Læknablaðið - 15.12.1949, Side 12
128
LÆKNABLAÐI1)
Tafla I.
Hœð íslendinga á ýmsum tímum.
Tímabil á1 $ O o X o+
Aldur rannsak. Fjöldi rannsk. Hæð cm. Hæðar- auki á tímab. Hæðar- auki á áii Fjöldi rann- sakaðra Hæð cm.
900—1000 26 168,6 20 154,9 91,8
1000—1550 41 168,9 47 154,7 91,6
1910—’14 20(17)—48 383 172,838
26,4 0,708 ca. 0,08
1920—’23 20—40 844 173,546
26,9 . 2,338 ca. 0,1
1946 19—60 1001 175,884
1000 162,452 | 92,36
Fyrsta taflan sýnir hæð ís-
lendinga á ýmsum tímum.
Hæðin í heiðni og kaþólskum
sið er útreiknuð af lengd út-
limabeinanna samkv. formúlu
„e“ og „k“ eftir Pearson. Þess-
ar hæðir eru því ekki fyllilega
sambærilegar við mælingarnar
sem gerðar eru á mönnum, en
ég hygg að þær séu nærri lagi.
Mælingarnar 1910—’14 eru
dregnar saman úr þremur átt-
um, sem sé 262 menn, er D.
Sch. Thorsteinsson (2) mældi
í ísafjarðarhéraði, 67 nemend-
ur í Hvanneyrarskóla er Páll
Jónsson (3) mældi og 54 ís-
lenzkir námsmenn í Höfn, sem
H. Ribbing (4) mældi. Mæling-
arnar 1920—23 eru rannsóknir
Guðmundar Hannessonar (5)
og loks eru svo mælingarnar
1946 er vegabréfaeftirlit lög-
reglunnar gerði. Lögreglan not-
aði hæðarmæli úr tré við mæl-
ingarnar og mældi konur á
sokkaleistunum en karla í
skóm og drógu 2 cm. frá fyrir
hæla og sólaþykktinni. Þetta
gerir auðvitað hæð karlmanna
dálítið óábyggilega, en sá er
mældi sagðist hafa reynslu fyr-
ir því, að þessu munaði að jafn-
aði á hæð karla í skóm og á
sokkaleistum. Rautmann (Mar
tin 1928, bls. 117) mældi her-
menn í skóm og berfætta og
fann 2,95 cm. mun að meðal-
tali, en hermenn eru á veiga-
meiri skóm en almenningur,
svo trúlega eru 2 cm. nærri
lagi. Vera má, að mælingar lög-
reglunnar, sem ekki eru gerðar
með það fyrir augum að fá ná-
kvæmt meðaltal af hæðinni,
séu ekki eins nákvæmar og hin-
ar mælingarnar, sem eru gerð-
ar beint í þeim tilgangi, en um
það, hvort munur sé af þeim
orsökum, er ekkert hægt að
segja. Önnur atriði, en mis-
munandi mælingaraðferðir, er