fáum fullorðnum einstak-
lingum sem barn í vanda telur sig
geta leitað til. Af línuritinu hér að
ofan má sjá að engin brýn nauðsyn
er nú til að breyta verklagi frá því
sem þegar er til staðar. Hefur vel-
ferðarráðuneytið ekkert betra að
gera en að breyta kerfi sem er í
góðum farvegi?
Stöndum vörð um skólaheilsu-
gæsluna, breytum henni ekki í
útdeilingu á hormónagetnaðar-
vörnum.
Frumvarp velferðarráðherra
P-pillur í skólanum?
Fjöldi fóstureyðinga og
þungana hjá ungum stúlk-
um hefur farið fækkandi
undanfarin ár.
Sóttvarnalæknir
LANDLÆKNISEMBÆTTIÐ
T A L N A B RU N N U R
5. árg. 4. tölublað. Apríl 2011.
Fréttabréf landlæknis um heilbrigðistölfræði
E F N I :
Fóstureyðingar
á Norðurlöndum
2009
bls.
1
Skil gagna frá
sjálfstætt
starfandi læknum
á stofum 2010
bls.
2
Austurströnd 5
170 Seltjarnarnes
Sími: 510 1900
Bréfasími: 510 1919
Netfang: mottaka@landlaeknir.is
Veffang: www.landlaeknir.is
LANDLÆKNISEMBÆTTIÐ
HEILBRIGÐISTÖLFRÆÐISVIÐ
Ritstjórn
Lilja Sigrún Jónsdóttir
sviðsstjóri, ábm.
Anna Björg Aradóttir
Svanhildur Þorsteinsdóttir
Ritstjóri
Jónína M. Guðnadóttir
Heimilt er að nota efni þessa
fréttabréfs, sé heimildar getið.
fædda, sem er heldur meira en í Finnlandi
en nokkuð minna en í Noregi, Danmörku
og Svíþjóð. Sé tekið mið af 1.000 lifandi
fæddum þá hefur fóstureyðingum fækkað
nokkuð á Íslandi undanfarinn áratug, úr
228 árið 1999 í ríflega 193 árið 2009.
Fóstureyðingar
miðað við 1.000 konur 15–49 ára
Fóstureyðingar miðað 1.000 konur á
aldrinum 15–49 ára voru fæstar í Finnlandi
(8,9) árið 2009 en flestar í Svíþjóð (17,8).
Tölurnar fyrir Noreg eru hins vegar nálægt
hinu norræna meðaltali (14,1) en aðeins
lægri fyrir Danmörku (12,9) og Ísland
(12,4).
Aldursdreifing er svipuð á öllum Norður-
öndunum. Þannig eru fóstureyðingar
algengastar meðal kvenna á aldrinum 20–
24 ára en hlutfallslega fæstar konur í elsta
aldurshópnum, 45–49 ára, gangast undir
fóstureyðingu. Öll Norðurlöndin eiga þetta
sammerkt. Greina má nokkra breytingu í
þróun fóstureyðinga meðal ungra kvenna,
(Framhald bls. 2)
Skýrslan Induced abortions in the Nordic
countries 2009 kom út fyrir skömmu, en
þar er að finna samanburð á fjölda
fóstureyðinga á Norðurlöndunum fram til
ársins 2009.
Um 80.900 fóstureyðingar voru fram-
kvæmdar á Norðurlöndum árið 2009,
37.500 í Svíþjóð, 16.200 í Danmörku,
15.800 í Noregi, 10.400 í Finnlandi og
970 á Íslandi. Samanlagður fjöldi fóstur-
eyðinga á Norðurlöndunum hefur verið
nokkuð stöðugur upp á síðkastið en þó
aukist lítillega undanfarinn áratug, eða úr
72.500 árið 1999 í 80.900 árið 2009.
Fóstureyðingar
miðað við 1.000 lifandi fædda
Nokkur munur er á milli Norðurlandanna
hvað varðar fjölda fóstureyðinga á hverja
1.000 lifandi fædda. Í Svíþjóð voru
framkvæmdar hlutfallslega flestar
fóstureyðingar árið 2009, 335 á hverja
1.000 lifandi fædda en fæstar í Finnlandi,
172 á hverja 1.000 lifandi fædda. Á
Íslandi voru hins vegar framkvæmdar 193
fóstureyðingar á hverja 1.000 lifandi
F Ó S T U R E Y Ð I N G A R Á
N O R Ð U R L Ö N D U M 2 0 0 9
Fóstureyðingar á Norðurlöndum 2009
miðað við 1.000 lifandi fædda
0,0
50,0
100,0
150,0
200,0
250,0
300,0
350,0
400,0
Finnland Ísland Danmörk Noregur Norðurlönd Svíþjóð
Á vef landlæknisembættisins má líka sjá að Ísland sker sig ekki út hvað varðar
fjölda fóstureyðinga á Norðurlöndum. Tíðni fóstureyðinga á 1.000 fædd börn er
hæst í Svíþjóð en þar er löng hefð fyrir að ljósmæður sjái um getnaðarvarnir og
skrifa út lyfseðla fyrir pillunni.
Salome Ásta Arnar-
dóttir,
heimilislæknir og
skólalæknir.