Læknablaðið - 01.04.1925, Síða 15
LÆICNABLAÐIÐ
61
og reyna án allra hleypidóma, og sjúklingarnir eru þolgóöir á aö iöka
liana, er eg viss um, að mikiö er unniö meö aöferð þessari. Þeim sjúkling-
um, sem líkur eru til að batni til fulls, batnar fyr en ella. Hjá hinum, sem
liafa sjúkdóminn á hærra stigi, mun þaö ávinnast, að sjúkdómurinn
stöðvast, batinn kemur fyr og þeim líður betur en ella. Með hjálp þessarar
einföldu aðferðar, sem eg sting upp á við læknastéttina, í viöbót við þau
önnur hjálparmeðöl, sem þegar hafa reynst áhrifamikil í því að minka
dauðsföll og sýkingu af völdum berklaveikinnar, þá er það mín óbifanleg
trú og von, að vér að lokum sigrumst á hinum geigvænlega hvíta dauða.“
Hvað sem annars má um þetta segja, sýnist þessi aðferð skynsamleg
i alla staði, og vel þess verð að hún sé reynd til þrautar. Það er víst, að
dr. A. Knopf nýtur óskorins trausts og álits meðal læknastéttarinnar í
Ameríku. Jónas Kristjánsson.
Skarlatssótt.
í fyrra skrifaði eg í Læknabl. dálitla athugasemd viö grein eftir Steingr.
Matthíasson um difteri. Þar gat eg um að W. Schultz, sá er fundið hefði
h i ð m e r k i 1 e g a „A uslöschphánomen" v i ð s c a r 1 a t i n a,
notaði mikið hina svokölluðu T.A. (toxin-antitoxin) aðferð til hálf-
aktivrar immuniseringar viö difteri. Mér datt strax á eftir í hug, að ef
til vill vissu sunxir kollegar heima ekki alment mikið um þetta Auslösch-
phánomen og hversu merkilegt það er. Nú er það orðið meira þekt í sam-
bandi við hin nýju vísindi um scarlatina, og skal eg nú segja dálítið frá
þessu. — Eg heyrði W. Schultz halda fyrirlestra um þetta í Berlín í hitteð-
íyrra. Minnir mig að hann kvæðist hafa fundið þetta af tilviljun éinni.
Hann hafði ætlað að dæla normalserum subcutant í sjúkling með scarlatina,
en nokkuð af vökvanum lenti intracutant. Eftir dægur hvarf scarlatina-
útþotið af tveggjakrónu stórum bletti í kringum stunguna, og eftir ca.
30 tíma tók þessi blettur að hreistra, en sjúkdómurinn hélt áfram eftir
sem áður. Síðan dældi hann normalserum af ásettu ráði inn í sjálfa húðina
og fékk ávalt sama fyrirbrigðiö. Þá reyndi hann með serum scarlatina-
reconvalescenta, og fór enn á sömu leið.
Schultz—Charltons Auslöschphánomen (Charlton vann einnig aö þessu)
er þá þetta: Dæli maður serum scarlatina-reconvalescenta eða heilbrigðra
manna (flestra) inn í húðina á scarlatinasjúkling, hverfur útþotið af dá-
litlum bletti í kring um stunguna, og helst svo þar til útþotið er horfið ann-
arsstaðar af likamanum, og þessi blettur hreistrar að jafnaöi fyrA
Mátti nota þetta sem diagnosticum við scarlatina. Fengi sjúkl. með scar-
iatinalikt útþot þetta Auslöschph. ekki, þjáðist hann ekki af scarlatina,
en fengi hann það, var það örugglega scarlatina. Seinna fanst, að serum
scarlatinasjúkl., á hinu acuta stadii, og serum einstakra heilbrigðra, gaf
ekki Ausl.ph. Schultz sjálfur taldi þetta eins konar locala lækningu á
scarlatina, og auk þess, og aðallega, hið ágætasta hjálparmeðal til að
* Zeitschrift f. Kinderheilkunde, 17, 328, 1918,