Fréttatíminn - 23.03.2012, Síða 52
Söngkonan Beyonce sættir sig ekki við minna en að klæða
tveggja mánaða dóttur sína í hátísku-merkjavöru. Um helgina
sáust þær mæðgur að spóka sig í New York þar sem báðar
klæddust skóm úr sömu
línu frá hönnuðnum
Marc Jacobs. Skór
Beyonce voru
gylltir með
kattarandlit
en sú
stutta var í
silfruðum
músar-
skóm.
Helgin 23.-25. mars 201252 tíska
Gestapistla-
höfundur
vikunnar er
Elísabet
Gunnars
dóttir
tískubloggari
5
dagar
dress
Systurnar duglegar
að skipta á fötum
Katrín Alma
Stefánsdóttir er 22
ára lyfjafræðinemi við
Háskóla Íslands. Sam-
hliða náminu vinnur
hún í Garðsapóteki og
gegnir formannsstöðu
hjá nemandafélaginu
Tinktúra.
„Ég reyni að klæða
mig í þægileg en samt
flott föt,“ segir Katrín um
stílinn sinn. „Ég fæ mikinn
innblástur í tísku við að
skoða tískublogg og þá
helst þessi skandinavísku.
Vinkonur mínar og fólk
almennt í kringum gefur
mér líka mikla innsýn í
tísku sem hefur mikil áhrif
á mig. Fötin mín kaupi ég
mest í útlöndum og þá
helst í H&M, Topshop og
Zöru. Föt frá systur minni
er ég líka dugleg að fá
lánuð og er þetta yfirleitt
jöfn skipti hjá okkur.“
Fimmtudagur
Skór: Vagabond
Leggings: H&M
Kjóll: Gina Tricot
Hálsmen:
Kolaportið
Pels: Frá ömmu
minni
Miðvikudagur
Skór: Din sko
Buxur: Lindex
Peysa: American Apperal
Skyrta: Forever21
Hálsmen: Forever21
Fólk er innblástur
Ein af mínum uppáhalds stundum er þegar ég
get sest niður með kaffibollann á „kósý“ kaffihús
með útsýni út á fjölfarna verslunargötu. Þar get ég
skoðað öll þau ókunnugu andlit sem leggja leið sína
hjá. Hugarflugið fer á fullt og ég byrja að velta ótrú-
legustu atriðum fyrir mér: Þessi er skrítin! Þessi er
flott! Þessi er pottþétt ríkur, hvar ætli hann búi, og
hvernig? Aumingja þessi og svo framvegis. Þetta
get ég gert klukkutímum saman og gjarnan með
tískutímarit við hönd til að fá enn aðra sýn á hlutina
– yndisleg tilfinning.
Fólk er minn helsti innblástur, sama hvernig það er.
Það áhugaverðasta við það er hversu ólík við erum.
Gamlar og sætar konur veita mér jafn mikinn inn-
blástur og helstu tískudísir, þó á mjög ólíkan hátt.
Ég reyni að fanga það besta frá báðum.
Þó kaffihúsa „mómentið“ sé enn mitt uppáhalds þá
hafa tímarnir breyst undanfarin ár og flestir hafa
flutt kaffihúsið heim til sín fyrir framan tölvuna.
Á netinu finnur maður ógrynni blogga og tísku-
síður sem halda okkur upplýstum um tískustefnur,
götustíl og persónulegan stíl. Hjá persónulegum
bloggurum finnst okkur jafnvel eins og við þekkjum
einstaklinginn því við höfum fylgt eftir hans daglega
lífi í netheimunum.
Nýjungar í netheiminum eru af hinu góða því þar
gerast hlutirnir. Það sem er auðvitað frábærast er
að það skiptir ekki máli hvar í veröldinni þú ert, allir
hafa aðgang. Þar fæ ég minn helsta innblástur, frá
þér og öllu hinu fólkinu.
Selena með nýja línu Keppa við helstu hönnuði heims
Þriðjudagur
Skór: Monki
Buxur: Gina Tricot
Skyrta: Monki
Jakki: H&M
Hálsmen: H&M
Mánudagur
Skór: Timberland
Sokkabuxur: Janus
Kjóll: H&M
Peysa: Topshop
Vesti: Forever21
Hálsmen: Leonard
Föstudagur
Skór: Jeffrey
Campell
Pils: Zara
Skyrta: Zara
Jakki: Topshop
Amerísku
tískuverðlaun-
in CFDA Fas-
hion Awards
verða haldin
hátíðleg
þann 4. júní
næstkomandi
þar sem
helstu hönn-
uðir þessa árs
verða verð-
launaðir. Tilnefningar voru tilkynntar seint í síðustu viku og voru þær
Mary Kate og Ashley Olsen tilnefndar í flokki hönnuða kvenfatnaðar.
Skóhönnuðirnir Marc Jacobs, Jack McCollough og Lazaro Hernan-
dez hlutu einnig tilnefningu. Fleiri þekkt nöfn voru tilnefnd í flokkum á
borð við hönnun karlmannsfatnaðar og fylgihluta en voru Olsen-syst-
urnar þær einu úr Hollywood fjölskyldunni sem náðu á listann í ár.
Mæðgur í kattar- og músarskóm frá Marc Jacobs
Fyrirsætan Selita Ebanks hefur nú
slegist í hóp þeirra Victoria’s Secret-fyrir-
sæta sem hafa hannað sína eigin bað-
fata- og fylgihlutalínu. Lína Ebanks
ber nafnið Sass sem stendur fyrir
Selita’s Accessories, Shoes and
Swimwear og er þar að finna
gommu að allskonar flottum
sundfötum, töskum, skóm og
fleiri fylgihlutum sem sækja
innblástur sinn til Victoria’s
Secret-fyrirtæksins. Selena
kynnti línuna fyrr á árinu á
tískusýningunni Rip
the Runway og hefur hún
fengið gríðarlega góðar við-
tökur kvenna um allan heim. -kp
Kattarskór
Beyonce.
Músarskór
Blue Ivy.