Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.06.1943, Page 30

Læknablaðið - 01.06.1943, Page 30
152 LÆK NAB LAÐ IÐ að reyna þessa nýju aðferö. Stjórn- in hefir nú viðurkennt hana og sjúkrahús eða stofnanir hafa veriö reist til þess aö sem flestir sjúkl- ingar geti fengiö Kennys-með- ferð. Ivliss Kenny lét sér þó ekki nægja þetta. Hún vildi fá vísinda- lega rannsókn á meSferð sinni og fá aðrar þjóðir til þess að nota hana, ef hún stæðist rannsóknina og reyndist betur en önnur úr- ræði. Þetta varð til þess að hún íluttist til U. S. 1940. Þar var henni tekið tveim höndum. Hún fékk nægilegt pláss 'fyrir sjúkl. sína á spítölum og alla þá aðstoð. seiii hún óskaði. Á Minneapolis (ieneral Hospítal höfðu (í apríl) legið 26 sjúkl. og 71 á Willard Parker Hosp. í N. Y. árið 1941. Spítalalæknarnir hafa nú gefð út skýrslu um sjúkl. þessa, meðferð- ina og árangur hennar. (JAMA 25/4 '42). ----o---- Um aldamótin siðustu Vár sjúkd. lýst á þá leið (Strúmpell), að hann liyrjaði snögglega meö háum hita, oft og einatt höfuðverk og þraut- ■ím út um likamann. Skömmu síðar kæmi í ljós meira eða minna mátt- leysi í vöðvum (schlaffe Lahm- mg), sem rýrnuðu siðan og sýndu úrkynjunar einkenni (degenerat. reaktion). Viðbrögð máttlausra vöðva hurfu. Allt þetta kom vel heim við það, að ætíð fannst skemmd í framhornum mænunnár, hreyfifrumunum þeirra, og hélst hún æ síðan. Hjúkrunarstúlk., Miss. Kenny, kom þetta nokkuð öðruvisi fyrir sjónir. Hún sá þess víða merki á máttlitlu limunum að ósjálf- ráðir samdrættir voru víða í vöðv- unum. og mátti meðal annars sjá það af því að haldsinar voru spenntar. Og samfara þessu var sársauki og vöðvaeymsli. Miss Kenny greip nú til þess gamla hjúkrunarráðs, að leggja heita bakstra á sjúku vöðvana, og taldi sjúkd. engu síður í vöðvunum en mænunni. Að öðru leyti fór hún svo varlega með máttlitlu limina sem unt var. Bakstrarnir voru úr ullar-einskeítu (flonel), sem und- in var upp úr sjóðandi vatni með þvottavindu. Náðu þeir aðeins yf- ir þá vööva, sem sjúkir voru. Yfir bakstrana var lagt oliuborið silki, n utan þess kom aftur þurt vaf úr ullareinskeftu. A liðamót voru ekki lagðir bakstrar. Bökstrunum var skipt með 15 mín.—2 klst. millibilum, eftir því hve kramp- arnir voru miklir. Hér var því að ræða um mikinn hita, en hann þoldist þó, vegna þess hve vel bakstrarnir voru undnir. Með þess- um hætti hurfu bæði þrautir og samdrættir innan viku, en I)ökstr- um var haldið áfram til þess vöðv- ar slöknuðu, þrautir hurfu og liða- mót léku laus. Vöðvarnir voru þá ekki með öllu óstarfhæfir, en þó hafði sjúkl. með einhverjum hætti misst vald- ið yfir þeim. Miss Kenny telur þetta stafa að miklu leyti af því að samstarf beygjenda og rétt- enda, eða annara andstæðra vöðva sé truflað og verði því að kenna sjúkl. það á ný. Þetta hefir tek- ist framar öílum vonum, þótt eng- ar stöðvandi umbúðir séu notaðar (immobilisatio) og enginn af sjúkl. fékk kreppta, aflagaða limi. Meðferð er hafin óðar en vissa er fengin um hver sjúkd. er. Þvi miður er lýsing á henni ekki svo 1 jós sem skyldi. Þess skal aðeins getið, að eigi sjúkl. erfitt með að hósta og renna niður er höfuðendi rúmsins lækkaður mikið og slím- ið sogið upp, ef þess gerist þörf og fæða gefin með magapipu. Hreyfingar eru notaðar frá byrj-

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.