Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.06.1943, Qupperneq 32

Læknablaðið - 01.06.1943, Qupperneq 32
154 LÆKNA B LAÐ 1 Ð Sefasýki og hitasótt. F. P. Duras (Northampton) segir frá 30 ára stúlku, sem kvartaði um hlustar- verk, höfuöverk og þrautir ne'S- an til í kviðarholi. Jafnframt haf'öi hún sifelldan sveifluhita 36—420) og helzt hann í margar vikur. Viö mjög vandlega rannsókn fannst ekkert, sem gæti skýrt hitann. Hún virtist likamlega hraust. Viö rannsókn á andlegri heilbrigöi kom þaö í Ijós aö á 10 ára aldri haföi hún oröiö fyrir andlegu á- falli og eftir þaö gat hún ekki um það hugsað, án þess að veröa heit og sveitt. Pað var þó ekki auöiö aö sanna þetta meö tilraunum, því aö strax eftir rannsóknina og frá- sögnina hvarf hitinn. —■ Þess eru dæmi hér á landi, aö hitasótt hafi haldist árum sam- an á sefasjúkri stúlku, án þess aö unnt væri aö finna aðra orsök en sefasýkina. G. H. Pellagra og beri-beri á Fær- eyjum. IV I\. Rasmussen héraðs- læknir í Eide gat þess fyrir nokkru, í bréfi til mín, aö hann heföi séð beri-beri fyrir nokkrunt árum og að nokkrir sjúklingar heföu nú fundizt á Færevjum meö áreiðan lega pellagra. — Hér á landi hafa læknar einnig oröiö varir viö þessa kvilla, svo að rétt er að rifja þá upp og hafa þá i litiga. G. H. Kynsjúkdómar á .Færeyjum. Eins og búast mátti við hafa kynsjúkd. farið hér í vöxt á striös- árununt. Svo hefir þetta einnig veriö í Færeyjum. Á1-ÍÖ1941 sýkt- ust þar 25 menn af syfilis og er það ekkert smáræöi (27.000 íb.). Auk þessa sýktust ntargir af lek- anda. Allir sjúkl. smituðust upp- runalega i sama bænum á Skot- landi og sýktu siöan aöra er heim kom. Allmikiö hefir kveðiö aö því, aö færeyskar stúlkur yrðu barnshaf- andi af völdum hermanna. Gerir R. K. Rasmussen ráö fyrir því að þær séu ekki öllu færri en 50 alls á einu ári. Það er allsstaðar sama sagan. G. H. Magasár og geðshræringar. Þaö mun ekki vera fullkunnugt enn af hverju maga- og skeifugarnar- sár stafa, en sumir hafa haldiö. aö vagusýfing og geðshræringar væru oft og einatt orsökin. — S. Wolff og H. Wolff, amerískir læknar, hafa nýlega skýrt frá rannsóknum sínum á þessu máli, og höfðu þeir til þess 56 ára karl- mann með vítt op á maganum. Þeir áttu því auövelt með aö sjá slímhúðina og rannsaka melting- una. Þeir fundu þetta: 1) í fastandi maga myndaöist stöðugt litiö eitt af HCl. 2) Viö og viö óx HCl myndunin stutta stund. Samtimis roðnaði slímhúöin og hreyfingar magans ágerðust. 3) Geðshræringum, sem höfðu í för meö sér hlédrægni, svo sem ótti og hryggö, fylgdi aö sýru- myndun minkaði, svo og hreyfing- ar magans. Slimhúöarlitur fölnaöi. 4) Við kvíða og áhyggjur, ó- vild og andstyggö, óx sýrumynd- un, hreyfingar og blóðsókn að slímhúöinni svo aö slímhúðin varö lík því eins og gerist í gastritis hypertrophica. Þessi áhrif voru tíöust. Þessu fylgdu innanþrautir og brjóstsviði. 5) Kvæöi mikið aö þessum síð- asttöldu skapbrigðum voru áhrifin bæöi mikil og langvinn. Smáfleiö- ur og blóðvætl mynduðust viö lítil- fjörlega snertingu eöa jafnvel

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.