Fréttatíminn - 23.03.2012, Qupperneq 56
56 hönnun Helgin 23.-25. mars 2012
ára
gamalt
verð!
*
„Ólíkar flíkur og hlutir á misjöfnu
verðbili líka,“ segir Ásta Kristjáns-
dóttir sem hefur, ásamt Stefáns-
syni Aðalheiðarsyni, Sigyn Eiríks-
dóttur, Munda og 33 íslenskum
hönnuðum, sett upp verslun undir
nafninu ATMO í gamla Sautján
húsinu á Laugavegi 86. Meðal
hönnuða eru: Birna, Elm, Eygló,
Go With Jan, GuSt, Hanna Felting,
Helicopter, Hringa, Kalda, Nikita,
Mundi, Spakmannsspjarir og Zizka.
Ásta segir íslensku hönnuðina
líta á framtakið sem tilraun.
Takist vel til sé útlit fyrir að fjöldi
íslenskra hönnuða taki sig saman
og opni sameiginlega verslun,
og lækki þannig kostnað við allt
utanumhald. „Þeir eru svo margir
einyrkjar í fatahönnun og ég tel því
að þetta sé það sem koma skal. Við
munum því í framtíðinni líklegast
sjá mörg merki undir einu þaki.
Þannig er það víða um heim.“
Margt verður um að vera í
húsinu frá deginum í dag, til dæmis
Pop-up eldhús Sollu á Gló, Vintage
markaður Rauða krossins, Kaldi
bar, dekur, Moms listasýning og
auðvitað helsta fatahönnun lands-
ins. „Þetta er HönnunarMars, þar
er mikið að gera og við vildum fylla
þennan efri part Laugavegarins af
lífi.“ - gag
Fatahönnuðir
teika
HönnunarMars
Listasafnið sýnir í samvinnu við HönnunarMars tilkomumikla tepotta
úr kínversku postulíni. Erró gaf Listasafni Reykjavíkur tepottana.
Erró og tepottarnir sjö
Nýtt á rúmið
Scintilla Limited kynnir nýja línu af líni.
Undir merki Scintillu eru framleidd
sængurver, koddar, rúmteppi, servéttur
og handklæði. Linda Björg Árnadóttir er
heilinn á bak við Scintilla.
Ný skartgripa lína
Aurum kynnir tvær
nýjar
skart-
gripa-
línur,
FÁLKI
& SVANUR. Línan
sækir innblástur
í fjaðrir og er
hönnuð í þrívíddar-
formi. Aurum er í
Bankastræti 4.
Iðnhönn-
uðir í
Brims
húsi
Sverð, ský, bjálki,
krukka og sneið
af ís eru meðal
þeirra hluta sem
32 iðnhönnuðir
kynna í Brims
húsi, Geirsgötu
11.
Ham og Gus Gus
Hljómsveitirnar Ham og Gus Gus verða
með tónleika í Hörpu laugardagskvöldið
24. mars frá klukkan 20 til miðnættis.
Sjáðu dagskrána á vefnum
hönnunarmars.is
Athyglisvert höfuðfat frá Thelmu Design, sem
er algjört leynivopn. Kögurspangir með mis-
munandi hekluðum útfærslum. Hönnuðurinn
Thelma Björk lærði að hekla hjá ömmu sinni
átta ára gömul. Hún hefur víða bætt við
þekkingu sína á hönnun og hefur haldið úti
merkinu Thelma Design frá árinu 2005.
Sumarskórnir eða
vetrarskórnir? Bara
bæði! Kron er með
mikið úrval af skóm,
sem hafa heillað
margar íslenskar
konur og gera enn.
Fyrir karlmenni. Þykkar
kósí peysur frá Farmers
market, sem þau Bergþóra
Guðnadóttir og Jóel Pálsson
tónlistarmaður stofnuðu
árið 2005. Silki, leður og að
sjálfsögðu íslenska ullin er
þeirra val. Vörur Framers
Market eru seldar í
völdum verslunum í
Japan, Bandaríkj-
unum og víðar
um Evrópu.
Ýr fyrir kúlið. Ýr Þrastarsdóttir er
tiltölulega nýútskrifuð og hittir
beint í mark með snilldarlega nýja
línu sem hefur vakið verðskuldaða
athygli.
Zizka. Fötin
hennar Hörpu
Einarsdóttur
fyrir þær sem
hafa þor.
Leður-
buddurnar
frá Eygló
eru í mis-
munandi
litum. Eygló
Margrét
Lárusdóttir
hannar
þær.