Bændablaðið - 10.01.2013, Blaðsíða 10

Bændablaðið - 10.01.2013, Blaðsíða 10
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. janúar 201310 Fréttir Katka Hannelova frá Slóvakíu réð sig til vinnu á Vestri-Pétursey í Mýrdalnum: Langar að koma sér upp eigin býli Katka Hannelova frá Slóvakíu er 35 ára gömul og kom hér til lands fyrir tveimur árum þegar hún réð sig til vinnu á Vestri-Pétursey í Mýrdalnum. Hún er heilluð af landi og þjóð og af íslenskri sveit og hefur nú áhuga á að setjast hér að og koma upp sínu eigin býli með mjólkurframleiðslu. – Af hverju ákvaðstu að koma til Íslands? „Mér líkar mjög vel að ferðast og að dvelja á þeim stöðum sem ég ferðast til í nokkurn tíma. Mig hafði langað að koma til Íslands sem ferðamaður og þar sem ég var einnig að leita mér að starfi á þessum tíma ákvað ég að samþætta þetta tvennt og leitaði mér að vinnu hér á landi. Ég leitaði á leitarvélum á netinu og fékk upp ráðningarþjónustur á Íslandi og sumar þeirra buðu upp á störf tengt landbúnaði. Ég var ekki lengi að hugsa mig um að ég hafði áhuga á slíku eftir að ég las eftirfarandi lýsingu á starfi: „Við lofum hellingi af fersku lofti og hollri hreyfingu, hvort sem þú starfar við blíðu kýrnar okkar, hænsni sem klekja út eggjum, sæt og lyktandi svín eða við sauðfjárbúskap.“ Áður hafði ég mikið unnið með fólki og því fannst mér það spennandi tilhugsun að koma til Íslands að vinna með dýrum. Ekki skemmdi fyrir að ég elska dýr og ég hafði mikla löngun í að upplifa Ísland af eigin raun. Það tók mig svolítinn tíma að finna vinnu en að lokum fann ég góðan stað og var himinlifandi með það. Ég er því búin að starfa við kúabúskap og við að rækta gulrætur á Vestri-Pétursey í Mýrdal.“ – Hvernig líkar þér dvölin? „Landið ykkar finnst mér algjörlega dásamlegt. Ég geng út á hverjum morgni, horfi á sömu fjöllin og sömu jöklana í kringum mig og stend mig enn að því að segja „vá“ dag eftir dag. Einnig finnst mér alltaf jafn áhugavert þegar ég keyri til og frá Reykjavík að dást að umhverfinu eins og ég sé að sjá það og upplifa í fyrsta sinn. Þessi fegurð og þetta mikla landrými vekja upp frelsis- tilfinningu hjá mér og þá finnst mér þetta vera land tækifæranna þar sem draumar geta orðið að veruleika. Ég á eftir að ferðast meira um landið og reikna með að verða þá fyrir enn meiri hughrifum. Fjölskyldan sem ég bý hjá og vinn fyrir er yndisleg. Þó að ég sé ekki fyrir það að alhæfa finnst mér hver og ein manneskja sem ég hef hitt hér vera einstök. Mér finnst best að lýsa Íslendingum með orðum Öldu Sigmundsdóttur úr bók hennar Little Book of the Icelanders, en bókin hjálpaði mér að staðfesta og skýra sumar af mínum eigin tilfinningum og einnig að útskýra suma hluti sem ég vissi ekki eða var ekki alveg viss á um landið og íbúa þess. Þetta er bók sem er hugsuð fyrir útlendinga en ég held reyndar að allir Íslendingar hefðu gott af því að lesa hana til að hjálpa þeim að uppgötva sjálfa sig og hvað þeir standa fyrir. Ég held að margir yrðu hissa á því sem þeir uppgötva við lesturinn!“ – Hvað er það sem heillar þig mest við búskapinn? „Ég er búin að vera í stöðugu ferli við að verða ástfangin af búskap alveg síðan að ég réð mig hingað til starfa fyrir tveimur árum. Ég verð bara hrifnari og hrifnari af kúa búskap. Þegar morgunmjöltum er lokið hlakka ég strax til síðdegisverkanna. Kýrnar eru yndislegar skepnur, þær eru klárar, þær hafa hver og ein sinn persónuleika og mér finnst gott að eiga samskipti við þær. Afkvæmin eru einnig yndisleg og ég nýt þess mjög að vinna með þau og að vera í kringum þau til að tryggja velferð þeirra. Ég hef einnig íhugað að fara í búfræðinám hérlendis og það er aldrei að vita nema það verði einn daginn.“ – Hver eru framtíðarplön þín? „Ég sé mig fyrir mér hér á Íslandi og ég vona að svo geti orðið. Ég hef mikinn áhuga á að eiga minn eigin sveitabæ þar sem ég stunda mjólkurframleiðslu en þar sem ég hef einnig fleiri gæludýr eins og hund og kött, tvo hesta og jafnvel nokkrar geitur. Ég myndi einnig vilja hafa lítið gróðurhús þar sem ég rækta eigin ávexti og grænmeti. Ég hef einnig fylgst með verkefninu um eyðibýli á Íslandi en mér finnst þessir yfirgefnu bóndabæir um allt land mjög áhugaverðir. Það væri verulega spennandi verkefni að koma einu slíku í gott horf og að stunda þar búskap í framhaldinu. Þetta er sennilega háleitur draumur en mig langar að gera allt sem í mínu valdi stendur til að láta þennan draum verða að veruleika. Mér finnst það mikil forréttindi og blessun að geta unnið við það sem ég hef ástríðu fyrir. Ég hef ekki hugmynd um hvar eða hvernig ég byrja og því þigg ég öll ráð í þessum efnum og sérstaklega ef einhver getur leiðbeint mér hér á landi. Ég hef trú á að þetta sé mögulegt og ég mun halda áfram að reyna að láta drauminn rætast, hér á Íslandi, því fyrir mér er þetta jú land frelsis og tækifæra.“ Þeir sem geta leiðbeint Kötku að framfylgja draumi sínum geta sent henni línu á netfangið kapusik@ gmail.com /ehg Draumaárið 2012 sem um var sungið af Vilhjálmi Vilhjálmssyni svo vel þegar ég var strákur er liðið í aldanna skaut. Nýtt ár heilsar með væntingum og nýjum tækifærum. Utanríkisráðherra Össur Skarphéðinsson klappar atvinnu- málaráðherranum Steingrími J. Sigfússyni ljúflega á kinn á einni myndinni þegar þeir með Norðmönnum undirrita samning um rannsóknir á olíu á Drekasvæðinu. Svona eins og hann sé að biðja Vinstrigræna um frið um málið. Nú er því haldið fram að bæði olíu- og gasauðlindir séu í okkar efnahagslögsögu með nokkurri vissu, þetta boðar okkur bjartsýni og trú. Ísland er á margan hátt enn ónumið land og sker sig nokkuð úr meðal Evrópuþjóða. Við eigum „bláa gullið“, ferska vatnið, mestu og mikilvægustu auðlind fram- tíðarinnar. Það vantar vatn um víða veröld um leið og loftslags- breytingar eru dauðans alvara, sem ber að sporna gegn. Þó að olían sé ágæt skulum við minnast þess að Ísland býr við bestu orkugjafana úr endurnýjanlegri auð- lind vatnsfallanna, en forðabúrin jöklarnir hopa skarpt og er það áhyggjuefni. Leiðum þó aldrei raf- orkustreng úr landi til að eyðileggja okkar sérstöðu og þjóna stundar- hagsmunum sem mun hækka okkar raforkuverð og knýja á um að virkja allt og gera það falt sem við skulum eiga til framtíðarinnar til að skapa atvinnu í landinu. Þegar ég af skrifstofu minni horfi yfir hana Reykjavík er himinninn heiður og blár, hvergi kolareyk eða mengun að sjá. Jarðhitinn hefur verið virkjaður og gerður að eldstó heimilanna ásamt rafmagninu, hvar værum við stödd ef við þyrftum gjaldeyri til að kaupa þessa orku til landsins? „Amma ég er ekki kálfur“ Um leið og ég horfi á hina hreinu borg Reykjavíkursvæðið allt veit ég að ísskápurinn er hlaðinn af afurð- um landbúnaðarins. Þar er mjólk, þar er ostur, þar er smjör, og skyr og súrmjólk og jógúrt. Þar er kjöt og allskonar afurðir frá matvælaiðnað- inum og bændum sem eru einstakar að gæðum. Mikilvæg matvæli til að skapa hraustan mann og stúlkan er jafn mikill maður og drengurinn. Það gerðist á heimili kúabónda á dögunum að lítill þriggja ára strákur var kominn í heimsókn til afa og ömmu. Við morgunverðarborðið gerðust þau tíðindi að amma sagði „hér er mjólkurglasið þitt ljúfurinn minn“. Drengurinn setti upp furðu- svip og sagði: „Amma ég er ekki kálfur, kálfar drekka mjólk, ég vil vatn.“ Nú skal það ekki fullyrt hér að þetta sé eitthvað sem gangi í leik- skólanum. Drengurinn er kannski svona skýr að hann vildi bara stríða ömmu sinni, því góðum kúabónda bregður við svona andsvar. Vatnið er gott en mjólkin lífsnauðsynleg Mjólkuriðnaðurinn hefur notið þess að eiga gott samstarf við Beinvernd, sem rekur áróður fyrir því að byggja upp beinvef líkamans. Og með okkar færustu sérfræðingum og prófessorum á sviði manneldis sem mæla með mjólk og mjólkurvörum og segja að við eigum engan betri kalkgjafa til að byggja upp beina- bankann á ungum aldri en mjólkur- vörurnar. Íþróttakennarar eru sömu skoðunar og bera á brjósti og baki sínu hvatninguna „Mjólk er góð“. Beinvernd leggur áherslu á að strax á unga aldri sé fjárfest í beinunum með því að neyta hollrar fæðu, ekki síst mjólkurvara, tekið lýsi og stunduð hreyfing allt lífið. Beinin byrja að þroskast á fósturstigi og ná hámarki á þrítugsaldri, svo fara menn að taka út forðann í beina- bankanum, þá er nú verra sé hann gjaldþrota. Skaðinn af beinþynningu hér á landi er talinn vera hálfur til heill milljarður, þar fyrir utan er þjáning- in. Vatnið er gott eins og drengurinn sagði og betra en sykur mengað gos, en mjólkin og mjólkur vörurnar eru lífsnauðsynlegar. Guðni Ágústsson framkvæmdastjóri SAM skrifar: Nýtt ár heilsar með væntingum og nýjum tækifærum Katka kom til Íslands fyrir tveimur árum og hefur starfað á Vestri-Pétursey í Mýrdal við kúabúskapinn og við ræktun á gulrótum. Mynd / ehg Landbúnaðarháskóli Íslands: Nýr deildarforseti umhverfisdeildar Um áramótin tók Hlynur Óskarsson við af Ólafi Arnalds sem deildarforseti umhverfisdeild- ar, en Ólafur hafði gegnt starfinu frá stofnun skólans árið 2005. Hlynur er vistfræðingur að mennt með áherslu á votlendisvistfræði og hefur stundað rannsóknir á því sviði um árabili. Hann hefur starfað á Keldnaholti frá árinu 1998; fyrst á RALA en síðan við LbhÍ eftir stofnun skól- ans. Aðspurður segist Hlynur spenntur fyrir nýja starfinu og þeim áskor- unum sem því fylgi. Að hans mati er framtíð deildarinnar björt enda skipuð góðu fólki og viðfangsefnin áhugaverð. „Deildin hefur jafn- framt faglega sérstöðu hér á landi hvað varðar kennslu og rannsóknir á náttúru landsins er lúta að nýtingu, skipulagi og ástandi þess,“ segir Hlynur. „Slík sérstaða er ákaflega mikilvæg í samfélagi nútímans þar sem krafa er uppi um sjálfbæra og upplýsta nýtingu lands.“ /ÁÞ Hlynur Óskarsson. Gluggar PVC Suðurlandsbraut 24, 2h. S. 533 4010 rek@rek.is Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.