Læknablaðið - 15.12.1949, Blaðsíða 19
LÆKNABLAÐIÐ
135
Skildinganessskóla, og 1938—
’40 voru 15,2% af börnum í
Laugarness- og Austurbæjar-
skóla í Laugarnessskóla. Einni
tölu hefi ég breytt, þar sem um
bersýnilega prentvillu var aS
ræða, 163,4 cm. í stað 153,4 á
13—14 ára piltum í Miðbæjar-
skóla 1940—’41.
Niðurstöðutölur af þessum
útreikningum eru í töflum II
—V.
Ef við athugum töflu II, sést
að vaxtarhraði drengjaárgang-
anna 1922—’27 er minnstur frá
10y2_liy2 árs aldurs. Sé það
borið saman við árgangana
1927—’32 í töflu III, kemur 1
ljós að þar er hann minnstur
frá 91/2—10/2 árs aldurs og að
vaxtarhraði þeirra er yfirleitt
meiri eftir 10% árs aldur, en
árg. 1922—’27. Af töflum IV og
V sést að hlutfallslegur vöxtur
stúlknanna er meiri en drengj-
anna og ennfremur að hann er
yfirleitt meiri hjá telpnaár-
göngunum 1927—’32 en þeim
frá 1922—’27, sérstaklega eft-
ir 10% árs aldur.
Mismunurinn á vaxtarhrað-
anum sést bezt á mynd 2 og 3,
sem sýna log af hæðinni miðað
við aldur. Á mynd 2 sést, að
fram til 10 ára og 3 mánaða
aldurs er enginn munur á hæð
drengjaárganganna, en úr því
fer bilið á milli þeirra vaxandi.
Mynd 3 sýnir, að telpnaárgang
arnir 1927—’32 eru alltaf hærri
en þeir frá 1922—’27, en bilið
er nokkuð jafnt og lítið til IOV2
árs aldurs, en eykst úr því.
Tafla VI segir manni það
sama og mynd 2 og 3, nema
hvað þar sést einnig hve miklu
árlegur hæðarauki nemur á
þeim 5 árum, sem eru á milli
árganganna 1922—’27 og 1927
— ’32 Á 13—14 ára drengjum
er hann 0,334 cm., en 0,422 cm.
á telpunum, sem er miklu meiri
hæðarauki en fannst hjá full-
orðnum.
Skýringin á þessu ósamræmi