Bændablaðið - 10.01.2013, Blaðsíða 19

Bændablaðið - 10.01.2013, Blaðsíða 19
19Bændablaðið | Fimmtudagur 10. janúar 2013 Júgurbólga er einn helsti tjóna- valdurinn á kúabúum dagsins í dag og er svo um allan heim. Þess vegna er þetta einn mest rann- sakaði sjúkdómurinn í nautgripa- ræktinni í dag. Eitt af því sem rannsóknum ber saman um er að gott hreinlæti og nákvæmni við mjaltir er hægt að setja í beint samhengi við lága tíðni á nýsmiti júgurbólgu og þar með lágt tankmeðaltal frumutölu. Skýringin felst meðal annars í því að hátt hlut- fall nýrra smita vegna Staphylococcus aureus bakteríunnar má rekja til smits við mjaltir og hefur verið sýnt fram á að með því að viðhafa gott hrein- læti við mjaltirnar má stórlega draga úr þessu smiti. Eitt allra einfaldasta og auðveldasta ráðið til þess að auka framangreint hreinlæti er að nota hanska við mjaltir. Hér á landi hefur ekki verið gerð könnun á því hve útbreidd notkun á hönskum er við mjaltir, en víða erlendis er þetta hlutfall um 50% og ekki ólíklegt að svipuð staða sé hérlendis. Hendurnar miklir smitberar Víða erlendis hafa verið gerðar rannsóknir á smitleiðum algengustu baktería sem valda júgurbólgu hjá kúm og ein af hinum algengari smit- leiðum er hendur þeirra sem mjólka. Það kemur vafalítið fáum á óvart að smit geti borist með höndum enda var fyrsta tilgátan um smitbera tengd við hendur og skort á handþvotti fyrir 165 árum. Það var hinn vanmetni ungverski læknir Ignaz Semmelweis sem gerði sér grein fyrir því, fyrstur manna í heiminum, að hendur væru alvarlegur smitberi á sjúkrahúsum og þó svo að Ignaz hafi væntanlega ekki haft miklar áhyggjur af júgurbólgu hjá kúm stendur kenning hans enn vel fyrir sínu: gott hreinlæti á höndum dregur stórlega úr smiti. Sláandi áhrif hanskanotkunar Í Hollandi var gerð rannsókn á áhrifum noktunar á hönskum á fjölda baktería og kom í ljós að bæta mátti verulega hreinlæti við mjaltir með því að nota hanska eða sótthreinsa hend- urnar á milli þess sem kýrnar voru meðhöndlaðar, eins og sjá má af með- fylgjandi mynd. Rannsóknin fór fram í nokkrum fjósum og var framkvæmd þannig að þegar bóndi var búinn að mjólka hóp af kúm í mjaltabás stakk hann höndumnum í hanska sem í voru 50 ml af saltvatni (0,9%). Eftir eina mínútu var vökvanum safnað í til- raunaglas og bakteríurnar í vökvanum taldar (sýni nr. 1). Næst var sama ferli endurtekið en nú voru hendurnar fyrst hreinsaðar með sótthreinsik- lútum fyrir mjaltirnar (sýni nr. 2). Þriðja sýnið var svo tekið í kjölfar þess að bóndinn notaði hanska við mjaltirnar en sótthreinsaði þó ekki hanskana á milli kúahópanna. Sýni númer fjögur var svo fengið með því að bóndinn mjólkaði með hönskum og sótthreinsaði jafnframt hanskana á milli kúahópanna og eins og sjá má af myndinni skilaði það langbestum árangri. Allt að 98% fækkun baktería Niðurstöðurnar sýndu vel hve mikil- vægt hreinlætið er við mjaltirnar. Þannig kom t.d. í ljós að með því að nota hanska og sótthreinsa þá á milli hvers hóps kúa sem kom inn í mjaltabásinn var nánast hægt að eyða bakteríunum að fullu. Mælingarnar sýndu að bakteríunum fækkaði um 98% miðað við að hvorki sótthreinsa né nota hanska, þ.e. munurinn á sýni eitt og fjögur. Þá sýndu mælingarnar einnig að við það eitt að sótthreinsa hendurnar mátti fækka bakteríunum um 85% en ef sótthreinsun var hins vegar sleppt og bara notaðir hanskar fækkaði bakteríunum um 75%. Ermahlífar einnig mikilvægar Eitt af því sem hafa þarf hugfast þegar byrjað er að nota hanska er einnig að forðast að ermar vinnufatnaðarins séu óhreinar. Það er þannig tilgangslítið að vera með hanska á höndum ef fremsti hluti ermanna á vinnugallanum er haugskítugur enda erfitt að koma í veg fyrir að ermarnar snerti spenana sem næst eru líkamanum við þvott á þeim sem fjærst eru. Vinnufatnaðurinn á því alltaf að vera hreinn og ein leið til þess að halda ermunum hreinum er að nota svokallaðar ermahlífar. Þær eru til bæði einnota og margnota og eru seldar, eins og mjaltahanskarnir, í helstu sérvöruverslunum fyrir þá sem eru í mjólkurframleiðslu. Vanda þarf val á hönskum Þegar hanskar eru keyptir er mikil- vægt að kaupa kórrétta stærð, því ella verður notkun þeirra bæði önug og í raun ómöguleg. Of litlir hanskar rifna mun oftar og of stórir hanskar gera alla vinnu við spenaþvott og meðhöndlun mjaltatækjanna erfiða. Eitt er svo að kaupa rétta stærð, og hitt að venja sig á að mjólka með hönskum. Það hefur reynst mörgum erfitt og er í raun átak fyrir hvern og einn. Vissulega hentar fólki misvel að nota hanska en fullyrða má að allir geta vanist því þó svo að það taki mislangan tíma. Þess má geta að í framangreindri hol- lenskri rannsókn kom í ljós að þeir bændur sem byrjuðu að nota hanska að staðaldri fengu mun mýkri húð á hendurnar og sáu vísindamennirnir sérstaka ástæðu til þess að taka fram að konur bændanna voru sér í lagi ánægðar með breytinguna! Helstu kostir við notkun á hönskum og ermahlífum: Kemur í veg fyrir að bakteríur og óhreinindi lendi í ójöfnum eða sprungum húðarinnar í lófum og fingrum. Ver hendurnar gegn álagi af völd- um efnanna sem notuð eru við þvott og/eða sótthreinsun. Bakteríur eiga mjög erfitt með að festa sig við hanska. Með því að mjólka með hönskum og sótthreina þá á milli kúa má draga úr nýsmiti af völdum bakt- ería. Snorri Sigurðsson sns@vfl.dk Þekkingarsetri landbúnaðarins í Danmörku Heimildir: Án höf., 2010. Mastitis Flash. Vol. 4 (8), Université de Montréal. Jansje van Veerseen, Alice Booij og Theo Lam (ritstjórar), 2011. M2-magazine nr. 1. Riekerink, R.G.M. ofl., 2008: Comparing bacterial counts on bare hands with gloved hands during milking (úr ráðstefnurit inu Mastitis control: from science to practice (s. 77-82). www.wikipedia.org - Ignaz Semmelweis. Utan úr heimi Notaðu hanska við mjaltir! Hanskar og ermahlífar. Traktorsdrifnar rafstöðvar 10,8 KW  upp í 72 KW,  Agrowatt Framleiðandi: Sincro á Ítalíu. Stöðvarnar eru 4 póla (1.500 sn./mín.)  með AVR (automatic volt regulator) AVR tryggir örugga notkun við viðkvæman rafbúnað, t.d. mjólkurþjóna, tölvubúnað o.fl. Verðdæmi: (42 KWA) 33,6 KW  =  566.000 + vsk. Stöðin þarf 80 hestafla traktor, PTO 430 Hákonarson ehf. s. 892-4163, netfang: hak@hak.is vefslóð: www.hak.is

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.