Læknablaðið - 15.12.1949, Side 35
L Æ K N A B L A Ð 1 Ð
151
fólk i'lutt til eða safnað saman
á ýmsum stöðum, margir full-
orðnir menn fengu því fremur
en ella hinn illkynjaða rauðu
hunda faraldur, sem lýsti sér
með sterkri slímhúðarbólgu,
einkum í hálsi, en venjulega
einnig mikilli bólgu í lmakka-
eitlum (occipital-eitlum).
Vorið 1941 fæddust óvenju-
lega mörg börn með starblindu
(cataracta), svo að nauðsynlegt
þótti að safna skýrslum og
vitneskju um þetta. Gregg og
félagar hans fundu fljótlega 78
tilfelli. Það konj í ljós, að af
þessum 78 tilfellvun liöfðu 68
mæður liaft rauða hunda á
fyrsta og öðrum mánuði með-
göngutímans, aðeins fáar á
þriðja mánuði. Þrátt fyrir mikl-
ar efasemdir, gat Gregg ekki
fundið aðra skýringu sennilegri
á fyrirbrigði þessu en ])á, að í
binum skæða rauð-hunda far-
aldri væri raunverulegrar or-
sakar að leita.
Cataracta þessi var annað
hvort central cataracta með
hálfgagnsæju umhverfi (peri-
feriu) eða total jafnþétt catar-
acta yfir allan ljósbrjótinn. 1
16 þessara tilfella var cataracta
aðeins í öðru auganu og voru
þau flest dvergaugu (micro-
opbthahnus). Annað var einnig
einkennandi við þessi augu, að
astunga (discissio) reyndist
örðug vegna þess, að cataracta
var seig og hörð, og erfitt var
að víkka út ljósopið. Ennfrem-
ur voru börn þessi lítil, þrif-
ust illa, og að minnsta kosti
44 af þessum 78 börnum höfðu
hjartasjúkdóm.
Þessi grein Greggs læknis
vakti mikla athygli, og læknar
í Astralíu fóru nú að rannsaka,
hvort rauðir hundar gætu ekld
haft fleiri skemmdaráhrif á
fóstrið, sömuleiðis, hvort aðrir
útbrotasjúkdómar gerðu ekki
svipað að verkum, og sýndu at-
huganir þcssar hjá flestum,
að sennilegt væri, að rauðir
hundar orsökuðu margskonar
vansköpun i fóstrinu. Aftur á
móti var slík hætta miklu minni
við aðra næma sjúkdóma, t.d.
höfðu 9 mæður fengið mislinga
og fæddu allar heilhrigð börn,
tvær fengið hettusótt og fæddi
önnur barn með ógagnsæja
hornhimnu. Við athuganir þess-
ar kom ennfremur í ljós, að
rubeola er aðeins skaðleg fóstr-
inu á fyrstu þremur mánuð-
um meðgöngutímans. Svo virð-
ist sem skaðleg áhrif frá ráuðu
hunda smituninni haldist nokk-
urn tíma í líkamanum, því að
ein móðir, er fæddi vanskapað
barn, hafði haft rubeola hálfum
mánuði áður en hún vai’ð
barnshafandi. Það hefur einn-
ig komið í ljós, að konur, sem
liafa eignazt vansköpuð börn
eftir rauða hunda, hafa síðar
fætt lieilbrigð börn.
Swan telur, að konur, sem
fá rubeola fyrstu tvo mánuði
meðgöngutímans, eignist hér