Fréttatíminn - 23.03.2012, Side 59
menning 59Helgin 16.-18. mars 2012
PIPA
R
\
TBW
A
• SÍA
• 120868
Sýningar á sunnudaginn kl. 13:30 og 15:00
hz
eta
eh
f. SALURINN
- hljómar vel
ERTU TÓNLISTARMAÐUR?
Salurinn auglýsir eftir umsóknum fyrir Tíbrá
og fleira fyrir starfsárið 2012 – 2013. Sóst er
eftir viðburðum af öllum stærðum og gerðum
og nýrri sýn hvort heldur í klassík, poppi,
pönki, jazzi eða annarri tónlistarstefnu.
Eftirfarandi þarf að fylgja umsóknunum:
ferilskrá, efnisskrá, myndir af flytjendum,
símanúmer og netföng. Einnig væri gott að fá
upplýsingar um óskatíma flytjenda.
Umsóknir sendist á salurinn@salurinn.is merkt
UMSÓKN 2012-2013. Valið er úr umsóknum og
verður öllum svarað að því loknu.
Lumar þú á hugmyndaauðgi og vilt stuðla að nýbreytni í tónleikahaldi og tónlistarupplifun?
Umsóknarfrestur
er til 10. apríl 2012
Nýtt snjallsímaapp fyrir
HönnunarMars
Síminn hefur í samstarfi við HönnunarMars
hannað app fyrir hönnunarhátíðina sem
fram fer í Reykjavík dagana 22. – 25. mars.
Appið, sem er á íslensku og ensku, býður
fólki upp á dagskrá hátíðarinnar í gegnum
símann. Henni má raða eftir atburðum,
flokkum, hverfum og áhuga hvers og eins.
Í appinu er einnig kort sem sýnir staðina
sem hýsa HönnunarMars; viðtöl við hönn-
uði, tengingar við blogg, twitter og fréttir
af hátíðinni. Þá hefur sá sem hleður niður
appinu möguleika á að taka myndir og
deila með öðrum í gegnum forritið.
G aflaraleikhúsið í Hafnarfirði frumsýndi á fimmtudags-kvöld nýtt íslenskt leikverk
með söngvum sem byggir á ótrúleg-
um ýkjusögum hins heimsþekkta
lygara: Þýska barónsins Múnkhá-
sen.
„Það er gamall draumur Ágústu
Skúladóttur leikstjóra að setja upp
ævintýri Múnkhásen og við í fátæka
leikhúsinu hérna suður í Hafnarfirði
ákváðum bara að stökkva út í djúpu
laugina og gera þetta almennilega.
Við leggjum allt undir og ætlum að
gera þetta með bravúr,“ segir Lárus
Vilhjálmsson hjá Gaflaraleikhúsinu.
Lárus segir Ágústu hafa tekist að
smala saman einvalaliði og að val-
inn maður sé í hverju rúmi. Sævar
Sigurgeirsson skrifar handritið og
semur tónlistina í verkinu ásamt
félögum sínum úr hljómsveitinni
Ljótu hálfvitunum. Sævar er einn
höfunda áramótaskaupa síðustu
ára og leikstjóri skaupanna, Gunn-
ar Björn Guðmundsson, stígur nú
á leiksvið aftur eftir nokkurt hlé.
Með honum á sviðinu verða meðal
annarra Gunnar Helgason, Ágústa
Eva Erlendsdóttir og Magnús Guð-
mundsson sem meðal annars hlaut
Grímutilefningu fyrir leik sinn í
Fool 4 love.
„Það vill nú svo til að það eru
tveir Múnkhásenar í sýningunni. Sá
eldri, sem Gunnar Helgason leikur
en hann segir söguna, og síðan leik-
ur Magnús Guðmundsson Múnkhá-
sen á yngri árum.“ Mikið er sungið
í verkinu og Lárus segir leikhúsið
tefla fram frábærri söngkonu, Söru
Blandon, og Ágústu Evu sem getur
heldur betur sungið.
„Svo erum við með alþjóðlegt
krydd í þessu vegna þess að ástr-
alska leikkonan Virginia Gillard
leikur í sýningunni. Hún hefur lengi
starfað í London en kynntist Íslend-
ingi og er flutt til Íslands. Í Hafnar-
fjörðinn og við njótum þess,“ segir
Lárus.
Við
leggjum
allt undir
og ætlum
að gera
þetta með
bravúr.
Gaflaraleikhúsið síGildar lyGasöGur á svið
Ljótu hálfvitarnir leika
undir hjá Múnkhásen
Múnkhásen er fyrsta stóra sýning
Gaflaraleikhússins sem er nýtt atvinnu-
leikhús með aðsetur við Víkingastræti í
Hafnarfirði. Næstu sýningar eru sunnu-
daginn 25. mars klukkan 14 og síðan 29.
mars klukkan 20, 31. mars klukkan 14 og
sunnudaginn 1. apríl klukkan 14.