Læknablaðið - 01.11.1937, Qupperneq 23
LÆKNÁBLAÐIÍ)
101
Þessi skamtur af verndandi fæðu
mundi svara til 1440 hitaeininga,
innihíilda 77 gr. eggjahvitu, 1,6 gr.
kalsíum, 1.7 gr. fosfór, 10.2 mgr.
járn, hæfilega miki'Ö af joÖi, meira
en 5000 einingar A-vitamín og
nieira en 150 Bi-vitamín, meira en
nægilegt B2-vitamín, yfir 500 ein-
ingar C-vitamín, um 300 einingar
af D-vitamíni. Auk þessa þarf
konan af orkugefandi fæðu: Mjöl-
meti, ca. 250 gr., annaö hvort gróft
eða fínt malað, svarandi til 1000
hitaeininga, auk þess fitu og sykur,
eftir því hva'Öa verk konan vinnur.
TAFLA VII.
B'órn á fyrsta ári.
Æskilegt er að börnin séu á
brjósti fyrstu 8—9 mánuöina. En
jafnvel þó aö móöirin hafi full-
nægjandi fæði, er æskilegt aö
barnið fái scm viðbót:
1) Lítilsháttar ávaxtasafa, ein-
hverskonar, sem gefi C-vitamín.
2) Ef ekki er sólskin og sumar,
daglega lítiÖ eitt af lýsi, smá-
stígandi frá 2—3 dropum upp
í alt aÖ því teskeið á dag.
Annað mataræði. Ef ekki er unt
að hafa barið á brjósti, á mjólk
að vera grundvallar-atriði í matar-
æði barnsins og við það bætt A-,
C- og D-vitamíni. Sé aðeins hægt
að hafa barn á brjósti að nokkru
leyti, á viðbótarfæðan að vera
mjólk, að viðbættum hæfilegum
verndandi fæðutegundum. Til þess
að forðast smithættu úr mjólk, er
ráðlegt að hún hafi verið pasteur-
iseruð eða aðeins soðin. Til að
fyrirbyggja lilóðleysi hjá börnum,
er ráðlegt að byrja snemma, t. d.
í ’þriðja eða fjórða 'mánuði, að
gefa barninu eitthvað ]>að, sem
inniheldur járn. Best er lítilsháttar
cggjarauða, gulrótar- eða græn-
metis-stappa. í einstaka tilfellum
þarf læknir beinlinis að gefa járn-
sölt. Járnforði barnsins, sem það
fæðist með, er uppbrúkaður um það
leyti sem það er 6 mánaða og
mjólkin inniheldur tiltölulega lítið
af því; þess vegna er ef til vill
æskilegt að bæta því við.
Börn, sem fæðast fyrir aldur eða
eru þroskaðri en gerist og gengur,
hvort heldur þau eru á brjósti eða
fá aðra fæðu, hafa ennþá meiri
þörf fyrir viðbót af fjörefnum og
steinefnum en önnur börn og á þá
að byrja með þessa viðbót nokkr-
um dögum eftir fæðinguna eða
fyrstu dagana eftir hana. Tilbúin
sterk D-vitamín lyf má alls ekki
gefa, nema undir lækniseftirliti, til
þess að forðast að gera skaða með
þéim.
Mjölmcti. Það er ráðið frá þvi
að gefa börnum mjölmeti fyrir 6
mánaða aldur. Eftir þennan aldur,
6 mán., er einkum mælt með kart-
öflum, hæfilega stöppuðum, að öllu
eða mestu leyti í staðinn fyrir mjöl-
meti.
Mjólk. Mjólk, sem inniheldur
3—3/4% af fitu, er álitin vera
heppilegasti styrkleikinn fyrir
barnamjólk, þar eð mikil fita get-
ur truflað meltinguna og valdið Jiví,
að börnin þoli illa fitu síðar meir.
Almennar athugasemdir. Æski-
legast er, aö um 1400 hitaeiningar
af öllu, sem maðurinn fær, séu af
verndandi fæðutegundum. Fyrir
fullorðna, aðra heldur en konur,
sem eru ófrískar eöa hafa börn
á brjósti, má minka verndandi
fæðutegundirnar nokkuð um tíma,
ef nauðsyn krefur, t. d. af fjár-
hagslegum ástæðum. Fyrir vaxandi
börn er æskilegt að ávalt sé sem
mest af verndandi fæðutegundum
í mat þeirra. Þó að einfalt matar-
æði geti verið gott og fullnægjandi,
þá er yfirleitt æskilegt að hreyta
talsvert til frá degi til dags, þó að