Læknablaðið - 15.12.1949, Page 16
132
LÆKNABLAÐIÐ
og 1920 yrðu þá samsíða, eins
að formi til. í öðru lagi getur
hæðaraukinn stafað af aukn-
um vaxtarhraða á öllu eða ein-
stökum hlutum vaxtarskeiðs-
ins, þau vaxtarlínurit myndu
þá rísa meir en þau er hægari
vöxt sýndu. Loks getur hæðar-
aukinn verið að þakka lengingu
á vaxtarskeiðinu.
Þær einu mælingar á íslenzk-
um börnum, sem hefir verið
unnið að einhverju leyti úr, eru
á barnaskólabörnum, en sá
galli er á skýrslunum um þess-
ar mælingar, eins og raunar vel
flestum þeim skýrslum um
sama efni úr öðrum löndum
sem ég þekki til, að þær gefa
meira eða minna rangfærða
mynd af vextinum. Þetta stafar
af því að mælingarnar eru mið-
aðar við aldursflokka á því ári
sem þær fóru fram, en ekki við
mælingar á sömu börnunum
á ýmsum aldri.
Þar sem ekki er völ á þannig
löguðum skýrslum hér, hefi ég
tekið næst bezta kostinn, þ. e.
að vinna þannig úr mælingun-
um á skólabörnum í Reykjavík
að yfirlit fáist yfir vöxt barna
fæddra á árunum 1922—’27
annars vegar og hins vegar yfir
vöxt barna fæddra á árunum
1927—’32. Tölurnar eru tekn-
ar úr Árbók Reykjavíkurbæjar
1940 og 1945 (10) og taka til
skólaáranna 1930—’31 til 1943
—’44. Vegna þess að 7—8 ára
börn fara ekki að sækja skóla
svo nokkru nemi fyr en 1936
—’37, þá vantar þennan ald-
ursflokk fyrir börn fædd 1922
—’27 og fyrir börn fædd 1927
—’32, tekur hann raunverulega
aðeins til barna, sem fædd eru
á árunum 1929—’32. Og þar
sem skýrslurnar ná ekki lengra
en til 1943—’44, þá eru í 13—14
ára aldursflokki barna fæddra
á árunum 1927—’32 aðeins
börn fædd árin 1927—’31.
Eftir að Skildinganess- og
Laugarnesskóli taka til starfa,
er þess ekki getið nema fyrstu
4 og 2 árin hve mörg börn voru
í hvorum, en síðan er aðeins
getið heildarf jölda barna í Mið-
bæjar- og Skildinganessskóla
annars vegar og í Austurbæj-
ar- og Laugarnesskóla hins
vegar. Aftur á móti er meðal-
hæð barna skráð í hvorum
skóla um sig. Ég hefi því orðið
aö áætla fjölda barna í hverj-
um aldursflokki innan hvors
skóla um sig, með því að ganga
út frá því að sama hlutfall hafi
haldizt milli þeirra og milli
kynjanna og var fyrstu 4 og 2
árin. Nokkur ónákvæmni skap-
ast af þessu, en þó varla meiri
en svo, að hún komi fram fyrr
en í öðrum decimal, vegna þess
hve litlu munar á meðalhæð-
inni milli skólanna og hve lít-
ill hluti barnanna er í Skild-
inganess- og Laugarnessskóla.
í Skildinganessskóla voru 1937
—’40 að jafnaði 13,6% af heild-
arfjölda barna í Miðbæjar- og