Bændablaðið - 10.01.2013, Blaðsíða 22

Bændablaðið - 10.01.2013, Blaðsíða 22
22 Bændablaðið | Fimmtudagur 10. janúar 2013 Lesendabás Fljúgandi hálka á fínni línu Þar sem viðbrögð þau sem ég hef heyrt og séð við grein minni í Bændablaðinu 29. nóvember hafa vakið hjá mér grun um að Harpa Ósk Jóhannesdóttir frá Herjólfsstöðum hafi tekið þeim skrifum mínum illa og persónulega sárnað við mig, vil ég koma eftirfarandi á framfæri. Þau orð mín voru sett á blað til að sýna fram á þær tilfinningar sem eru ríkjandi í svona baráttu um mismunandi nýtingu lands. Átök af þessu tagi eru nefnilega ekki bara hagsmunaslagur heldur tilfinningaslagur ekki síður og það er eðli átaka að þau verða hörðust þar sem tilfinningarnar eru heitastar. Harpa opnaði í sinni grein í Bændablaðinu tveimur blöðum fyrr á tilfinningaumræðu gagnvart landi og mér fannst alveg rakið að grípa boltann á lofti. „Römm er sú taug er rekka dregur föðurtúna til“ kvað rómverska fornskáldið Óvíð (í íslenskri þýðingu) og sem betur fer á það við enn í dag. Saga sumra bújarða er sam- tvinnuð löngum ættarsögum og aðrar jarðir tengjast sögum margra fjöl- skyldna. Erfitt verður að finna nokkurn blett á Íslandi sem enginn heillast af og enginn tengir sig við. Því er það dómarasæti nokkuð hátt sem harðir fylgismenn virkjananna hafa sest í, að ætla að ákveða hverjir mega hafa til- finningar til lands síns og hverjir ekki eftir búsetu. Greinin mín var líka illa dulbúið og óskammfeilið háð á Jóhannes Gissurarson, sveitarstjórnarmann og föður Hörpu. Átti að benda á að hann hefur kvatt til ríkisfyrirtæki og fjár- magn til bjargar því beitilandi sem hann er að nota en gengur svo manna harðast fram í því innan sveitarstjórnar að sökkva öðru landi sem einnig er í notkun og er ekki lakara að gæðum. Hvort það er síðan sanngjarnt, ósann- gjarnt eða alveg á línunni að nota persónulega hagsmunagæslu hans gegn honum við störf hans innan sveitarstjórnar má svo sjálfsagt lengi deila um. En hafi ég með þessu brotið á Hörpu Ósk, valdið henni persónu- legum sárindum, eða á einhvern hátt gert lítið úr minningu afa hennar eins og mér hefur verið brigslað um þá þykir mér það ákaflega miður og biðst afsökunar á því af fullum heilindum. Harpa hefur hins vegar upp á síð- kastið komið fram í dagsljósið sem ötull og málefnalegur stuðningsmaður Hólmsárvirkjunar og þar erum ég og fleiri svo meira en til í slaginn. Harpa birti nýverið á Facebook-síðu sinni grein og svipaða grein birti hún í síð- asta Bændablaði, þar sem hún telur upp ýmsar staðreyndir um Hólmsárvirkjun. Því fólki sem vill kynna sér fleiri stað- reyndir vil ég benda á mér fróðari mann, Vigfús Gíslason frá Flögu, en grein eftir hann birtist í Dagskránni 20. desember síðastliðinn og er aðgengi- leg á vefnum, t.d. á síðunni dfs.is, á Facebook-síðu minni og víðar. Fólki sem virkilega vill kynna sér svæðið ráðlegg ég svo að skella sér í gönguferð um það í sumar á vegum FÍ, gangan síðasta sumar var afar vel heppnuð og algert ævintýri. Um Búlandsvirkjun segir Harpa í sömu grein að mér sé óhætt að róa taugarnar vegna þeirrar framkvæmdar, þar sem sveitarstjóri Skaftárhrepps hafi sagt opinberlega að sjálfhætt sé við hana vilji land eigendur ekki semja. Sveitarstjóri sveitarfélags er ekki ráðamaður innan þess heldur starfsmaður, ráðinn til starfa af sveitar- stjórn í heild sinni og á að vinna jafnt fyrir alla í sveitarfélaginu. Meirihluti sveitar stjórnar Skaftárhrepps hefur hins vegar ítrekað att sveitarstjóranum á fláann fyrir sig og hún farið fram með ýmsar hæpnar fullyrðingar og til- þrifamikinn barlóm í fjölmiðlum en ekki andað frá sér orði um skoðanir minnihlutans. Því hneigist ég til að taka með fyrirvara því sem frá henni kemur og slaka hvergi á í baráttunni fyrir tilverurétti mínum. Það var enn fremur lítið róandi fyrir taugarnar að hinn 12. desember síðastliðinn frétti ég síðast af framkvæmdastjóra Suðurorku við vatnsmælingar í Skaftá svo ég held að þar á bæ sé ekkert verið að hlusta á sveitarstjórann heldur. Mín sýn til frambúðar er sú að Skaftárhreppur verði áfram landbún- aðar- og ferðaþjónustuhérað fyrst og fremst og einnig verði sótt fram til nýrra tækifæra án þess að stofna undir- stöðunni í hættu á nokkurn hátt. Þar fer fremst meðal jafningja hið stóra verk- efni sem fram undan er, uppbygging Þekkingarseturs á Kirkjubæjarklaustri. Ríkið samþykkti nýverið í fjárlögum að veita til þess 290 milljónum á ári í þrjú ár auk þeirra 30 milljóna sem fengust í undirbúningsvinnuna við það á árinu 2012. Einnig má benda á tvö ný störf á vegum Kötlu Jarðvangs en þeir starfsmenn munu hafa starfs- stöðvar í Skaftárhreppi. Í byggingu eru tvær kjötvinnslur til fullvinnslu afurða frá býli og í Meðallandi er hafin stórfelld ræktun og vinnsla á korni og olíurepju. Þá eru ótalin sóknarfæri innan Vatnajökulsþjóðgarðs. Ég hef þá bjargföstu trú að land- búnaður eigi langa og farsæla framtíð á Íslandi, verði ein af grunnstoðum þjóðarinnar hér eftir sem hingað til. En eins og þeim sem eitthvað hafa fylgst með landbúnaðarumræðunni ætti að vera ljóst hafa beitarmál tekið þar mikið pláss upp á síðkastið. Sá tími er kannski ekki svo ýkja langt undan að bændur í Skaftárhreppi þurfi að treysta í meiri mæli á láglendisbeit en nú er gert. Þá yrðu eflaust einhverjir fegnir að hafa aðgang að því landi meðfram Hólmsá sem nú er keppst við að gera lítið úr. Það er sjálfsagt göfugt mark- mið hjá virkjanasinnum að vilja bjarga Skaftárhreppi með u.þ.b. 15 milljónum í fasteignagjöld á ári og skammtíma- þenslu í atvinnu og þjónustu á meðan á uppbyggingu virkjunar stendur. Ég hneigist frekar til að sjá sveitarfélagið Skaftárhrepp sem stjórnsýslulegt hug- tak og er ekki tilbúin að gera í blindni hvað sem er til bjargar hugtaki. Ég tel brýnna að horfa út fyrir hreppamörkin, á landið og byggðastefnu stjórnvalda í heild sinni, og skoða hagsmuni minnar stéttar og þá þjóðarhagsmuni sem öflugur landbúnaður er. Sem dæmi hefur sveitin Skaftártunga til- heyrt þremur hreppum á innan við 150 árum, Leiðvallahreppi til ársins 1886, Skaftártunguhreppi til ársins 1990 og Skaftárhreppi til dagsins í dag. Allan þennan tíma hefur þéttleiki búskapar í Skaftártungu lítið breyst og búskapar- hættir hafa þróast í takt við tíðarandann en ekki tekið róttækum stakkaskiptum þótt einhverjar stjórnsýslubreytingar yrðu. Nú er ég ekkert að mæla fyrir sameiningu, bara að benda fólki aðeins út fyrir rammann. Búseta manna hefur alltaf fylgt gróðurmoldinni eins og Ásta systir mín Sverrisdóttir hefur bent á í sínum skrifum og ég hef þá trú að svo verði áfram. Ég vil allavega leita annara leiða til að efla stjórnsýsluhugtakið Skaftárhrepp en að ráðast gegn hinni eiginlegu undir- stöðu lífs á jörðinni sem er jú gróður- moldin. Jörðin hringsnýst vonandi eitthvað lengur og það eru engar líkur á að dragi úr fólksfjölgun á heimsvísu þó að hún sé dræm í Skaftárhreppi. Á meðan fólkinu fjölgar eykst þörfin fyrir matvæli og samfara þeim breyt- ingum sem hafa orðið á veðurfari er æ meira horft til norðurhvels jarðar með aukna matvælaframleiðslu. Ég geri mér ljóst að það landsvæði sem nú tilheyrir Skaftárhreppi mun ekki eitt standa undir þeim væntingum. Það sem ég á við er, hvar á að stoppa, hvar á að draga mörkin. Ef ráðast þarf í nýjar stórtækar virkjanaframkvæmdir helst á hverjum áratug til „bjargar atvinnu- lífinu“ verður ekki orðið mikið eftir af landi til að sýna ferðamönnum, eða framleiða matvæli á eftir t.d. þrjú- hundruð ár. Ef að heimilin í landinu bráðvantaði rafmagn þá tæki því kannski að líta tvisvar á þessar virkjanahugmyndir á annars ósnortnu landsvæði, en fólk í ábyrgðarstöðum hefur sagt mér að svo sé ekki. Því verður að líta svo á að virkjun Hólmsár eða Skaftár snúi að því að efla stóriðju í landinu eða daðra við hugmyndina um raforkusölu til Evrópu um sæstreng með tilheyrandi hækkun raforkukostnaðar fyrir almenning. Í ljósi þess mun ég, ásamt fleira fólki, áfram takast á við meirihluta sveitarstjórnar Skaftárhrepps eða hvern annan sem fylgir þeirri skammsýnisstefnu sem virkjanabrallið er. Í þeirri baráttu verða notuð öll þau vopn sem upp í hendurnar koma, en ég skal þó í framtíðinni reyna að gæta þess að hafa báða fætur á línunni og veita þeim ekki pústra sem ekki hafa til þeirra unnið. Heiða Guðný Ásgeirsdóttir bóndi og umhverfisverndarsinni Ljótarstöðum Þakka ber það sem vel er gert og er útilokað annað en þakka fyrir Bændablaðið. Skemmtilegt er að það skuli vera Vestfirðingur sem þar stýrir innviðum nú um stundir. Þeir koma víða við, Vestfirðingarnir. Í hvert skipti sem blaðið kemur inn um lúguna hlakkar maður til að renna yfir það. Þar kennir margra og góðra grasa. Efnistök eru mjög fjölbreytt og má segja að það end- urspegli hversu íslenskur landbún- aður er fjölbreyttur og sýnir glögg- lega hversu mörg er matarholan á landsbyggðinni. En það er eins og fyrri daginn. Menn þurfa einungis að kunna að nýta landsins gæði á réttan hátt. Hvað sagði ekki Jón Sigurðsson 1838: „Sérhverri þjóð vegnar vel, sem hefir lag á að sjá kosti lands síns og nota þá, eins og þeir eiga að vera notaðir.“ Ein ágæt kona sagði eitthvað á þessa leið fyrir mörgum árum: „Í sveitum Íslands er stærsta barna- heimili í heimi.“ Í greina flokknum Send í sveit í Bændablaðinu segja ýmsir borgarar frá dvöl sinni á sveitabæjum á yngri árum. Þá voru menn „sendir í sveit“ sem kallað var. Nú er slíkt því miður ekki lengur á dagskrá. Þúsundir Íslendinga hafa sagt frá því í bókum hversu þroskandi og hamingjuríkur tíma það var að fá að umgangast sveitafólkið, sem oft var náskylt viðkomandi, því öll erum við meiri og minni sveitamenn, og umgengn- inni við húsdýrin okkar. Auðvitað var það ekki alltaf elsku mamma og til var í dæminu að menn komu heim kalnir á hjarta úr sveitinni. En það voru undantekningar sem sönnuðu regluna. Sá landsþekkti Þorgeir Ástvalds- son, útvarps- og tónlistarmaður með meiru, segir frá dvöl sinni hjá afa og ömmu á Breiðabólsstað á Fellsströnd sumar eftir sumar, í Bændablaðinu 29. nóvember. Þorgeir segir: „Afi minn Þórður var vinnu harður maður en hógvær og nærgætinn. Hann fól mér ýmis verk eins og að hlaupa fyrir fé (ég var sprettharður). Hann sagði mér ekki hlutina beint en í svita dagsins og erfiði skildi ég hvað hann átti við. Svipbrigði, engar skammir, ekkert yfirborðshrós, bara áfram og svolítið glott. Gott var að taka í hrjúfa hönd hans á leiðinni heim í bæ til ömmu. Sauðfjárbúskapur, það er lífið. Annað eru bráðnauð- synleg aukaatriði. Dvölin í sveit- inni kenndi mér líka að ósérhlífni er dyggð. Ég hef alltaf tekið mark á því.“ Og enn fremur: „Tengsl mín við ættaróðalið Breiðabólsstað höfðu ekki bara áhrif á mig. Þau hafa mótað mig gersamlega fram eftir ævinni.“ Bryndís Hlöðversdóttir, rektor Háskólans á Bifröst, ólst upp í Ey II í Vestur-Landeyjum. Síðan var hún meðal annars í sveit á Syðri- Rauðamel í Kolbeinsstaðahreppi. Bryndís segir svo 1. nóvember: „Mér leið alltaf vel í s v e i t i n n i , ætli það séu ekki róleg- heitin og návígið við f u l l o r ð n a fólkið sem maður kunni svo vel að meta. Þar hafði maður, þótt barn væri, hlutverki að gegna, fékk að vera með fullorðnu fólki í þeirra daglegu störfum allan daginn og vera þátttakandi í brauðstritinu. Og enn fremur: „Ég sá um að sópa niður af svefnloftinu á morgnana og skvetta úr koppum karlanna á bænum! Uppvaskið var á minni könnu, en ég vaskaði upp úr stóru vaskafati sem var á olíueldavél í eldhúsinu. ... Heimalningarnir voru alfarið á minni könnu og eitt sumarið voru þeir 12 talsins. Þá var mikið fjör í kringum mjólkur- gjöfina en ég gaf þeim að drekka úr stórum glerflöskum sem tútta var sett á. Svo var ég látin raka dreif, tína ullarlagða af girðingum, aðstoða við að mjólka og ganga frá mjólkinni. Svo var ég Guðríði húsfreyju til aðstoðar við eld- mennsku og bakstur en hún var mikill matgæðingur. Þannig að það var ýmislegt sem til féll á bænum og ég greip í þau verk sem ég gat.“ Spurningunni um hvort dvölin í sveitinni hafi skilið eitthvað sér- stakt eftir sig svarar Bryndís meðal annars svo: „Já, fjölmargt. Ég tel að árin þar hafi mótað mig mjög sem manneskju. Fyrst og fremst vegna þess hversu mikið fólkið þar gaf mér, ekki síst Guðríður, sem ég umgekkst alla daga. Einnig tel ég það mikið lán að hafa fengið að upplifa sveitalífið.“ Björg Thorarensen, prófessor við Háskóla Íslands, var í sveita- dvöl hjá frændfólki sínu í Vigur á Ísafjardjúpi í fjögur sumur. Björg segir segir svo 20. september: „Dvölin í Vigur hafði mjög sterk áhrif á mig og þaðan eru margar mínar björtustu æskuminningar. Ég býst við að hún hafi mótað mig á ýmsan hátt, aukið skilning minn og áhuga á lífinu til sveita, á dýrum og náttúru og þekkingu á fuglalífi. Dvölin þar veitti mér innsýn í for- tíðina, búskaparhætti liðinna tíma og sögu forferða minna í eyjunni, þar sem langafi minn tók við búi um 1880. Það ýtti undir tilfinn- inguna að ég sé Vestfirðingur, sem ég er mjög stolt af.“ Því hefur verið fleygt að sumir Íslendingar séu á góðri leið að týna sjálfum sér í eigin landi. Ætli sú staðreynd að nú eru börn varla send í sveit lengur eigi ekki nokkuð stóran þátt í þeirri þróun? Hallgrímur Sveinsson. Þakkað fyrir Bændablaðið Bændur varagjaldeyrisforði þjóðarinnar Við Íslendingar erum stoltir af landbúnaðinum okkar. Á haust- dögum 2008 talaði ég um að bænd- ur hefðu verið varagjaldeyris- forðinn okkar þegar bankarnir hrundu til grunna. Það hefði verið útilokað fyrir þjóðarbúið að standa undir gjaldeyrisútgjöldum til mat- vælakaupa frá útlöndum þegar gjaldeyrisvaraforðinn þurrkaðist nánast út á einni nóttu. Hagsmunir þéttbýlis og dreifbýlis fara saman. Má segja að hvorugt geti án hins verið. Það er þéttbýlinu mjög til hagsbóta að hér á landi sé rekinn öflugur landbúnaður og fram- leiddar hollar matvörur. Tækifæri í landbúnaði eru mikil og nýjar leiðir spennandi. Á ráðstefnunni Matvælalandið Ísland – fjársjóður framtíðar sem haldin var fyrir skömmu, á vegum fyrirtækja og hagsmuna- a ð i l a í m a t v æ l a - framleiðslu, kom glöggt í ljós hversu f j ö l b r e y t t tækifæri í landbúnaði eru hér á landi. Með rannsóknum og þróun í ræktun á ýmsum nytjajurtum er hægt að framleiða hér nýjar vörur til ýmissa nota. Með hlýnandi veðurfari eykst uppskera og skapar möguleika á að prófa nýjar nytjajurtir. Tæpast þarf að minnast á að hægt er að stórauka grænmetisframleiðslu hér á landi, bæði undir gleri sem og útifram- leiðslu. Skoða þarf af fullri alvöru að starfrækja niðursuðuverksmiðju sem tekið getur við umframframleiðslu á útiræktuðu grænmeti – því upp- skerutími þess er mjög skammur. Þá er farið í gang afar spennandi verk- efni hér á landi – en það er berjarækt undir gleri. Okkur sem þjóð eru í raun allir vegir færir til framtíðar. Tækifærin eru úti um allt. Við erum nýsköpunar- og frumkvöðlaþjóð. Til að skapa þennan raunveruleika verða stjórnvöld að hafa skilning á því góða starfi sem fer fram í sveitum og úti um allt land. Við í Framsóknarflokknum höfum ætíð lagt áherslu á mikilvægi bænda og að standa vörð um þessa mikilvægu atvinnugrein og tækifæri hennar. Vigdís Hauksdóttir. alþingismaður Vigdís Hauksdóttir Hallgrímur Sveinsson DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGI SÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS Taka 12 Kg · Hljóðlát Stórt op > auðvelt að hlaða Sparneytin amerísk tæki. <Þvottvélin tekur heitt og kalt vatn Afkastamikill þurrkari > Þvottavél Þurrkari12 kg Amerísk gæðavara Amerísk gæðavara Bændablaðið á netinu... www.bbl.is

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.