Bændablaðið - 10.01.2013, Síða 1
1. tölublað 2013 Fimmtudagur 10. janúar Blað nr. 386 19. árg. Upplag 28.000
Í aðgerðum sem stóðu yfir dagana
3.-9. desember sl. var hald lagt
á ólöglega innflutta kúamjólk í
versluninni Kosti í Kópavogi. Um
tvær tegundir af niðursoðinni
mjólk frá Bandaríkjunum var
að ræða. Aðgerðirnar voru hluti
af alþjóðlegu samstarfsverkefni
Europol og Interpol gegn inn-
flutningi og sölu á fölsuðum
og ólöglegum matvælum og
drykkjum. Þátttakendur í því
á Íslandi voru Matvælastofnun
(MAST), heilbrigðiseftirlit
Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis
og tollgæslan.
Að sögn Herdísar Guðjónsdóttur,
sérfræðings hjá MAST, var umrædd
mjólk ekki ólöglega framleidd en
innflutningur á henni til Íslands var
með ólöglegum hætti. Hún var flutt
inn í röngum tollflokki þannig að hún
var ekki tilkynnt til MAST og kom
ekki til skoðunar á landamærastöð
eins og á að gera við öll matvæli af
dýrauppruna sem koma frá löndum
utan Evrópska efnahagssvæðisins.
Þá var mjólkin ekki frá viðurkenndri
starfsstöð samkvæmt skrá ESB um
samþykktrar starfsstöðvar sem mega
flytja matvæli af dýrauppruna inn í
ESB.
Herdís segir að ekki sé vitað um
nema þessa einu sendingu sem kom
til landsins síðla haust 2012 og þá í
litlum mæli.
Engum viðurlögum verður beitt
vegna brotsins en varan var tekin
strax af markaði. Herdís segir að fylgst
verði betur með innflutningi af þessu
tagi í náinni framtíð.
Smávægileg brot ekki kærð
Steinþór Arnarson, lögfræðingur hjá
MAST, segir að viðurlög við brot á
slíkum lögum séu skilgreind í 31.
gr. laga nr. 93/1995 um matvæli:
Brot gegn ákvæðum þessara laga og
stjórnvaldsreglum settum samkvæmt
þeim varða sektum hvort sem þau
eru framin af ásetningi eða stórfelldu
gáleysi. Sé um stórfelld eða ítrekuð
ásetningsbrot að ræða skulu þau að
auki varða fangelsi allt að fjórum
árum.
MAST velji vel þau mál sem
kærð séu til lögreglu. Þannig séu
alvarleg dýravelferðarmál iðulega
kærð, einnig mál sem varða brot á
dýrasjúkdómalögum og mál þar sem
reynt er af ásetningi að svindla og
villa um fyrir neytendum.
„Nú er það svo að MAST fer
í fjölda fiskvinnslna, sláturhús,
heimsóknir til bænda o.fl. fyrirtækja
og við þetta eftirlit eru gerðar
athugasemdir, frávik og alvarleg
frávik. Við innflutningseftirlit eru
reglulega stoppaðar sendingar þar
sem vottorð eru ekki fullnægjandi
eða innihald ekki í samræmi við
reglur. Þetta eru út af fyrir sig iðulega
brot á reglugerðum. Það gengur hins
vegar ekki að kæra allt til lögreglu
enda vísar lögreglan málum frá sem
hún flokkar sem smávægileg brot,“
segir Steinþór. /smh
„Mér finnst íbúarnir bara ótrúlega
brattir eftir það sem á undan er
gegnið og staðráðnir í að láta áföll
ekki buga sig. Menn hafa tekið
hlutunum af æðruleysi,“ segir
Dagbjört Bjarnadóttir, oddviti
Skútustaðhrepps.
Liðið haust var þeim erfitt og hófst
með gríðarlegu hamfaraveðri strax í
byrjun september sem fylgdi mikið
tjón, einkum á bústofni, fé heimtist
illa af fjalli og girðingar eru víða
ónýtar. Oddviti segir að Mývetningar
muni komast yfir þetta áfall og reyna
að horfa bjartsýnir fram á veginn.
Dagbjört segir óveðrið í september
síðastliðnum vissulega hafa sett mark
sitt á samfélagið, en menn beri sig
vel í þeirri vissu að þeir hafi gert allt
sem í þeirra valdi stóð til að bjarga
því sem bjargað varð. „Menn lögðu
mikið á sig til að bjarga fé úr fönn,
bæði sínu eigin og annarra. Vissulega
upplifði fólk tímabil vonleysis, en
tjón er minna en óttast var um tíma,“
segir Dagbjört.
Menn fundu svo sterkt að þeir
stóðu ekki einir
Hún nefnir að það sem íbúar sam-
félagsins, bændur og búalið hafi upp-
lifað afar sterkt sé mikill samhugur
frá landsmönnum.
„Það var ekki síður samtaka-
mátturinn innan sveitar og um
nærsveitir, menn fundu mikinn
stuðning hver af öðrum og því
fylgir öryggistilfinning. Menn fundu
svo sterkt að þeir stóðu ekki einir,
allir voru boðnir og búnir að rétta
hjálparhönd og það held ég eftir á að
hafi skipti sköpum um hvernig fólki
líður núna þegar þetta er allt saman
afstaðið,“ segir Dagbjört.
Mikilvægt að finna stuðninginn
strax frá fyrsta degi
Hún nefnir hversu mikilvægt var að
strax var efnt til upplýsingafundar
þar sem öll helstu mál voru kynnt
og veittar mikilvægar upplýsingar
um stöðu mála, meðal annars að
Bjargráðasjóður myndi koma til
skjalanna og liðsinna bændum vegna
þess tjóns sem þeir höfðu orðið fyrir.
Þá hafi söfnunin „Gengið til fjár“
hafist fljótlega og bændur því fundið
sterklega að samfélagið myndi
styðja við bakið á þeim. „Að finna
þennan mikla stuðning strax á fyrstu
stigum var mikilvægt fyrir okkur
íbúana,“ segir hún og bætir við að
það hafi líka skipt máli að fljótlega
hafi verið lýst yfir neyðarstigi
vegna veðursins sem yfir gekk
og allir helstu aðilar, sýslumaður,
björgunarsveitir, lögregla og
starfsmenn Rafmagnsveitna hafi
verið að störfum og yfirsýn yfir
ástandið hafi verið góð.
Gengið fumlaust til verka
„Það var gengið fumlaust til verka,
enginn var einn á báti að basla við
sitt, heldur fengu menn aðstoð og
hjálp eftir þörfum og eru þakklátir
fyrir það,“ segir Dagbjört. „Almennt
held ég að samtakamátturinn og
samhugurinn hafi verið þeir þættir
sem gerðu útslagið hvað það varðar
að fólki líður bærilega hér í sveit
eftir þetta erfiða haust. Viðbrögðin
í samfélaginu, það að við fundum
að við vorum ekki ein og það að
menn fóru milli bæja og sveita og
lögðu öðrum lið gerði að verkum
að menn eru brattir í dag. Ef til vill
má segja að þetta hafi styrkt innviði
sveitarfélagsins.“
Vonast eftir hagstæðu vori
Dagbjört nefnir að enn hafi ekki
að fullu komið í ljós hversu mikið
tjón hafi orðið á girðingum, gróðri
og öðru í óveðrinu, það muni
menn sjá betur þegar vorar. Þá sé
jákvæði punkturinn við langvarandi
rafmagnsleysi í sveitinni sá að á
næstu misserum verður rafmagn
lagt þar í jörð og staurar heyri brátt
sögunni til.
Hún segir að menn beri þá von í
brjósti að þorrinn og góan verði að
mestu með meinleysislegu yfirbragði
og vorið verði bændum hagstætt.
Fáir eigi umframbirgðir af heyi svo
dæmi sé nefnt og eitthvað sé um að
bændur hafi þegar keypti sér hey
utan sveitar. „Hér hefur engin skepna
farið út á beit frá því í byrjun október
og það gengur ört á forðann, en við
verðum bara að vona að nú sé nóg
komið og lífið gangi nokkurn veginn
snurðulaust fyrir sig á vormánuðum,“
segir Dagbjört. /MÞÞ
Mývetningar furðu brattir eftir áföll á liðnu hausti:
Samtakamáttur og samhugur frá
samfélaginu skipti sköpum
16
Ólögleg kúamjólk
– smávægileg brot ekki kærð
Mynd / ÁB
Dagbjört Bjarnadóttir
Áreiðanleiki raforkuafhendingar í kerfi
Landsnets er minnstur á Vestfjörðum
– segir í nýrri skýrslu samstarfshóps um aukið afhendingaröryggi raforku
2610